Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Lítið kot í sveitarsælu sett á sölu

Var reist árið 2021

Litla kot
Litla kot

Nýlegt heilsárshús á rúmlega tveggja hektara eignarlóð skammt frá Selfossi hefur verið sett á sölu. Um er að ræða Litla kot í Byggðar­hornslandi í Sveitar­félaginu Árborg og er ásett verð 64,9 milljónir króna.

Eignin stendur á 2,4 hektara lóð, um sex kílómetra sunnan við Selfoss, en aðkoma að landinu er frá Votmúla­vegi. Húsið er 40,5 fermetrar að stærð og var byggt árið 2021. Við það hefur jafnframt verið reistur sólskáli og stór sólpallur.

Húsið er skráð sem einbýlishús og er byggt úr timbri. Að utan er það klætt máluðu timbri og járn er á þaki. Innandyra eru marglitar náttúru­flísar á gólfum og húsið hitað með svæða­skiptum gólfhita. Loft er upptekið að stærstum hluta.

Í húsinu er eitt svefn­herbergi og inn af því rúmgott baðherbergi. Þar er meðal annars „walk-in“ sturta með glervegg, baðinnrétting og upphengt salerni.

Eldhús, borðstofa og stofa mynda eitt opið og bjart rými. Þaðan er gengið út í sólskálann og áfram á rúmgóðan sólpall.

Í fasteigna­auglýsingu er vakin athygli á friðsælli stað­setningu eignarinnar og þeim mögu­leikum sem henni fylgja. Þar er sérstak­lega nefnt að landið og húsið geti hentað bæði til búsetu og starfsemi tengdri ferða­þjónustu.

Ásett verð fyrir Litla kot og 2,4 hektara eignar­lóðina er 64,9 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Á annatíma á flugvöllum geta tafir raskað ferðaáætlunum.

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul