Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

HS-Orka á grænni grein – Greiddu aðeins 18 milljónir í skatt þrátt fyrir metár

Lesendur Mannlífs vilja ríkisvæða HS Orku
Lesendur Mannlífs vilja rík­i­s­væða HS Orku

HS-Orka greiddi aðeins 18. millj­ónir í skatt árið 2022, þrátt fyrir metár í afkomu fyr­ir­tæk­is­ins.

Árið 2022 var metár í sögu HS-Orku en þá námu rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 10,6 millj­örðum króna. Samkvæmt bók­inni 500 stærstu sem kom út 2022, var rekstr­ar­hagn­aður HS-Orku fyrir skatta 87. millj­ónir það árið en eftir skatt var hagn­að­ur­inn 69. millj­ónir, þannig að 18. millj­ónir voru greiddar í skatt. Ári áður var hagn­að­ur­inn fyrir skatt mun hærri eða 2.816 millj­ónir en í frétt Vík­ur­frétta frá því í fyrra segir orð­rétt um ástæð­una fyrir mis­mun­inum: Óinn­leystir fjár­magnsliðir setja veru­legt mark á upp­gjörið en í aðal­at­riðum skýrist mun­ur­inn frá fyrra ári ann­ars vegar af 2,4 millj­arða króna lækkun gang­virðis inn­byggðra afleiða vegna lækk­unar álverðs og hins vegar af geng­is­lækkun krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal sem nam 1,4 millj­arði króna á milli tíma­bila.

Síðustu sex ár hafa eig­endur HS-Orku greitt sér 33. millj­arða í arð. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu 10,6 millj­örðum króna árið 2022 og juk­ust um 14,7% á milli ára.

Nýlega sam­þykkti Alþingi að leggja sér­stakan fast­eigna­skatt á heim­ilin í land­inu svo greiða megi fyrir 2,5 millj­arða fram­kvæmdir við varn­ar­garð til að verja mann­virki HS Orku við Svarts­engi.

Úr bók­inni 500 stærstu.

En hverjir eiga HS-Orku?

Á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins segir að end­an­legir eig­endur HS-orku séu Jarð­varmi slhf. og sjóðir í stýr­ingu hjá Ancala Partners LLP. Eign­ar­hlutur hvors um sig er 50 pró­sent.

Ef maður leitar að því sem kall­ast raun­veru­legir eig­endur á vef Skatts­ins, kemur fram að eig­end­urnir séu fjórir, hinn breski Adrian John Pike, stjórn­ar­for­maður HS-Orku, hin þýska Heike Bergmann, með­stjórn­andi, Bjarni Þórður Bjarna­son, vara­for­maður og Margrét Ormslev Ásgeirs­dóttir, með­eig­andi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sér­fræð­ingi á fyr­ir­tækja­sviði Skatts­ins, sem Mannlíf ræddi við, eru „raun­veru­legir eig­endur“ þeir sem eiga yfir 25 pró­sent hlut í fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum