Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Varaformaður Blaðamannafélagsins um uppnámið: „Það er góður siður að svara fjölmiðlum“

Aðal­steinn Kjart­ans­son, vara­for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, segir trún­að­ar­brest vera ástæð­una fyrir því að fram­kvæmda­stjóra félags­ins, Hjálmari Jónssyni hafi verið sagt upp. Segir hann ýmis­legt hafa gengið á und­an­farnar vikur og mán­uði.

Líkt og fram hefur komið í fjöl­miðlum var Hjálmari Jónssyni sagt upp störfum sem fram­kvæmda­stjóra Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) eftir að upp kom ágrein­ingur milli hans og Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur, for­manns félags­ins. Mannlíf heyrði í Aðal­steini Kjart­ans­syni, vara­for­manni BÍ og ræddi við hann um ástandið innan félags­ins.

Sjá einnig: Skatta­mál Sigríðar Daggar draga dilk á eftir sér: „Ég er lykla­laus í fyrsta sinn í 22 ár“

Aðspurður hvort hann sé hlynntur þeirri ákvörðun að segja Hjálmari Jónssyni upp sem fram­kvæmda­stjóra BÍ, segir Aðal­steinn nið­ur­staðan sé „leið­in­leg“ en ályktun stjórn­ar­innar hafi verið ein­róma.

„Það var bara ein­róma ályktun stjórn­ar­innar að það væri ekki hægt að leysa þann trún­að­ar­brest sem varð á milli stjórnar og fram­kvæmda­stjór­ans. Mér þykir þetta ótrú­lega leið­in­leg nið­ur­staða.“

En hver var trún­að­ar­brest­ur­inn?

„Það er ýmis­legt sem gengið hefur á und­an­farnar vikur og mán­uði í starf­semi þessa félags. En dag­legur rekstur þess hefur sem betur fer gengið snuðru­laust fyrir sig, sem er auð­vitað atriði númer eitt, tvö og þrjú. En stjórnin hefur ekki getað þokað neinu áfram og það er aða­l­ega vegna tíðra van­trausts­yf­ir­lýs­inga frá­far­andi fram­kvæmda­stjóra á stjórn félags­ins. Hann hefur ekki viljað sætt­ast á þá nið­ur­stöðu stjórn­ar­innar sem lá fyrir strax síð­asta sumar, um að ásak­anir um skatta­legt mis­ferli for­manns­ins væru ekki þess eðlis að við ætl­uðum að lýsa yfir algjöru van­trausti á öllum hennar störfum. Og það er ekk­ert form­legt ferli innan Blaða­manna­fé­lags­ins fyrir ein­hverjar van­trausts­yf­ir­lýs­ingar. Það er bara aðal­fundur félags­ins sem getur veitt stjórn og for­manni umboð.“

Mannlíf spurði Aðal­stein út í funda­gerðir félags­ins en þær hafa ekki verið birtar á Mínum síðum á heima­síðu Blaða­manna­fé­lags­ins síðan í apríl í fyrra. Hvernig stendur á því?

„Mér var bara bent á það í gær en ég veit ekki af hverju það er, en það hefur engin ákvörðun verið tekin um að birta þær ekki.“

Eins og margoft hefur komið fram í fréttum Mannlífs hefur Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ, ekki svarað spurn­ingum fjöl­mið­ils­ins um ásak­anir á hendur henni um skatta­laga­brot. Mannlíf spurði Aðal­stein hvað honum fynd­ist um svara­leysi for­manns­ins.

„Per­sónu­leg mál for­manns­ins verða bara að vera per­sónu­leg mál for­manns­ins. Það er góður siður að svara fjöl­miðlum en ég sem betur fer ekki, í þeirri stöðu að segja Sigríði Dögg hvað hún eigi að gera og hvað ekki. Og ég get ekki verið til svara af hverju hún segir ekki eitt­hvað um sín per­sónu­legu mál.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs bað Sigríður Dögg um sýnd­ar­að­gang að heima­banka Blaða­manna­fé­lags­ins og það hafi Hjálmar verið ósáttur við, en hann, sem fram­kvæmda­stjóri hefur borið ábyrð á fjár­málum félags­ins. Aðal­steinn segir það „full­kom­lega eðli­legt“ að stjórn­ar­með­limur hafi aðgang að fjár­hags­upp­lýs­ingum félags­ins.

„Það er bara full­kom­lega eðli­legt að ein­hver í stjórn­inn hafi aðgang að fjár­hags­upp­lýs­ingum félags­ins. Það er bara alvana­legt og ég held að stjórnin hafi ákveðið það fyrir vikum síðan að svo ætti að vera. Það er stjórnin sem ber end­an­lega ábyrgð á fjár­hags­stöðu félags­ins.“

Í vor fara fram for­manns­kosn­ingar hjá BÍ en sjálfur mun Aðal­steinn hætta í stjórn­inni og sem vara­for­maður, þar sem hann er að fara í fæð­ing­ar­or­lof, en það hefur legið fyrir um langt skeið. Þegar Mannlíf spurði Aðal­stein hvort hann muni styðja Sigríði Dögg í kom­andi kosn­ingum, svar­aði hann óbeint.

„Við Sigga Dögg höfum haft gott sam­starf en það höfum við Hjálmar líka átt, þegar ég var í stjórn og hann for­maður. Og nú hafa félags­menn tæki­færi á að ákveða hver er í for­ystu félags­ins. En stjórnin hefur verið alveg sam­mála um þau verk­efni sem á að fara í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum