Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Malagafanginn – Þegar íslenska þjóðin safnaði pening fyrir góðkunningja lögreglunnar

Íslendingar hafa lengi verið þekktir fyrir miskunsemi og gott hjartalag þegar kemur að lítilmagnanum. Þetta sést best þegar safna þarf fyrir einhverju misþörfu, til dæmis þegar safna þarf pening fyrir sveltandi börn úti í heimi eða þegar hljóðfæra­leikarar vilja bestu mögulegu hljóð­færin, svo eitthvað sé nefnt. Árið 1985 söfnuðu Íslendingar pening fyrir Sigurð Stefán Almarsson, með hjálp DV en hann hafði orðið fyrir því óláni að vera hand­tekinn á Spáni vegna gruns um að hann hefði brotist inn í íbúðir Íslendinga þar í landi. Var hann í fjöl­miðlum kallaður Malagafanginn og má segja að hann hafi verið smástirni um hríð.

DV hóf umfjöllun um Malagafangann þar sem hann lýsti slæmum aðbúnaði í fangelsinu en hann kvaðst alsaklaus af glæpnum sem hermt var upp á hann. Vöktu fréttirnar svo mikla athygli að fólk vildi endilega fá að senda honum pening og hafði DV milli­göngu um þær sendingar. Þannig skrifaði einn lesandi Dagblaðs Vísis á sínum tíma:

3337-6995 hringdi: Mér finnst ábyrgðar­laust af íslenskum stjórn­völdum aö frelsa ekki manninn sem er í haldi í Malaga. Hann er að niður­lotum kominn, tauga­kerfi hans er í rústum. Hér er um mann­réttindamál að ræða. Maðurinn er íslenskur þegn og það þarf að koma honum út úr þessum vandræðum hið bráðasta. Ég hvet fólk til aö láta heyra í sér vegna þessa máls.

Og svo virðist sem íslensk stjórn­völd hafi tekið þetta til sín því DV sagði síðar frá heimsókn starfs­manns utan­ríkis­ráðuneytisins í fangelsið á Malaga:

Utan­ríkis­ráðuneytið: „Ekki væsir um Malagafangann”

„Þótt drengurinn sé grunaður um innbrot og þjófnað er að sjálfsögöu óviðunandi að ekki sé búið að rétta í málinu eftir heila 8 mánuði. Það brýtur meira að segja í bága við spænsk lög,” sagði embættismaöur í utan­ríkis­ráðuneytinu um málefni Malagafangans. „En það á ekki að væsa um hann í fangelsinu. Við höfum haft milli­göngu um peninga­sendingar til hans, bæði frá aðstand­endum og óskyldum. Þetta er maður sem á eftir óuppgerðar sakir hér á landi. Ég held að hann sé að bera saman aðstæður á Litla-Hrauni og þessu spænska fangelsi og honum líkar bersýn­lega ekki sá saman­burður,” sagði embættis­maðurinn. Í kjölfar skrifa DV um ömurlega aðstöðu þessa íslenska fanga á Malaga hafa fjölmargir einstaklngar tjáð sig reiðubúna til aö láta fé af hendi rakna svo hægt sé að kaupa fangann út. Sjálfur segir Malagafanginn í bréfum, er borist hafa til DV, að verðið sé 100 þúsund krónur. Síðast þegar fréttist hafði íslenska söfnunar­fólkinu tekist að öngla saman 60 þúsund krónum. -EIR.

En Malagafanginn var ekki allur þar sem hann var séður því upp kom grunum um að hann væri að stunda ávísana­fals innan rimla fangelsisins:

Malagafanginn ekki af baki dottinn:

Læðir ávísunum út á milli rimlanna

Allar likur á benda til þess að Malagafanginn stundi ávísana­fals í klefa sínum í spænska fangelsinu í Malaga. Þar hefur hann sem kunnugt er setið á tíunda mánuð án þess að koma fyrir dómara. „Ég keypti ávísun að upphæð 5.000 krónur í janúar síðastliðnum en fékk hana í hausinn frá bankanum nokkrum dögum síðar,” sagði kaupmaður í Mosfells­sveit í samtali við DV. „Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ávísunin var undir­rituð af Malagafanganum í bak og fyrir og dagsett 30.12.’84.” Ávísun þessi er nú í vörslu Rannsóknar­lögreglu rikisins auk annarra er Malagafanginn gaf út án þess að innstæða væri fyrir hendi. Alls eru þær 8 talsins að upphæð 95.000 krónur, skrifaðar á Spáni en aðeins ein eftir að pilturinn var settur á bak við lás og slá. „Megnið af ávísununum lenti i höndum okkar fyrir hreina tilviljun. Við vorum að gera fíkniefna­leit á pilti er var að koma frá Spáni og fundum þá í fórum hans fjölda ávísana undir­ritaðar af Malagafanganum,” sagði rannsóknar­lögreglu­maður aðspurður. „Það átti að koma þessu i pening hérlendis, alls 80.000 krónur.”

Að lokum kom óskabarn þjóðarinnar, Malagafanginn, heim á íslenska grund. Og það leið ekki langur tími þar til hann tók að brjóta af sér hér á landi. Dagfari skrifaði pistil um málið sem var marínerað í kaldhæðni og húmor:

Malagafanginn á heima­velli

Í fyrra­vetur bárust þær fréttir hingað til lands að ungur Íslend­ingur hefði verið hand­tekinn suður á Spáni, nánar tiltekið á Malaga, og þar hefði hann mátt dúsa í fangelsi mánuðum saman upp á vatn og brauð. Þessar fréttir fengu mjög á landann sem er góðhjartaður og miskunn­samur og má ekki aumur sjá á nokkrum manni. Áður en varði var hafist handa um almenna fjár­söfnun fyrir Malagafangann og gekk maður undir manns hönd að leysa hann úr haldi.
Ekki dró það úr vorkunnsemi Íslendinga að við og við bárust bréf frá fanganum í prísundinni, þar sem hann lýsti á dramatískan hátt hörmungum sínum og aumkunar­verðri vistinni innan fangelsis­múranna, og bjuggust menn við því á hverrl stundu að tilkynning bærist um dauða fangans vegna vosbúðar og pyndinga spánskra fangelsis­yfirvalda.
Eftir margra mánaða harðræði og elnangrun barst sú gleði­fregn til Íslands að fanginn væri loks laus og var honum jafn­skjótt sendur farmiði þar sem fanglnn var boðinn velkominn heim.
Í öllu því írafári, sem yfir gekk til að forða þessum veslings einstæðingi og saklausa fóraarlambi úr höndum spánskra illmenna, láðist alveg að geta þess hvers vegna manninum hafði verið stungið inn. Helst var þó að skilja að meintur glæpur hans hefði verið sá, að hafa verið gripinn í misgáningi fyrir refsibrot, sem einhver annar hefði framið.
Aldrei hefur almennilega verið upplýst hvað endanlega olli þvi að fanginn slapp úr prísundinni. Í Helgar­póstinum í síðustu viku er hins vegar haft við þennan fanga viðhafnar­viðtal, opinskátt og hrein­skilið, eins og nú tíðkast, og þar kemur fram að það var enginn annar en sjálfur utan­ríkis­ráðherra sem gekk í málið í tilefni af helmsókn forseta Íslands til Spánar. Má af þessu sjá að Malagafanginn hefur verið látinn laus í skiptum fyrir forsetann og diplomatískan frið milli Spánar og Íslands. Af þessu er ljóst að Malagafanginn er og hefur verið þunga­vigtarmaður í pólitíkinni og ekki nema von að við hann séu birt viðhafnar­viðtöl eftir heim­komuna.
Það láðist aftur á móti að taka það fram í þessu sama viðtali að Malagafanginn hefur gert það gott eftir að hann kom heim. Munu fáir menn hér á landi hafa getið sér jafngott orð hjá lögreglunni í Reykjavík sem þessi víðfrægi og stór­pólitíski Malagafangi því varla hefur það innbrot verið framið hér á höfuð­borgar­svæðinu að slóðina mætti ekki rekja til þessa sama manns. Um það leyti, sem viðtalið er tekið, mun kappinn hafa setið í Síðu­múlanum fyrir margföld innbrot og aðra smáglæpi sem hann telur óþarfa að rekja í viðtölum við í fjölmiðla.
Sýnir það vel muninn á spönskum fangelsum og íslenskum að meðan hann þarf að smygla út bréfum úr prísund sinni á Spáni býður hann blaða­mönnum til viðtala hér í Siðumúlanum. Í viðtalinu kemur fram að fangelsis­vistin hafi ekki verið jafnslæm á Spáni eins og af er látið því yfir fangelsis­múrana rigndi yflr hann og samfangana marg­földum skömmtum af hvers kyns fíkni­efnum sem héldu bæði honum og öðrum fangelsis­limum við efnið. Er helst að skilja að það hafi verið óþarfa afskiptasemi hjá íslenska utan­ríkis­ráðherranum að skipta á sér og forsetanum og hrekja sig úr þessu ókeypis gósenlandi fíkni­efnanna.
Malagafanginn heldur því statt og stöðugt fram að hann sé saklaus af ákærum á hendur sér fyrir þjófnað á Spáni. Sú afneitun er afar trúverðug enda varla við því að búast að maður, sem lætur greipar sópa um íslensk heimili, nenni að vera að stela einhverju smáræði af bláfá­tækum Spán­verjum. Sann­leikurinn er líka sá að menn fá ekki blaða­viðtöl við sig á forsíðum nema þeir steli af Íslendingum á heima­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum