Dýri Guðmundsson er látinn, 73 ára að aldri.
Dýri Guðmundsson, endurskoðandi, gítarleikari og fyrrverandi knattspyrnumaður lést eftir veikindi þriðjudagskvöldið 20. febrúar, að því er kemur fram í andlátsfrétt Vísis. Hafa fjölmargir vinir hans og ættingjar minnst hans á samfélagsmiðlum.
Í Hafnarfirði ólst Dýri upp en á einnig ættir að rekja til Fremstu-húsa í Hjarðardal í Dýrafirði. Þá var hann einnig útnefndur Seltirningur ársins 2017. Dýri lék með landsliði Íslands í knattspyrnu en hann lék einnig með FH og Val.
Dýri var tónlistarmaður en fram kemur í frétt Vísis að auðveldlega megi fullyrða að tugir þúsunda hafi notið spilamennsku hans í gegnum árin en hann spilaði margoft fyrir hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu er þeir komu hlaupandi eftir Lindarbrautinni. Á Facebook minnast margir íbúar Seltjarnarness Dýra og rifja upp störf hans í sóknarnefnd kirkjunnar og spilamennsku hans fyrir fólkið á hjúkrunarheimilinu Grund.
Eiginkona Dýra er Hildur Guðmundsdóttir en saman áttu þau Orra Pál, Vilborgu Ásu og Guðnýju Völu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir