Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Hafið gleypti Hólmaborgina með öllu: „Ég tel að þar hafi verið valinn maður í hverju rúmi“

Hólmaborg SU-555
Hólma­borg SU-555 Mynd: Lubbi

Þann 30. jan­úar árið 1956 lagði Hólma­borgin SU-555 af stað með fjög­urra manna áhöfn, frá Nes­kaups­stað á leið sinni til Skotlands þar sem setja átti nýja vél í skipið. Þann 2. febr­úar barst neyð­ar­boð frá skip­inu til loft­skeyta­stöðv­ar­innar í Þórshöfn í Færeyjum. Og síðan spurð­ist aldrei aftur til hennar.

Hólma­borg SU-555

Þann 1. apríl sama ár skrif­aði Friðrik Steins­son pistil um slysið í Sjó­manna­blað­inu Víkingur en fór hann meðal ann­ars yfir mann­kosti allra í áhöfn Hólma­borg­ar­innar:

Hinn 30. jan­úar síð­ast­lið­inn lagði m.b. Hólma­borg, Eski­firði, af stað frá Nes­kaup­stað og var
ferð­inni heitið til Pet­er­head á Skotlandi, en þar átti að setja nýja vél í skipið. 2. febr­úar heyrði tog­ar­inn Aust­firð­ingur í tal­stöð Hólma­borgar, sem þá var að kalla í loft­skeyta­stöð­ina í Þórshöfn í Færeyjum. Þetta er  það síð­asta, sem til Hólma­borgar hefur spurzt.

Eftir því, sem síðar frétt­ist hafði loft­skeyta­stöðin í Þórshöfn ekki heyrt í skip­inu. 8. febr­úar var leit hafin. Tóku þátt í leit­inni: tog­ar­arnir Aust­firð­ingur og Goðanes, tvö skip frá landhelgisgæzlunni, og tvö veð­ur­at­hug­unaskip. Flug­vélar frá landhelgisgæzlunni, Kefla­vík­ur­flug­velli og brezkar flug­vélar tóku mik­inn og góðan þátt í þess­ari leit. Þá lögðu íslenzkar far­þega­flug­vélar, er fóru á milli landa, lykkju á leið sína til að huga að skip­inu. Skipu­lögð leit stóð í átta daga, en þó var tals­vert leitað eftir það. Mun leitin að Hólma­borg vera ein­hver sú víð­tæk­asta, sem gerð hefur verið til að leita að íslenzku skipi. Leitin bar ekki árangur, þrátt fyrir að góð leit­ar­skil­yrði voru flesta dag­ana, sem leitað var. Aðstand­endur þeirra, sem á Hólma­borg voru, hafa beðið að koma á fram­færi þökk til Slysa­varna­fé­lags Islands fyrir ágæta for­göngu um leit­ina og til allra þeirra, er þátt tóku í henni.

Hólma­borg var smíðuð í Svíþjóð árið 1946 og var 92 smá­lestir að stærð. Eigandi var
Hólma­borg h.f., Eski­firði. Fyrir skömmu varð breyt­ing á hluta­eign í félag­inu þannig, að nú
var skip­stjór­inn, Jens Jensen, aðal­eig­andi og útgerð­ar­stjóri. Jens hafði verið skip­stjóri á
Hólma­borg allan tím­ann frá því skipið kom til lands­ins.

Jens skip­stjóri

Á Hólma­borg voru fjórir menn. M.b. Hólma­borg. Skip­stjór­inn hét fullu nafni Jens Pétur Thorberg. Hann var fæddur í Reykj­ar­firði 23. sept. 1908, sonur Þórunnar Mark­ús­dóttur og Vilhelms Péturs Jensen, er þá rak verzlun á Reykj­ar­firði. Skömmu eftir að Jens fædd­ist, flutt­ust for­eldrar hans til Eski­fjarðar, en þar rak faðir hans verzlun og útgerð um ára­bil. Þórunn er látin fyrir nokkrum árum, en Vilhelm Jensen rekur heild­sölu í Reykja­vík. Árið 1934 kvænt­ist Jens eft­ir­lif­andi konu sinni Önnu Finn­boga­dóttur skip­stjóra Jóns­sonar á Fáskrúðs­firði. Þeim varð sex barna auðið, tvö börn misstu þau ung, en þrjú eru á lífi, fjórtán, níu og fjögra ára. Jens Jensen, eins og hann var oft­ast nefndur, gerð­ist snemma for­maður, tók þá smá­skipa­próf, en síðar, árið 1946, tók hann fiski­skipa­próf við Stýri­manna­skól­ann.

— Jens var hvers­dags­lega hlé­drægur og dulur í skapi, en hafði þó næmt auga og eyra fyrir því, sem bros­legt var. Hann var gæddur ríkri list­hneigð. Á bernsku- og ung­lings­árum fékkst hann tals­vert við að mála, en hætti því, er hann varð full­tíða maður. Hann hafði óvenju fal­lega söng­rödd, en beitti henni ekki hvers­dags­lega. List­hneigðin gat verið kyn­fylgja úr báðum ættum. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund.

Herbert Þórð­ar­son, er var stýri­maður á Hólma­borg þessa ferð, var fæddur í Norð­firði (síðar Nes­kaup­stað) 8. sept. árið 1913. Sonur Stefaníu Ármanns­dóttur og Þórðar Björns­sonar skip­stjóra þar. Stefanía er látin fyrir nokkrum árum, en Þórðar er búsettur í Nes­kaup­stað. Herbert kvænt­ist árið 1938 Sigríði Sig­urð­ar­dóttur skip­stjóra Jóns­sonar í Nes­kaup­stað. Lætur eftir sig konu og eitt kjör­barn, 13 ára dreng. Hann lauk fiski­manna­prófi úr Stýri­manna­skól­anum árið 1938. Hertbert hefur starfað í Nes­kaup­stað eða á bátum þaðan mest­allan sinn starfs­dag. Hann flutti ísvar­inn fisk til Englands öll stríðs­árin. Sigldu þeir oft­ast á sama skipi, hann og Þórður faðir hans. Það var því engin nýj­ung fyrir Herbert að koma til Englands, enda ætl­aði hann heim aftur með fyrstu flug­ferð. Herbert fékkst meðal ann­ars tals­vert við kennslu í sigl­inga­fræði. Veitti for­stöðu nokkur und­an­farin ár nám­skeiði í sigl­inga­fræði á vegum Stýri­manna­skól­ans. Herbert var mesta ljúf­menni í umgengni, glað­lyndur og góður félagi. Efalaust finna margir sveit­ungar hans og reyndar fleiri, að þeir eiga nú á bak að sjá traustum manni og góðum vini.

Vilhelm Pétur Jensen, vél­stjóri, var fæddur á Eski­firði 7. sept. árið 1935, sonur skip­stjór­ans og önnu konu hans. Hann var kvæntur Margréti Gunn­ars­dóttur vél­stjóra Hall­gríms­sonar á Eski­firði. — Vilhelm þekkti ég minnst þeirra manna, er voru á Hólma­borg, en mér er tjáð, að hann hafi verið mesti efn­is­maður. Hann lætur eftir sig unga konu og tvö korn­ung börn.

Sigurður Jónsson var fjórði mað­ur­inn á Hólma­borg. Hann var fæddur á Eski­firði 28. sept. 1909, sonur Mar­grétar Páls­dóttur og Jónasar Jóns­sonar, er lengi var raf­stöðv­ar­stjóri á Eski­firði og er nýlega lát­inn. — Sigurður er fimmta barnið upp­komið, sem Margrét sér á bak, en nú hefur hún misst sjö börn sín af ell­efu, en mér er sagt, að enn hafi hún reynzt sama hetjan og áður undir svip­uðum kring­um­stæðum. Þá má geta þess, að Margrét, ekkja Vilhelms vél­stjóra, er dótt­ur­dóttir hennar og upp­eld­is­dóttir og býr hjá ömmu sinni með bæði ungu börnin sín. Árið 1933 kvænt­ist Sigurður Ingi­gerði Bene­dikts­dóttur, ætt­aðri úr Húna­vatns­sýslu. Lifir hún mann sinn, ásamt sex börnum þeirra, þar af tvö innan 10 ára ald­urs. Sigurður var hættur sjó­mennsku fyrir 9 árum. Ætlaði aðeins að bregða sér til Skotlands þessa ferð og hafði pantað far heim aftur með fyrstu flug­ferð. Á síð­ustu árum vann hann við vega­gerð rík­is­ins, stjórn­aði jarð­ýtu. Þegar ég var á ferð á Aust­ur­landi á síð­asta sumri og fór um nýlagða vegi, heyrði ég borið á hann mikið lof fyrir dugnað og hag­sýni í starfi. Þau hrósyrði komu mér engan veg­inn á óvart eftir þau kynni, er ég hafði haft af Sigurði fyrr á árum. Þeir Jens og Sigurður voru báðir með mér á sjó, er þeir voru ungir. Reyndust þeir röskir menn og vand­aðir og ágætir drengir. Þegar skip hverfa með svip­uðum hætti og Hólma­borg nú, koma venju­lega fram ýmsar ágizkanir um hvað slys­inu hafi valdið. Oftast eru menn jafnær eftir slíkar bolla­legg­ingar. Ég vil þó láta það per­sónu­lega álit mitt í ljós, að það, hve fáir skip­verjar voru, hafi ekki átt þátt í þessu slysi. Ég tel að þar hafi verið val­inn maður í hverju rúmi. Eft­ir­lif­andi vanda­mönnum sendi ég fyllstu sam­úð­ar­kveðjur.

Blessuð sé minn­ing áhafn­ar­innar á Hólma­borg­inni SU-555

Góðar minn­ingar um þá förnu er bezta hugg­unin, sé vel að gáð.
Friðrik Steins­son.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst hjá Mannlífi 21. mars árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum