Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Húsnæðiskreppa í borginni: „Stofna byggingarfélag og fjarlægja milliliði“

Trausti Breiðfjörð Magnússon og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins. Mynd/skjáskot.
Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd/skjá­skot.

Borgar­stjórnar­flokkur Sósíal­ista kynnir tillögu sína í húsnæðis­málum  – í borgar­stjórn í næstu viku. Í henni felst að Reykja­víkurborg stofni byggingar­félag. Samkvæmt Sósíalista­flokksins þekkist þetta fyrir­komulag í borgum víða í kringum okkur og hefur hjálpað við að koma skikk á húsnæðis­kreppuna.

Tillaga borgar­fulltrúa Sósíalista­flokks Íslands um stofnun byggingar­félags
Reykja­víkurborgar

„Borgar­stjórn samþykkir að fela viðeigandi sviðum innan borgarinnar að hefja nú þegar
undir­búning að stofnun byggingar­félags Reykja­víkurborgar, sem hefur það að
markmiði að byggja íbúðir fyrir þær manneskjur og fjöl­skyldur sem eru í mestum
húsnæðis­vanda. Markmið byggingar­félagsins verði að sjá um allt ferlið frá upphafi til
enda og er umhverfis- og skipulags­sviði falið að skoða hvernig megi útfæra slíkt, í
samvinnu við velferðar­svið og fjármála- og áhættu­stýringar­svið borgarinnar. Þar þarf
að skoða innflutning byggingar­efnis og möguleg magn­innkaup sem standa þar til boða
og útfæra hugmyndir um ráðningar í verkin. Hlutverk byggingar­félagsins verði að sjá
um uppbyggingu íbúðanna á borgar­landi og leigja út íbúðirnar í óhagnaðar­drifnum
rekstri.“

Sósíal­istar í borginni vilja að uppbyggingin og útleigan komi beint inn á borð borgarinnar en með því megi fjarlægja þá milliliði sem leitast við að græða á húsnæðis­uppbyggingu og útleigu íbúða út úr jöfnunni, sem skilar sér í lægra leigu­verði fyrir borgarbúa.

Greinar­gerð:

„Húsnæðis­kreppa ríkir í borginni þar sem mikill skortur er á íbúðum, slíkt hefur sprengt
upp leiguverð á almennum leigu­markaði og gerir manneskjum í húsnæðis­vanda erfitt
fyrir. Það er nauðsynlegt að borgin grípi inn í aðstæður af aukinni alvöru og sjái um að
byggja fyrir borgarbúa sem eru í mestri neyð. Með uppbyggingu byggingar­félags
Reykja­víkurborgar getur borgin skapað húsnæðis­félag sem er algjör­lega aðskilið
fyrir­tækjum með gróða­sjónarmið í huga. Eins og staðan er núna koma margir aðilar
að uppbyggingu húsnæðis í borginni. Með því að koma hluta af uppbyggingunni og
útleigunni beint inn á borð borgarinnar má fjarlægja þá milliliði sem leitast við að græða
á húsnæðis­uppbyggingu og útleigu íbúða út úr jöfnunni, sem skilar sér í lægra
leigu­verði fyrir borgarbúa. Það er nauðsynlegt að tryggja að nægar íbúðir séu í boði
en húsnæðis­kreppan grefur sífellt undan lífs­kjörum almennings, þó auðvitað mest
hinna verst settu og það er á ábyrgð borgarinnar. Það er fullreynt að líta til markaðarins
í von um að hann veiti lausn á vandanum. Við þurfum að koma félags­legum lausnum
í framkvæmd og byggingar­félag Reykja­víkur yrði þar kröftug viðbót inn í
húsnæðisuppbygginu á meðan unnið er að því að styrkja önnur óhagnaðar­drifin
leigu­félög og styðja íbúða­uppbyggingu á vegum verkalýðs­félaganna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum