Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Gerður Pálmadóttir er látin

Gerður Pálma­dóttir, frum­kvöð­ull og athafna­kona, lést 4. mars síð­ast­lið­inn. Hún var 77 ára.

Gerður fædd­ist 24. febr­úar 1948 í Reykja­vík og ólst þar upp. For­eldrar hennar voru Aðal­heiður Árný Árna­dóttir og Pálmi Pét­urs­son kenn­ari.

Árið 1966 útskrif­að­ist Gerður úr Verzlunarskóla Ísland og fór síðan í nám í Mynd­lista- og hand­íða­skól­anum í Reykja­vík. Útskrif­að­ist hún þaðan úr graf­ík­deild árið 1980. Á sama tíma og hún stund­aði nám sitt hóf hún að selja not­aðar flíkur á úti­mark­aði á Lækj­ar­torgi. Í fram­haldi af því hóf hún rekstur á versl­un­inni Flónni í Hafn­ar­stræti, síðar á Vest­ur­göt­unni.

Lengi vel var Gerður kennd við þá verslun en árið 1989 hætti hún rekstr­inum og flutti til Hollands.

Gerður stofn­aði fyr­ir­tækið Freezing Point í Hollandi, þar sem hún hann­aði bæði og fram­leiddi fatnað með fínum árangri. Á sama tíma stofn­aði hún fyr­ir­tækið ARTitIS árið 1995, sem rak versl­anir á Shiphol-flug­velli. Þar var lögð áhersla á íslenska hönnun og hand­verk. Rak hún ARTitIS allt til árs­ins 2008 er hún seldi rekst­ur­inn. Gerður var þó hvergi nærri hætt því hún fékk úthlutað plássi í Westergasfabrik í Amster­dam, sem var gömul gasverk­smiðja sem breytt var í Miðstöð lista, skap­andi greina og við­skipta. Gerður rak þar hönn­unar- og lista­gall­erí þar til­hún flutti aftur til Íslands 2015 og stofn­aði Hug­virkjun, með áherslu á efl­ingu íslensks hug­vits.

Samkvæmt mbl.is, sem segir frá and­láti Gerðar, lét hún sam­fé­lags­mál sig alltaf mikið varða en hún fram­leiddi á tíma­bili fatnað í Bangla­dess en á meðan hún dvaldi þar stofn­aði hún lít­inn ensku­skóla fyrir börn, svo þau gætu búið sig betur undir fram­tíð­ina. Helsti ráð­gjafi hennar var eng­inn annar en Muhammad Yunus, einn af stofn­endum Grameen-banka sem fékk frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2006 fyrir að veita fátæku fólki hag­stæð lán.

Gerður var aukreitis einn stofn­enda Félags aðstand­enda alzheimersjúklinga og var þar í stjórn.

Börn Gerðar með Gunn­ari Páls­syni eru Pálmi Þór, fæddur 1969, og Svan­hvít, fædd 1971. Barna­börn­in eru Sunna Rún, Gunn­ar Tóm­as, Ern­ir Þór og Gerður Lind og barna­barna­börn­in Tóm­as Þór og dreng­ur sem er ný­fædd­ur.

Útför Gerðar fer fram frá Hafn­ar­fjarðar­kirkju föstu­dag­inn 21. mars klukk­an 15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum