Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hjón skotin til bana – Hörmulegur atburður í Mosfellssveit

Að morgni 29. ágúst 1978 barst lögreglunni símtal um að slys hafi átt sér stað á Þormóðs­stöðum í Mosfells­sveit. Lögreglan sendi menn á staðinn og á vettvangi blasti við þeim hörmuleg sjón.

Í frétt frá Morgun­blaðinu 30. ágúst sama ár segir: „Eftir því sem Morgun­blaðið hefur fregnað var það laust fyrir kl. 6 í gærmorgun að hringt var í lögregluna og tilkynnt að slys hefði orðið að Þormóðsdal í Mosfells­sveit, skammt frá Hafra­vatni. Þegar lögreglu­menn komu á staðinn fundu þeir mann og konu þar látin af skotsárum.“

Mynda­texti við frétta­ljós­mynd­ina: „Þor­móðs­dalur við Hafra­vatn, þar sem hinn hörmu­legi atburður gerðis t. Ljósm. Mbl. Rax.“ Mynd/skjá­skot

Hjónin í Þormóðsdal

Gísli Kristinsson þá 56 ára bjó ásamt konu sinni Sólveigu 38 ára að Þormóðs­stöðum í Mosfells­sveit.

Þá segir einnig í fréttinni frá Morgun­blaðinu að: „Þormóðs­dalur er í eigu Rannsókna­stofnunar land­búnaðarins en embætti veiði­stjóra ríkisins hafði þar aðstöðu til geymslu á hundum, sem eru í eigu embættisins. Hjónin, sem voru barnlaus, bjuggu í Þormóðsdal og hafði maðurinn umsjón með hundunum. Hann var á sextugsaldri en konan um fertugt. Að ósk rannsóknar­lögreglunnar er ekki unnt að birta nöfn hinna látnu í dag.“

Dagblaðið Vísir var einnig með frétt 30. ágúst og nafn­greinir þau látnu: „Maðurinn hét Gísli Kristinsson og kona hans Sólveig Jóhanns­dóttir. Gísli annaðist gæslu á hundum embættis veiði­stjóra, sem þarna eru geymdir. Var hann liðlega fimmtugur að aldri, en Sólveig um fertugt.“

Málið aldrei upplýst

Rannsókn málsins skilaði engu en vitað var að Gísli hafði hringt og tilkynnt lögreglu um slys. Miðað við aðstæður á vettvangi leit út fyrir að Gísli hafi ráðið hustru sinni bana, hringt því næst til lögreglu og síðan skotið sjálfan sig.

Í frétt morgun­blaðsins sagði: „Eftir fyrstu verks­ummerkjum að dæma var talið, að maðurinn hefði orðið konunni að bana, að því búnu hringt í lögregluna en síðan ráðið sjálfum sér bana. Rannsóknar­lögreglan vildi þó ekki staðfesta í gærkvöldi að atburða­rásin hefði verið með þessum hætti, en rétt er þó að taka fram að ekkert bendir til þess að þriðji aðili hafi komið við sögu þessa máls.“

Ástæðan fyrir verknaðinum var aldrei upplýst og því einungs hægt að velta því fyrir sér hvort að slysskot hafi orðið konu hans að bana og Gísli svo harmi sleginn að hann hafi ákveðið að taka eigið líf – eða hvort deilur hafi átt sér stað á milli hjónanna með fyrr­greindum afleiðingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning