Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Eitt skemmtilegasta einbýli Laugardals til sölu

Húsið var reist árið 1949

Langholtsvegur 143
Lang­holts­vegur 143

Einbýlishús við Langholtsveg 143 í Reykjavík er komið á fasteigna­markað. Eignin er á tveimur hæðum, með aukaíbúð á neðri hæð, bílskúr og stórum garði og kostar 159.000.000 krónur.

Húsið er skráð 184,3 fermetrar en auk þess eru 82,1 fermetrar skráðir sem sameign. Raunstærð hússins er því sögð um 266,4 fermetrar, þar af er 24,5 fermetra bílskúr. Húsið stendur á 750 fermetra lóð.

Aðalhæð hússins er skráð 112,4 fermetrar en hefur samkvæmt fasteigna­lýsingu verið stækkuð um átta fermetra. Þar eru forstofa, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi og tvö svefn­herbergi, en þau voru áður þrjú. Þá er auka­inngangur við eldhúsið.

Á neðri hæð er aukaíbúð sem er skráð 47,4 fermetrar en sögð vera um 70 fermetrar að stærð. Þar eru meðal annars stofa, eldhús, baðherbergi og tvö svefn­herbergi. Á hæðinni eru jafnframt sameiginlegt þvottahús, þurrk­herbergi, gangur og geymsla. Neðri hæðin er í heild um 129,5 fermetrar. Stigi liggur á milli hæða en auka­íbúðin er einnig með sérinngangi.

Garðurinn við húsið er stór og þar er meðal annars sólpallur með heitum potti. Annar stór pallur er við húsið og þar er kalt gróðurhús.

Fram kemur í fasteigna­lýsingu að húsinu hafi verið vel við haldið í gegnum árin og það endurnýjað að verulegu leyti. Eignin stendur við Langholtsveg, á grónu og vinsælu íbúða­svæði í Reykjavík þar sem stutt er í helstu þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“