Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Vill afturkalla alþjóðalega vernd brotamanna

Sjálf­krafa dval­ar­leyfi vegna tafa fellur niður verði frum­varp dóms­mála­ráð­herra sam­þykkt.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir Dóms­mála­ráð­herra leggur fram frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum. Mynd: Viðreisn

Búið er að afgreiða frum­varp dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingar á útlend­inga­lögum út úr rík­is­stjórn og verður nú lagt fram á Alþingi. Verði það sam­þykkt, verður mögu­legt að aft­ur­kalla alþjóð­lega vernd þeirra sem brjóta alvar­lega af sér. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að frum­varpið, sem nú verður lagt fyrir Alþingi, sé í sam­ræmi um stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um að gæta sam­ræmis við reglur nágranna­ríkja og Evr­ópu­sam­bands­ins á sviði útlend­inga­mála og að heim­ilt verði að aft­ur­kalla alþjóð­lega vernd og brott­vísa þeim ein­stak­lingum sem fremja alvar­leg afbrot eða ógna öryggi rík­is­is­ins.

„Ég hef talað skýrt í þessu máli og legg nú til að heim­ilt verði að aft­ur­kalla alþjóð­lega vernd ef gildar ástæður eru til að álíta við­kom­andi hættu­legan öryggi rík­is­ins eða hann hefur hlotið dóm fyrir sér­stak­lega alvar­legt afbrot og er af þeim sökum hættu­legur sam­fé­lag­inu,“ er haft eftir Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur, dóms­mála­ráð­herra.

Fella niður sjálf­krafa dval­ar­leyfi vegna tafa

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að aldrei hafi jafn margir sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi árin 2022 - 2024 og að það hafi valdið miklu álagi á inn­viði. Gríð­ar­legur kostn­aður hefur fylgt þessu fyrir íslenska ríkið að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni en um 38 millj­arðar króna hafa runnið í þennan mála­flokk á þessum árum. Fjöldi umsækj­enda og álag hafa einnig haft mikil áhrif á máls­með­ferð­ar­tíma en meðal breyt­inga í frum­varp­inu er að fellt verði niður ákvæði í lögum sem heim­ilar veit­ingu dval­ar­leyfis vegna tafa og mann­úð­ar­sjón­ar­miða hafi útlend­ingur ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu á stjórn­sýslu­stigi innan lög­bund­inna tak­markanna, eftir að hann sótti um alþjóð­lega vernd.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að Íslands sé eina landið í Everópu sem er með þessa reglu um sjálf­krafa dval­ar­leyfa vegna tafa og því ætli dómsmala­ráð­herra að afnema regl­una. Áfram fái þó allir umsækj­endur efn­is­lega nið­ur­stöðu í sín mál.

„Með þessu erum við að sam­ræma reglur um útlend­inga við nágranna­ríki okkar og afnema sér­ís­lenskar reglur“ segir dóms­mála­ráð­herra. „Áskor­anir hafa verið mjög miklar og við þurfum að ná betri tökum á þessu. Það er alveg deg­inum ljós­ara. Fólk sem leitar hingað eru ekki óvinir okkar heldur mann­eskjur í leit að betra lífi. Hins vegar verðum við að hafa sam­bæri­legar reglur og nágranna­ríki okkar og tryggja að við ráðum betur við þennan mála­flokk. Með betri sam­ræm­ingu mun kerfið vera skýr­ara og virka betur fyrir þau sem þurfa raun­veru­lega á því að halda. Í leið­inni munum við spara millj­arða sem verður m.a. hægt að nota til að efla lög­gæslu og byggja nýtt fang­elsi. Þá þurfum við líka að huga betur að mót­töku­kerf­inu okkar og vinna að því að börn sem flytj­ast hingað hafi jöfn tæki­færi á við íslensk börn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum