Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Blaðamenn Morgunblaðsins tókust á um Sjálfstæðisflokkinn

Kolbrún Berg­þórs­dóttir skrif­aði harða grein um flokk­inn og fékk ákúrur. Hún segir ekki um alvar­legt atvik hafi verið að ræða.

Kolbrún lét Sjálfstæðisflokkinn finna fyrir því í pistli
Kolbrún lét Sjálf­stæð­is­flokk­inn finna fyrir því í pistli Andrés Magn­ús­son var í kjöl­farið ræstur út Mynd: RÚV/Skjáskot

Blaða­menn hafa á und­an­förnum vikum fengið mikla gagn­rýni fyrir skrif sín um mál Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur en Kolbrún Berg­þórs­dóttir, blaða­maður Morg­un­blaðs­ins, lenti því frá eigin rit­stjóra sam­kvæmt Orðinu á göt­unni á DV.is.

Ástæðan er sú að Kolbrún skrif­aði pistil í helg­ar­blað Morg­un­blaðs­ins síð­ustu helgi þar sem hún gagn­rýndi Hildi Sverr­is­dóttur, þing­flokks­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, harð­lega í sam­hengi við mál Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, þing­manns og fyrr­ver­andi ráð­herra.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ákveðið að gera þetta mál að póli­tísku máli. Það skal djöfl­ast í for­sæt­is­ráð­herra eins og hægt er og saka Kristrúnu Frosta­dóttur um illar hvatir. Flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Hildur Sverr­is­dóttir, hefur kom­ist nálægt því að gjald­fella sjálfa sig með stöð­ugu rápi upp í ræðu­stól Alþingis og farið þar með sömu fárán­legu ásak­an­irnar um meint trún­að­ar­brot og lygar for­sæt­is­ráð­herra,“ skrif­aði Kolbrún.

Hún hélt áfram: „Maður hlýtur að spyrja sig á hvaða leið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé. Þjóðin hafn­aði flokknum ræki­lega í síð­ustu kosn­ingum og sitt­hvað hefðu sjálf­stæð­is­menn átt að læra af því. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa hjalað um það í all­nokkurn tíma að breikka þurfi flokk­inn og koma stefnu­málum vel til skila svo að þjóðin fáist til að kjósa flokk­inn. Nú virð­ist eng­inn hafa tíma til að sinna þessum brýnu verk­efnum því það er talið svo ofur nauð­syn­legt að gala á for­sæt­is­ráð­herr­ann.“

Samkvæmt frá­sögn DV var Andrés Magn­ús­son, full­trúi rit­stjóra, sendur til Kol­brúnar til að láta vita að það væri ekki í lagi að blaða­menn skrifi svona um Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þá hafi Kolbrún hækkað rödd sína tals­vert og sagt að ef yfir­menn hennar hefðu eitt­hvað út á hennar skrif að setja gætu þeir rekið hana og borgað henni sex mán­aða upp­sagn­ar­frest.

Í sam­tali við Mannlíf stað­festi Kolbrún sögu DV í grófum dráttum en vildi ekki meina að um alvar­legt atvik hafi verið að ræða.

„Við Andrés höfum mjög ólíkar skoð­anir á mjög ólíkum hlutum þannig að það er ekk­ert nýtt að það hafi komið til orða­skipta okkar á milli og við erfum það ekki hvort við annað. Við erum búin að þekkj­ast í ára­tugi og það er ekk­ert nema gott á milli okkar,“ sagði Kolbrún skelli­hlæj­andi í sam­tali við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum