Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Leynd yfir lögmanni sem stal erfðafjárskatti af syrgjendum – Hinn brotlegi laug að nefndinni

Reykjavík – myndin tengist fréttinni ekki beint – Mynd / Envato Elements
Reykja­vík – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd / Envato Elements

Úrsk­urðar­nefnd lög­manna úrskurð­aði nýverið að lög­maður, sem nýtur nafn­leyndar, hafi svik­ist um að greiða erfða­skatt vegna dán­ar­bús sem hann hafði umsjón með. Lög­mað­ur­inn var áminntur vegna þessa máls en hann hafði sagt nefnd­inni ósatt vegna þessa máls og kvaðst hafa greitt umræddan erfða­fjár­skatt. Morg­un­blaðið segir frá þessu.

Lögmaður­inn var skip­aður skipta­stjóri í op­in­ber­um skipt­um á dán­ar­búi kon­unn­ar í júlí­mán­uði árið 2020. Ágrein­ing­ur var milli erf­ingja í aðdrag­anda skipt­anna og við sjálf skipt­in. Deilt var um skipt­ingu inn­bús dán­ar­bús­ins og þurfti lög­maður­inn að leysa úr því máli. Þá voru eign­ir í bú­inu sem þurfti að koma í verð. Þar með talin fast­eign í Reykja­vík.

Skipti dán­ar­bús­ins stóðu yfir í hálft annað ár. Frum­varp til út­hlut­un­ar úr bú­inu var sam­þykkt á skipta­fundi 4. janú­ar 2022 og síðar stað­fest efn­is­lega óbreytt á fundi án at­huga­semda. Sam­dæg­urs sendi lög­maður sem vann fyr­ir  fjóra erf­ingja, tölvu­póst á lög­mann­inn og vís­aði til þess að frum­varpið hafi verið sam­þykkt án at­huga­semda fyrr þann dag og óskaði eftir út­hlut­un­ til þeirra erf­ingja sem hann starf­aði fyr­ir.

Vangoldinn erfðafjárskattur

Í janú­ar 2023 barst erf­ingj­um hinn­ar látnu inn­heimtu­bréf vegna van­gold­ins erfða­fjár­skatts. Við skipta­lok hafði lög­maður­inn haldið eft­ir erfða­fjár­skatti og töldu erf­ingj­ar ljóst að lög­maður­inn hafði ekki staðið skil af hon­um. Í kjöl­farið kvart­aði afkom­andi kon­unn­ar til úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar und­an störf­um lög­manns­ins við skipti dán­ar­bús­ins og skipta­kostn­aði sem hann þáði vegna skipt­anna auk þess að lista upp kröf­ur sem hann vildi beina til lög­manns­ins og nefnd­ar­inn­ar í tengsl­um við skipt­in. Erf­ingj­anum mis­bauð þegar erf­ingj­um barst inn­heimtu­bréf frá Skatt­in­um vegna erfða­skatts sem lög­maður­inn hafði þó dregið af arfs­hluta erf­ingj­anna við skipta­lok ári fyrr en ekki staðið skil á.

Lögmaðurinn sagði ósatt

Í  niður­stöðu úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar seg­ir að kvörtun­un hafi borist nefnd­inni  janú­ar 2023 eft­ir að  inn­heimtu­bréf vegna van­gold­ins erfða­fjár­skatts barst. Í grein­ar­gerð lög­manns­ins til nefnd­ar­inn­ar hélt hann því fram að erfða­fjár­skatt­ur­inn hefði verið greidd­ur áður en er­indið var lagt fyr­ir nefnd­ina og að hann hafi gert þeim grein fyr­ir því. Eft­ir ít­rekuð til­mæli til lög­manns­ins bár­ust loks gögn sem sýndu að hann skil­aði erfða­fjár­skatt­in­um ekki fyrr en 31. janú­ar 2023 og hafði þannig sagt nefnd­inni ósatt.

„Varn­arað­ili veitti rang­ar upp­lýs­ing­ar til nefnd­ar­inn­ar sem voru til þess falln­ar að villa fyr­ir nefnd­inni og hafa áhrif á niður­stöðu máls­ins. Í sam­ræmi við það sem að fram­an grein­ir er það mat nefnd­ar­inn­ar að varn­arað­ili hafi þannig bæði van­rækt skyld­ur sem á hon­um hvíldu sam­kvæmt siða­regl­um lög­manna og lög­manna­lög­um við skil vörslu­fjár auk þess að veita nefnd­inni rang­ar upp­lýs­ing­ar um málið í kjöl­farið. Með þeim brot­um hef­ur varn­arað­ili sýnt af sér hátt­semi sem telja verður ámæl­is­verða. Verður því ekki hjá því kom­ist að veita varn­arað­ila áminn­ingu,“ seg­ir í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs telur meiri­hluti úrskurð­ar­nefnd­ar­innar sér ekki vera heim­ilt að ljóstra upp nöfnum þeirra sem kærðir eru til nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum