Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Pírati skýtur frétt Moggans í kaf: „Í fyrsta lagi að hætta að líta á fólksfjölgun sem ógn“

Helgi Hrafn Gunnarsson.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son.

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata svarar frétt Morgun­blaðsins um fjölgun flótta­fólks á Íslandi, fullum hálsi.

Helgi Hrafn setti frétta­hlekk í dag á Facebook-vegg sinn frá mbl.is en í fréttinni er haldið fram að einar Vestmanna­eyjar hafi sótt um og muni sækja um hæli á næstu árum hér á landi. Segir Píratinn þetta rangt og svarar í nokkrum liðum.

„1. Nei, Vestmanna­eyjar eru um 4.400 manns, ekki 3.000. Þannig að það eru EKKI einar Vestmanna­eyjar að sækja um hæli árlega,“ skrifaði Helgi Hrafn og hélt áfram:
„2. Það FÆÐAST hinsvegar á Íslandi sirka 4.500 manns á ári, sem eru sirka einar Vestmanna­eyjar. Þau börn borga ekki krónu í tekju­skatt, útsvar, trygginga­gjald eða fjármagns­tekjuskatt og leggja varla nokkurn skapaðan hlut til lands­framleiðslu fyrr en eftir tæpa tvo áratugi í fyrsta lagi, en allan þann tíma kosta þau ómælt vinnutap af hálfu foreldra sinna. En enginn kvartar undan því að innviðir Íslands ráði ekki við allar þessar barn­eignir; nei, þvert á móti er áhyggju­efni hversu lítið af börnum fæðist, ef eitthvað er. Þetta undir­strikar það, að óttinn við innflytjendur snýst ekki um álag á innviði eða neitt slíkt, heldur áhyggjur af því að innflytjendur séu öðruvísi fólk en innfæddir Íslendingar. Það er það sem málið snýst um, en ekki einhverjar yfir­vegaðar, föðurlegar raunsæis­áhyggjur af álagi á innviði. Jafnvel ef það væru að bætast við 3.000 manns á Íslandi í gegnum hælis­leitenda­kerfið myndi Ísland ráða við það.“

Í þriðja liðnum bendir Helgi Hrafn á þá rang­hugmynd margra að 3.000 manns bætist við hér á landi þó svo margir sæki um hæli hér. „Það er líka rangt að það „bætist við“ 3.000 manns á ári í neinum skilningi. Þetta eru umsóknir um hæli, ekki sá hópur sem fær umsókn sína samþykkta, og ekki aukning umsókna heldur heildar­fjöldi þeirra yfir árið. Það ætti að vera fjanda­kornið augljóst að hingað getur fólk ekki flutt með því einu að sækja um alþjóð­lega vernd, og vísa ég þá í linnulausar fréttir af viðurstyggilegri hörku kerfisins við það að halda fólki úr landinu.“

Í fjórða liðnum talar hann um kostnaðinn við að halda fólki frá landinu: „Það er hinsvegar hárrétt að benda á vitfirrtan kostnaðinn sem fer í að halda fólki úr landi, þ.e. kostnaðinn við hælis­leitenda­kerfið.“

En hvaða lausn hefur Helgi Hrafn á þessu öllu saman? „Í fyrsta lagi að hætta að líta á fólks­fjölgun sem ógn. Í öðru lagi að búa okkur undir aukinn fjölda fólks á Íslandi næstu áratugina – því ekkert bendir til að þessu linni, þetta mun bara aukast. Í þriðja lagi reyna að nýta tækifærin sem fylgja auknu fólki betur, með því að gera fólki auðveldara að fá menntun sína og reynslu metna, auka tungu­málanám verulega (bæði íslensku og ensku), tryggja gott aðgengi að menntun, endur­menntun og leiðsögn um íslenskt samfélag. Í fjórða lagi að vera bara þokkalega þakklát fyrir það að þetta fólk kjósi að flytja hingað frekar en eitthvert annað.

Og síðast en ekki síst, að læra að segja hæ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum