Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hanna Katrín segir óskýra upplýsingagjöf hjá bílastæðum ólögmæta

Fjöl­skylda var rukkuð tæpar 6.000 kr fyrir að stoppa stutt hjá Kirkju­felli

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
Hanna Katrín Frið­riks­son, atvinnu­vega­ráð­herra Segir óskýra gjald­töku ósann­gjarna og jaf­vel ólög­mæta Mynd: Víkingur

Hanna Katrín Frið­riks­son, atvinnu­vega­ráð­herra, segir upp­lýs­inga­gjöf oft óskýrar hjá bíla­stæðum með greiðslu­skyldu. Hún deildi reynslu sinni eftir að vera rukkuð 5.750 krónur fyrir að leggja við Kirkju­fell.

​​„Það var leið­in­leg send­ing sem fjöl­skylda úr Graf­ar­vogi fékk í kjöl­far frá­bærrar dags­ferðar um Snæ­fells­nes,“ skrifar hún í Facebook færslu í morgun. Eftir að stoppa í stutta stund hjá Kirkju­felli barst þeim rukkun í heima­banka en þau höfðu ekki tekið eftir neinum merkjum um gjald­skyldu bíla­stæð­anna. „Grunn­gjaldið var 1.000 krónur, en þar sem ekki var greitt innan sól­ar­hrings bætt­ist við 4.500 króna van­greiðslu­á­lag og 250 króna færslu­gjald,“ útskýrir Hanna Katrín.

„Þetta er ekki eins­dæmi. Kvart­anir vegna svip­aðra mála ber­ast bæði Neyt­enda­stofu og Neyt­enda­sam­tök­unum nán­ast viku­lega,“ segir Hanna Katrín. Neyt­endur lýsa óljósri, ósýni­legri eða vill­andi gjald­töku sem verður til þess að þau þurfi að borga háa reikn­inga.

Neyt­enda­stofnun hefur skoðað við­skipta­hætti nokk­urra bíla­stæða­fyr­ir­tækja og kom­ist að því að í fjölda til­fella vanti full­nægj­andi leið­bein­ingar um greiðslu og auka­gjöld ekki til­kynnt fyrir fram.

„Það er dýrt að byggja upp og reka bíla­stæði. Þess vegna á það ekki að koma á óvart þegar gjald er tekið fyrir afnot af stæðum. En ef fólk fær ekki skýrar upp­lýs­ingar um verð og greiðslu­skil­mála, þá hættir gjald­takan að vera sann­gjörn og jafn­vel lög­leg,“ skrifar atvinnu­vega­ráð­herra.

Hanna Kristín segir að við­kom­andi fyr­ir­tæki hafi verið bent á að lag­færa upp­lýs­inga­gjöf í sam­ræmi við lög. Stjórn­völd muni fylgja því fast á eftir að úrbæt­urnar verða raun­veru­legar. Hún segir stjórn­völd til­búin að lag­færa lag­ara­mmann ef þess þarf því almenn­ingur á rétt á því að þessi mál séu í lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu