Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Öryrkjabandalagið slær nýjan tón: „Útrýma takmarkandi forskeytum“

ÖBÍ réttinda­samtök eru heildar­samtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta mann­sæmandi lífskjara og jafnra möguleika til sjálf­stæðs lífs og virkrar samfélagslegrar þátttöku, óháð líkamlegu og andlegu atgervi. Fatlað fólk er í öllum fjöl­skyldum, öllum atvinnu­greinum og á öllum skóla­stigum.

Með reglulegu millibili hafa áherslur og aðferðir ÖBÍ verið endur­skoðaðar með tilliti til tíðaranda, stöðu réttinda og þeirra verkefna sem fyrir liggja. Hluti af því er að skoða ásýnd samtak­anna og umgjörð. Nú er lokið slíkri endur­mörkun til næstu ára og merki, útlit og tónn verið endur­hönnuð til móts við nýja tíma. Samhliða þessum breytingum hefur nýr vefur ÖBÍ verið opnaður þar sem höfuð­áherslan er á aðgengi, notenda­upplifun og öfluga miðlun.

Nánar um nýja ásýnd

Aðal­liturinn í nýrri ásýnd er fjólublár, sem er orðinn einkennis­litur réttinda­baráttu fatlaðs fólks víða um heim. Hann er alþjóðlegt tákn fyrir hugrekki og nýja nálgun í barátt­unni fyrir jöfnum réttindum og samfélagslegri þátttöku á forsendum hvers og eins.

Merkið er kröftugt og mjúkt í senn. Skáskurður í einum upphafs­stafnum minnir á að fatlað fólk er að jafnaði 15% mann­fjöldans og að þótt vanti upp á að stafurinn b sé heill þá þjónar hann sínu hlutverki jafn vel og aðrir. Að auki fær skamm­stöfunin undir­titilinn “réttinda­samtök” og sem undir­strikar það hlutverk samtak­anna að sækja rétt fatlaðs fólks.

Nánar um nýjan tón

Um leið er með merkinu sleginn upphafs­tónn nýrrar hugsunar í markaðs­efni ÖBÍ sem gengur út á áherslu á hina jákvæðu hluta. Þannig fá neikvæð forskeyti hvíld meðan jákvæða hlutanum er haldið fram. Lögð er áhersla á orkuna, jöfnuðinn, réttindin, meðan ör-, ó- og for- hverfa í bakgrunni. Málið er að útrýma þessum takmark­andi forskeytum, ef ekki eiginlega þá í það minnsta samfélags­lega. Krafan er óréttlæti og ójöfnuður og sterkasta vopnið í barátt­unni er ósýnileiki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum