Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Tónlistarkonan Laufey: „Þetta er eins og í kvikmynd“

(Mynd: Gemma Warren.)
(Mynd: Gemma Warren.)

„Ég trúi þessu eiginlega ekki. Ég bjóst ekki við þessu,“ segir Laufey Lin Jóns­dóttir tónlistar­maður en platan hennar Everything I Know About Love situr í tíunda sæti yfir vinsælustu nýju plöturnar á topplista Spotify í Banda­ríkjunum. „Tónlistin mín er í svolítið gömlum stíl; það er mikið af djass­tónum og klassískum tónum og markmið mitt hefur alltaf verið að koma eldri tónlist til nýrrar kynslóðar þannig að ég bjóst alls ekki við því að hún kæmist á einhvern topplista þar sem er oftast popp­tónlist. Þetta kom þess vegna mikið á óvart en þetta eru miklar gleði­fréttir.“

Laufey hefur vakið mikla athygli að undan­förnu. Hver er galdurinn á bak við þetta? „Ég veit það ekki. Ég held að það skipti máli að vera samkvæmur sjálfum sér; að halda áfram að gefa út tónlist og vera fljótur að bregðast við þegar stórir hlutir gerast. Ég held það sé líka mikilvægt þessa dagana að tónlistar­menn nýti samfélags­miðla og hleypi fólki inn í líf sitt. Segi sögu.“

Spilaði 15 ára með SÍ

Laufey er 23 ára og er dóttir hjónanna Jóns Sigur­geirssonar og Wei Lin sem er kínversk og fiðlu­leikari í Sinfóníu­hljómsveit Íslands. Afi hennar og amma í Kína voru tónlistar­prófessorar og dvaldi fjöl­skyldan almennt í Kína í tvo mánuði á hverju sumri. „Ég tala kínversku við mömmu mína þannig að Kína er mikill partur af mér.“ Laufey á tvíbura­systur, Júníu, sem er fiðlu­leikari og listrænn stjórn­andi.

Systurnar ólust upp í Reykjavík og í fimm ár í Washington þar sem faðir þeirra vann á þeim árum.

„Ég ólst upp í miklum tónlistar­heimi á Íslandi. Ég byrjaði að spila á píanó þegar ég var fjögurra ára og á selló þegar ég var átta ára og ég var í Tónlistar­skólanum í Reykjavík í meira en 10 ár. Ég byrjaði að syngja þegar ég var svona 12-13 ára.“

Sígildir fiðlu­tónar úr fiðlu móðurinnar hljómuðu mikið á heimilinu og segir Laufey að faðir sinn hafi hlustað mikið á djass­tónlist sem hafði líka áhrif. Hún segist hafa heillast mjög mikið af djass­tónlistinni. „Hún er pínu eins og klassísk tónlist en samt nýrri. Mér fannst hún svo rómantísk og falleg.“ Ella Fitzgerald og Billie Holiday voru í uppáhaldi. „Svo elskaði ég söngleikja­myndir eins og Singing in the Rain og Sound of Music.“

Mig lang­aði alltaf til að finna leiðir til þess að blanda þessum stílum ein­hvern veg­inn saman.

Laufey segist hafa verið með frekar djúpa rödd þannig að hún hafi tengt meira við djass­söngkonur heldur en popp­söngkonur.

„Það er alveg ljóst að ást mín fyrir eldri tónlist, klassískri tónlist og djass­tónlist hefur komið í gegnum mömmu mína af því að ég ólst upp í kringum þannig tónlist. Og mér finnst hún vera svo falleg og svo tímalaus. Og mig langar til að blanda svona tónlist saman við popp­tónlist því ég elska líka popp­tónlist og hlusta mikið á hana. Mig langaði alltaf til að finna leiðir til þess að blanda þessum stílum einhvern veginn saman.“

Laufey segist hafa verið 13-14 ára þegar hún byrjaði að syngja og spila í hljómsveit á sellóið sitt. Hún var 15 ára þegar hún spilaði jólalag á sellóið sitt á jóla­tónleikum Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands. Hún tók þátt í Ísland Got Talent árið 2014 og hún tók þátt í The Voice Iceland árið 2015. „Þetta var skemmtilegt. Ég tók þetta ekkert of alvarlega enda var ég frekar ung.“

Blanda

Tónlistin togaði af svo miklum krafti í Laufeyju að 19 ára gömul flutti hún til Boston til að hefja nám við hinn virta tónlistar­skóla Berklee College of Music. Þar hélt hún áfram selló­náminu auk þess að nema meðal annars tónsmíðar, pródúseringu og tónlistar­viðskipta­fræði.

Ég gaf út mitt fyrsta lag þremur vikum eftir að Covid-far­ald­ur­inn skall og þetta byrj­aði að rúlla frekar hratt.

„Þegar Covid-faraldurinn hófst var ég mikið heima og byrjaði að semja mjög mikið. Ég birti upptökur á netinu til að sjá hvort einhver myndi hlusta og það er alger draumur hvernig þetta gerðist allt. Ég gaf út mitt fyrsta lag þremur vikum eftir að Covid-faraldurinn skall og þetta byrjaði að rúlla frekar hratt.“

Og það rúllar enn og stoppar ekki.

„Ég spilaði alltaf mikið og mig langaði til að semja en ég átti svo erfitt með að gera það því að klassísk tónlist kennir manni nátt­úrlega að fylgja reglum og fylgja blaðsíðum og nótum. En í djass­tónlist og popp­tónlist er maður að skapa sjálfur en ekki endilega að fylgja einhverjum reglum á síðum. Þannig að það tók pínu tíma að aðlagast. Þegar ég flutti út og byrjaði í tónlistar­skólanum þá þurfti ég aðeins að læra að sleppa öllum þessum reglum sem ég var búin að vera að læra og leyfa mér bara að gera hvað sem var og prófa mig áfram sem ég náði loksins að gera.“

Það er stundum hægt að þekkja pensilför myndlistar­manna. Hvernig er hægt að þekkja tónlist Laufeyjar?

Ég spila á sell­óið í meira en helm­ingi af lög­unum.

„Ég held að það sé í gegnum þessa blöndu af djassi, klassík og popp­tónlist. Hún er einhvers staðar mitt á milli. Ég spila á sellóið í meira en helmingi af lögunum þannig að það er mikið af strengja­pörtum og textinn getur líka verið svolítið fyndinn. Ég geri frekar mikið grín að sjálfri mér.“

Hvers vegna?

„Ég held að lífið geti stundum verið svolítið alvarlegt og sérstak­lega þegar kemur að ástar­lögum. Sem ung kona getur maður verið svolítið skrýtinn og gert hluti sem maður mun hlæja að eftir nokkur ár. Og ég er bara strax að hlæja í textunum. Það á ekki að taka hluti of alvarlega. Lífið getur stundum verið svo erfitt.“

(Mynd: Gemma Warren.)

Ástarsorgin

Laufey semur textana við lögin sín.

„Ég átti svo erfitt með að semja texta og vissi ekki hvað ég átti að skrifa um af því að ég var svo sein að byrja að fara á stefnumót, hugsa um stráka og fara í partí. Það var ekki fyrr en ég flutti út að ég byrjaði að upplifa það að vera ung kona í nýrri borg og byrjaði að deita aðeins. Og ég hafði loksins eitthvað til að semja um. Ég var í pínu ástarsorg þegar ég gaf út fyrsta lagið mitt, Street by Street. Það var strákur sem hætti með mér í Boston og ég einhvern veginn upplifði það að hata alla borgina af því að það minnti mig allt á hann. Ég hugsaði með mér að ég yrði að semja eitthvað um þetta svo mér liði betur. Þannig að ég samdi Street by Street og textinn fjallar um að láta ekki einhvern strák eða slæma ímynd eyði­leggja heila borg fyrir manni. Þetta lag var mikið „turning point“ fyrir mig bæði sem tónlistar­konu og líka sem manneskju.

Ég tala alveg beint út frá hjart­anu í text­unum.

Ég hef alltaf verið mjög hrein­skilin manneskja en ég átti erfitt með að vera hrein­skilin með tónlist; en eftir þetta hef ég ef eitthvað er verið of hrein­skilin. Ég tala alveg beint út frá hjartanu í textunum.“ Hún segir að þrátt fyrir allt sé augljóst að hún hafi aldrei verið almennilega ástfangin þannig séð. „Ástar­sorgin mín hefur falist í að maður er að missa eitthvað sem maður var ekki einu sinni með. Það er þannig tilfinning sem getur verið svo erfið. Ég held að margt ungt fólk tengi við hvernig sé að vera leiður yfir einhverju sem var ekki einu sinni til dæmis samband.“

Það var í lok árs 2019 og í byrjun árs 2020 sem þetta listaverk, Street by Street, varð til.

This view used to bring

A smile to my face

Lately it’s done nothing but

Remind me of the way

The way that you used to

Give me butterflies

Took me 21 days to

Walk our former paradise

Paradise, bu-bu-bu-day duh

Step by step, brick by brick

I’m reclaiming what’s mine

This city is way too small

To give away to just one guy

Street by street, breath by breath

From the Back Bay to the sky

I’m taking back my city

I’m taking back my life

Annað og nýrra lag um ástarsorg sem tengist öðrum strák heitir Let You Break My Heart Again. Heil sinfóníu­hljómsveit spilar undir. „Ég fékk að taka það upp með Fílharmóníu­hljóm­sveitinni í London. Það var klikkað af því að það er svo góð hljómsveit.“

Feeling kind of sick tonight
All I’ve had is coffee and leftover pie
It’s no wonder why

Still you take up all my mind
I don’t even think that you care like I do
I should stop
Heaven knows I’ve tried

One day
I will stop falling in love with you
Some day
Someone will like me like I like you

Until then I’ll drink my coffee
Eat my pie
Pretend that we are more than friends
Then of course I’ll let you break my heart again

Skemmtilegt, skrýtið og alls konar

Berklee College of Music. Hvaða máli skiptir það fyrir Laufeyju að hafa farið í svona virtan tónlistar­skóla?

Það var ákveðið tákn um að þora að fara í tónlist. Ég þorði ekki að verða söngkona og tónlistar­kona og það var ekki fyrr en ég fékk fullan styrk að fara í Berklee að ég hugsaði að þetta væri séns sem ég yrði að grípa. Ég hefði eiginlega engu að tapa. Ég hafði áður verið í sígildu tónlistar­námi en í Berklee var aðeins meira popp og djass og ég kynntist þar fólki frá ýmsum löndum sem spilaði öðruvísi tónlist. Það var gott fyrir mig.“

Laufey útskrifaðist frá Berklee í fyrra og hefur búið í Los Angeles í eitt ár. „Pródúserarnir eru hér og allir lista­mennirnir. Þetta er staðurinn til að vera á ef maður ætlar að vera ungur í tónlist þó þetta sé svona langt frá Íslandi. Ég verð að viðurkenna að ég hef farið fjórum sinnum til Íslands á þessu ári sem er alveg óeðlilegt miðað við hvað þetta er langt í burtu.“

27. októ­ber kemur hún fram með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands auk þess að koma fram á Iceland Airwaves.

Laufey kemur til Íslands í enn eitt skiptið í haust en fram undan er þriggja mánaða tónleika­ferð um Banda­ríkin og Evrópu en 27. október kemur hún fram með Sinfóníu­hljómsveit Íslands auk þess að koma fram á Iceland Airwaves.

Hvernig er lífs­stíllinn í LA?

„Þetta er eins og í kvikmynd. Ég verð að viðurkenna það. Sólin skín alltaf og ég bý nálægt ströndinni. Maður er alltaf að sjá eitthvað frægt fólk að labba um. Maður fer í þessi klikkuðu partí í þessum fallegum húsum og hittir skemmtilegt, skrýtið og alls konar fólk. Ég umgengst aðallega listamenn þannig að það er mjög skemmtilegt að vera alltaf í kringum fólk sem er að búa til tónlist eða kvik­myndir eða er ljós­myndarar. Þetta er alger draumur. En það er mjög erfitt að vera svona langt að heiman á svona ungum aldri. Ég bjóst ekki við því.“

Hvað ber að varast í þessum heimi?

„Ég held að maður verði að passa sig á að sökkva ekki of mikið inn í einhverja frægð. Það eru margir sem detta þá auðveldlega inn í slæma ávana. Ég reyni alltaf að muna hver ég er og hvað ég er að gera hérna. Það er mikilvægt að umkringja sig og vinna með góðu fólki.“

Allir upp­á­halds­tón­list­ar­menn­irnir mínir hafa spilað áður í Jimmy Kimmel.

Laufey flutti í janúar lag sitt Like the Movies í spjall­þætti Jimmy Kimmel sem ku vera einn af vinsælustu spjall­þáttunum vestanhafs. „Það var mikill heiður að fá að syngja í þessum þætti. Allir uppáhalds­tónlistar­mennirnir mínir hafa spilað áður í Jimmy Kimmel. Ég held að Íslendingar hafi í fyrsta skipti farið að taka eftir mér eftir að ég kom þar fram. Ég fékk að vita kvöldið áður að ég væri að fara að spila í þessum þætti af því að hljóm­sveitin sem átti að koma fram var með Covid þannig að umboðs­maðurinn minn sagði mér að ef þeir yrðu líka jákvæðir morguninn eftir þá myndi ég koma fram næsta morgun. Klukkan var orðin sex um kvöldið þegar hann hringdi í mig og sagði að ég ætti að fara heima og æfa mig. Þess vegna var ég ein og ekki með neina hljómsveit,“ segir Laufey sem spilaði á flygil á meðan hún söng þetta djass­skotna lag sitt.

Maybe one day I’ll fall in a bookstore
Into the arms of a guy
We’ll sneak into bars
And gaze at the stars
Surrounded by fireflies

Oh, I’d like to sleep in ’til two on a Sunday
And listen to the bluebirds sigh
Get soaked in the rain
And smile through the pain
Slow dance under stormy skies

Maybe I’m just old-fashioned
Read too many fairytales
It’s no wonder I’ve had no luck
No one’s ever good enough
I want a love like I’ve seen in the movies
That’s why I’ll never fall in love

Oh, maybe I’m just old-fashioned
Read too many fairytales
It’s no wonder I’ve had no luck
No one’s ever good enough
I want a love like I’ve seen in the movies
That’s why I’ll never fall in love

(Mynd: Gemma Warren.)

Hringdi grátandi heim

23 ára og farin að vekja mikla athygli. Í 10. sæti á Spotify vestra. Þess má geta að í fyrra sá Laufey um tónlistar­þátt á BBC Radio 3 þar sem hún lagði áherslu á sígilda tónlist, djass­tónlist og popp­tónlist þar sem söngvarar eru í aðal­hlutverkum.

Hverjir eru draumarnir? „Ég veit það ekki. Allt sem ég hefði sagt fyrir ári síðan er ég eiginlega búin að upplifa. Það væri geggjað að vinna Grammy-verðlaun einhvern tímann. Það er draumurinn. Eða vera bara tilnefnd. Svo langar mig til að semja kvikmynda­tónlist. En annars langar mig til að halda áfram að kynna fólki fyrir djassi og klassískri tónlist og halda áfram að lifa lífinu og semja tónlist og texta um það.“

Þetta var frekar erfitt fyrir and­legu heils­una.

Laufey er spurð hvaða lífs­reynsla hafi mótað hana mest. Hún segir að það hafi verið frekar mikið áfall að flytja 19 ára gömul til Banda­ríkjanna og yfirgefa fjöl­skylduna á Íslandi. „Ég er mjög náin fjöl­skyldunni minni og sérstak­lega tvíbura­systur minni. Þetta var frekar erfitt fyrir andlegu heilsuna. Það tók mikið á og mig langaði alltaf til að fara heim og hringdi grátandi í mömmu og pabba á hverjum einasta degi. Mér fannst ég ekki passa alveg inn í heiminn sem allir þessir amerísku krakkar voru í. Þannig að það var pínu erfitt. En ég lærði svo mikið af því og ef ég hefði ekki farið í gegnum það þá hefði ég ekki samið þessa tónlist. Og ef ég hefði ekki samið þessa tónlist þá væri ég ekki að gera það sem ég er að gera í dag. Þetta tengist allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning