Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Húsið var reist árið 1987

Laugaból 2
Laugaból 2

Fallegt og rúmgott einbýlishús á rúmlega 5.000 fermetra eignarlóð við Reykja­hlíðar­afleggjara í Mosfellsdal er komið á sölu. Ásett verð eignarinnar er 165 milljónir króna en um er ræða Laugaból 2.

Húsið er 188,4 fermetrar að stærð og var reist árið 1987. Það stendur á 5.005 fermetra gróður­sælli lóð og er allt á einni hæð. Núverandi eigendur byggðu húsið og hafa búið þar frá upphafi.

Í húsinu eru fimm svefn­herbergi, rúmgóð stofa, sérstakt sjónvarps­herbergi, eldhús og borðstofa. Þá eru þar baðherbergi, gesta­snyrting, þvottahús, geymsla og geymslu­loft. Fjögur svefn­herbergjanna eru á sérstökum svefn­herbergis­gangi ásamt baðherbergi en fimmta herbergið er við forstofu.

Arkitekt hússins var Egill Guðmundsson og er hönnun þess sögð bæði skemmtileg og vel skipulögð.

Það sem helst vekur athygli við eignina er þó lóðin. Hún er rúmir 5.000 fermetrar og einkennist af miklum og fallegum trjá­gróðri. Á lóðinni eru jafnframt fjögur gróðurhús og pallur liggur umhverfis húsið.

Eignin stendur í friðsælu umhverfi Mosfells­dals og býður þannig upp á töluvert landrými samhliða rúmgóðu einbýlis­húsi skammt frá höfuð­borgar­svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“