Maðurinn sem var myrtur í Barðavogi í sumar lést af völdum höfuðáverka og áverka á andliti sem torveldaði öndun, þetta kom fram í ákæru héraðssaksóknara. Fjölskylda mannsins krefur Magnús Aron Magnússon, sakborning í málinu, um rúmlega 40 milljónir í bætur.Magnúsi er gefið að sök að hafa beitt manninn hrottalegu ofbeldi, fyrst inni á stigagangi hússins við Barðavog og síðan utan við húsið. Hann er meðal annars sagður hafa sparkað og traðkað margsinnis á höfði mannsins og brjóstkassa. Í ákærunni segir að maðurinn hafi látist af völdum áverka á höfði og áverka á andliti sem torveldaði öndun.
Samkvæmt frétt RÚV
andmælti Magnús verknaðarlýsingu í ákærunni þegar hún var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Bótakröfurnar í málinu nema rúmlega 40 milljónum króna. Magnús Aron hefur hafnað bótakröfum systkina mannsins en ekki kröfum barna hans og föður.
Verjandi Magnúsar fór fram á það við þingfestinguna á þriðjudag að réttarhaldið yrði lokað. Dómari við héraðsdóm hafnaði þeirri beiðni en með þeim fyrirvara að eitthvað nýtt kæmi fram sem gæti breytt þeirri ákvörðun.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir