Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Guðmundur fannst látinn í snjóskafli og talinn hafa fengið hjartaáfall – Það reyndist ekki rétt

Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Pexels

Guð­mundur Helgason fór með kvöld­ferð­inni suður eftir til að heim­sækja vin sinn í Garði rétt fyrir jól árið 1944. Komst hann þó ekki alla leið því hann fannst lát­inn í snjó­skafli í veg­kanti nálægt Meiða­stöðum.

Við fyrstu sýn virt­ist Guð­mundur hafa lát­ist úr hjarta­á­falli en þegar líkið var skoðað nánar, kom annað í ljós.

Morg­un­blaðið fjall­aði um lík­fund­inn:

Maður finnst örendur

SlÐASTL. þriðju­dags­kvöld um kl. 9 fanst maður örendur á veg­inum skammt frá Meiða­stöðum í Garði, Gerðum. -—. Maður þessi var Guð­mundur Helgason, til heim­ilis Njáls­götu 44, hjer í hæ. Hafði Guð­mundur farið með kvöld­ferð­inni þangað suður eftir og ætlað að hitta kunn­ingja þar í þorp­inu.
Fanst Guð­mundur í snjó­skafli á veg­brún­inni skammt frá Meiða­stöðum. Var farið með lík Guð­mundar til læknis og við skjóta rann­sókn, taldi lækn­ir­inn Guðmund hafa dáið af hjartaslagi. Guð­mundur Helgason var fæddur 8. sept. 1881, var hann ekkju­maður og börn hans öll upp­komin.

En þegar lækn­ir­inn kru­fði Guðmund kom í ljós að hjartaslag var ekki dán­ar­or­sök, heldur eitt­hvað mun grun­sam­legra. Vísir fjall­aði um hina nýju upp­götvun:

Lík Guð­mundar Helga­sonar var hrygg­brotið

Eins og skýrt hefir verið frá, fannst maður nokkur, Guð­mundur Helgason, til heim­ilis á Njáls­götu 44 hér í bæ örendur hjá Meiða­stöðum í Gerðum, Garði. Við fyrstu rann­sókn komu ekki nein veru­leg meiðsl eða áverkar i ljós á lík­inu, en við nán­ari rann­sókn og krufn­ingu hefir fundizt að mað­ur­inn hefir hrygg­hrotnað. Er hrygg­brotið talið stafa af mjög miklu höggi, er hann hafi hlotið, en ekki vitað enn hvað hefir valdið því. Mun það mál vera í rann­sókn.

Í heil­brigð­is­skýrslu land­læknis fyrir árið 1944 er meðal ann­ars farið yfir ýmis dauðs­föll en þar er eft­ir­far­andi texti um and­lát Guð­mundar Helga­sonar.

14. des. G. H-son, 65 ára. Maðurinn fannst liggj­andi við þjóð­veg­inn suður með sjó, þá lát­inn, og að dómi læknis, er til var kvaddur á stað­inn þá þegar 13. des­em­ber, mun mað­ur­inn hafa látizt fyrir ca. hálfri klst. Ályktun: Við krufn­ing­una fannst þver­brot á neð­an­verðum hrygg með mjög mik­illi blæð­ingu upp á við og niður á við frá brot­staðnum. Enn fremur fannst sprunga í milt­inu. Bana­meinið ótví­rætt hrygg­brotið. Engin áverka­merki fund­ust á húð­inni.

Ekki tókst blaða­manni Mannlífs að finna frek­ari upp­lýs­ingar um dauða Guð­mundar eða nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar á and­láti hans en les­endur sem gætu haft upp­lýs­ingar eru beðnir um að hafa sam­band við Mannlíf.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður hjá Mannlífi þann 9. júní 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum