Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Eina vitið að lengja Reykjavíkurflugvöll – Alþingishúsið yrði flugstöð og þingmenn í Hegningarhúsið

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Kristjáns­dóttir veltir fyrir sér hvort það megi ekki skera á þann hnút sem myndast hefur vegna flug­vallarins í Vatns­mýrinni með því að lengja flug­brautina þar. Þannig mætti brautina til norðurs yfir Tjörnina og breyta Alþingis­húsinu í flugstöð. Þingmenn gætu svo farið þangað sem þeir eiga best heima, í Hegningar­húsið gamla við Skólavörðu­stíg.

Anna veltir þessu fyrir sér í samhengi við flugvallamál á Tenerife, þar sem hún býr. „Ég heyrði auglýsingu í útvarpinu í gærmorgun þar ýmislegt var talið upp um Gran Canaria, allt mjög jákvætt og gott samkvæmt auglýsingunni frá Vita. Þó gleymdist að nefna það sem er fegurst við Gran Canaria, en það er að sjálfsögðu fegurð útsýnisins frá Gran Canaria til vesturs, til El Teide og Paradísar,“ segir Anna.

Hún segir að allt flug hafi farið í kleinu á dögunum á Tenerife. „Annars er löngu kominn tími til að skreppa á þessa litlu eyju sem mun þó vera hin þriðja stærsta af Kanarí­eyjum, en einungis Tenerife og Fuerte Ventura eru stærri, það er ef mér verður sleppt lausri í land. Það er annars gaman að bera saman Reykjanes og Tenerife, Reykjanes er um 1700 ferkílómetrar en Tenerife rétt rúmlega 2000 ferkílómetrar. Á Tenerife eru tveir alþjóða­flugvellir, en að auki eru alþjóða­flugvellir á einhverjum hinna eyjanna sem geta nýst sem vara­flugvellir fyrir Tenerife ef eitthvað gerist eins og reyndar gerðist um síðustu helgi er flugvél frá RyanAir bilaði í flugtaki og flug­völlurinn lokaðist í nokkrar klukku­stundir. Hinn alræmdi norður­flugvöllur (TFN) gat ekki tekið við öllu álaginu til Tenerife sur (TFS) né aðrir flug­vellir á eyjunum. Flugvél Icelandair var snúið til Portúgal en vegna aukins álags þar, varð hún á endanum að lenda á Spáni,“ segir Anna.

Hvað myndi gerast á Íslandi við svipaðar aðstæður spyr Anna svo. „Ég fór að velta fyrir mér ef slíkt gerðist á álagstíma á Kefla­víkur­flugvelli. Reykjavík gæti aldrei tekið við öllu álaginu um leið og ég spyr hvort Reykjavík geti tekið við stærri flugvélum á borð við 767 og síðan enn stærri vélar. Sú spyr sem ekki veit. Hvað um flugvalla­ræksnin á Akureyri og Egils­stöðum? Alexanders­flugvöllur við Sauðár­krók hefur verið nefndur, en hvað um flug­völlinn í Aðaldal? Er möguleiki á mun lengri flug­brautum þar sem og þverbraut ásamt öflugri flugstöð?,“ spyr Anna.

Hún bendir á að þessi svæði eiga það sameiginlegt að eldvirkni er spáð þar á næstunni. „Ég fór að velta þessu fyrir mér í sambandi við aukna eldvirkni á Reykjanesi, en hún er að sjálfsögðu ekkert minni hérna. Síðasta eldgos á Tenerife var að mig minnir 1909, en talið er að það líði að meðaltali um hundrað ár á milli gosa á eyjunni fögru svo það er kominn tími á nýtt eldgos. Þá hafa verið tvö gos á þessari öld á Kanarí­eyjum, 2011 á El Hierro og 2021 á La Palma, en báðar eyjar teljast til vestur­eyjanna eins og Tenerife og La Gomera,“ segir Anna.

Svo kemur hin augljósa lausn. „Það er auðvitað til annar möguleiki á Íslandi sem er sá að lengja norður/suður flug­brautina í Reykjavík til norðurs yfir Tjörnina og breyta Alþings­húsinu í flugstöð, en þing­haldið verði flutt upp á Skólavörðu­stíg 9, en þar er ónotað pláss. Því yrði örugglega vel fagnað af sumum illa þenkjandi lands­byggðar­mönnum, samt ekki mér.

En þetta voru svona vanga­veltur dagsins. Hér er sko hugsað í lausnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning