Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Frosti fordæmir aðför að Þórði Má: „Harpa setur málefni stórs almenningshlutafélags í uppnám“

„En er til betra dæmi um for­rétt­inda­blindu heldur en mál­flutn­ingur Hörpu Jóns­dóttur for­stjóra Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins þegar hún setur mál­efni stórs almenn­ings­hluta­fé­lags í upp­nám og heimtar að ein ásökun gildi, ásökun sem fékkst ekki stað­ist sam­kvæmt leik­reglum rétt­ar­rík­is­ins,“ segir Frosti Logason í þætti sínum Harma­geddon  þar sem hann kemur til varnar Þórði Má Jóhann­essyni sem stjórn­ar­manni í Festi, eig­anda Krón­unnar og N1.

Vítalía og Arnar voru sökuð um fjár­kúgun í Potta­mál­inu.

Mikil ólga hefur verið innan félags­ins eftir að Vítalía Lazereva bar Þórð Má og Hreggvið Jónsson þeim sökum að hafa ásamt Ara Edwald og Arnari Grant, brotið gegn sér í heitum potti við sum­ar­hús Þórðar. Málið fór til lög­reglu sem taldi ekki efni til ákæru. Vítalía og Arnar voru í fram­hald­inu kærð fyrir að hafa beitt þre­menn­ing­ana fjár­kúgun. Það mál féll einnig um sjálft sig.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar.

Þórður Már er stór hlut­hafi í Festi og sat í stjórn þegar ásak­an­irnar komu fram. Hann sagði af sér stjórn­ar­mennsku en hefur nú gefið kost á sér að nýju og hlaut náð fyrir augum val­nefndar. Óánægja er að meðal ann­arra hlut­hafa vegna þessa. Frosti for­dæmir afstöðu Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins. Tilefnið er frétt Heim­ild­ar­innar um and­stöð­una við Þórð.

Frosti for­dæmir fram­göngu Hörpu.

Frosti telur vera tengsl milli Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Heim­ild­ar­innar, og Hörpu.

Hann segir að á Íslandi hafi mynd­ast tveir mis­mun­andi heimar með tvenns­konar sið­ferði. „Það er heimur opin­berra starfs­manna, þeirra sem búa í rétt­ar­ríki og njóta ríf­legra eft­ir­launa úr sjóðum sem eru óháðir því hvernig þeir ávaxt­ast, sem ríkið ábyrgist með sköttum. Og svo eru það hinir, starfs­menn einka­fyr­ir­tækja, idíót­arnir, sem ekki eigi að búa við reglur rétt­ar­rík­is­ins, hverra líf­eyrir á starfsæv­inni skal skerð­ast ef mark­mið um ávöxtun sjóða næst ekki,“ segir Frosti í pistli sínum.

Forréttindablinda

Það fá fleiri á bauk­inn í pistli Frosta. Hann bendir á að refs­ing nái gjarnan ekki til opin­berra starfs­manna, jafn­vel þótt um skatt­svik sé að ræða. Þar er hann vænt­an­lega að vísa til skattaund­an­skota tengdum Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, frétta­manns RÚV og for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands sem neitað hefur að upp­lýsa um stærð brota sinna.

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður BÍ

„Ef þú ert opin­ber starfs­maður á RÚV til dæmis skiptir ekki máli þó um sönnuð brot sé að ræða eins og skattaund­an­skot til dæmis og ef þú ert form­legur sak­born­ingur í saka­máli kallar það í mesta lagi á til­færslu til ann­arrar rík­is­stofn­unar,“ skrifar Frosti og vísar til for­rétt­inda­blindu.

„Já, við erum að tala um for­rétt­inda­blindu, líka vegna þess að líf­eyr­is­sjóður opin­berra starfs­manna, þeir hafa ekki aðhald frá sínum sjóð­fé­lögum varð­andi árangur við ávöxtun fjár­muna. Þeir geta lofað fastri ávinnslu líf­eyr­is­rétt­inda óháð því hvort woke hern­aður þeirra skaði ávöxtun þeirra og ann­arra á mark­aðnum. Þeir senda bara skatt­greið­endum reikn­ing­inn fyrir mis­mun­inum. Það geta líf­eyr­is­sjóðir á almennum mark­aði eða aðrir fjár­festar ekki gert,“ skrifar Frosti Logason og spyr hvert Ísland sé eig­in­lega komið ef yfir­lýst stefna opin­berra stofn­ana sé að hér á Íslandi skuli ekki vera starf­rækt rétt­ar­ríki.

„Alltaf þegar rætt er um fjár­veit­ingar til stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna á Gaza, UNWRA, vegna meintrar þátt­töku í hrylli­legum hryðju­verkum, segja margir: En þetta eru bara ásak­anir. Það er ekki hægt að dæma fyrr en búið er að rann­saka. En hér uppi á Íslandi telur sama fólk oft að slíkt réttar­ör­yggi þurfi bara alls ekki að vera til staðar, eins og til dæmis í máli hlut­hafans Þórðar Más“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

6
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum