Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skýtur föstum skotum á ráðherra Katrínar: „Skömm íslenskra stjórnvalda gæti ekki orðið meiri“

Ríkisstjórn Íslands
Rík­is­stjórn Íslands Mynd: Rúv – Ragnar Visage

Helga Vala Helga­dóttir skýtur bylm­ings­fast á rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, í kjöl­far frétta af þremur íslenskum konum sem björg­uðu fjöl­skyldu frá Gaza.

Þing­konan fyrr­ver­andi og núver­andi lög­fræð­ing­ur­inn, Helga Vala Helga­dóttir, skrif­aði Facebook-færslu um þær fréttir að þær Bergþóra Snæ­björns­dóttir, María Lilja Ing­veldar-Þrast­ar­dóttir Kemp og Kristín Eiríks­dóttir, hafi gert sér lítið fyrir og flogið til Egypta­lands og komið fjöl­skyldu frá Gaza, sem þegar hafði fengið dval­ar­leyfi á Íslandi.

„Þrjár stórar konur sóttu fjöl­skyldu á flótta frá hrylli­legu þjóð­ar­morði á Gaza, fjöl­skyldu sem hefur fengið dval­ar­leyfi á Íslandi. Þessar konur, Bergþóra Snæ­björns­dóttir, María Lilja Ing­veldar-Þrast­ar­dóttir Kemp og Kristín Eiríks­dóttir hafa hjarta, eld­móð og hug­rekki til að leggja í lang­ferð til að bjarga manns­lífum.“ Þannig byrjar færsla Helgu Völu. Svo heldur hún áfram: „Á sama tíma sitja íslenskir ráð­herrar á mjúkum stólum sínum við skrif­borðin sín, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra sjálf­stæð­is­flokks, Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra sjálf­stæð­is­flokks og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála­ráð­herra VG að málið sé bara of flókið til að hægt sé að bjarga manns­lífum. Það sé sko búið að senda nafna­lista, en að málið sé sko samt ekki svo ein­falt að það dugi bara að senda nafna­lista.“

Segir Helga Vala enn­fremur að yfir­völd segi og geri „allt annað en að bjarga þeim örfáu sem hér hafa fengið dval­ar­leyfi sam­kvæmt ákvörð­unum íslenskra útlend­inga­yf­ir­valda.“

Að lokum segir Helga Vala skömm íslenskra stjórn­valda mikla.

„En þessar þrjár stóru konur björg­uðu lít­illi fjöl­skyldu, móður og þremur börnum hennar undan því hel­víti sem skap­ast hefur á Gaza.Þegar við héldum að skömm íslenskra stjórn­valda gæti ekki orðið meiri þá fengum við þessar fréttir.

Ég er þakk­lát þessum konum og stolt af þeim. Takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum