Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Forstjóri selur höll á toppverði

Hægt er að halda 100 manna veislur í húsinu

Laugarásvegur 21
Laug­ar­ás­vegur 21

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, hefur sett glæsilegt einbýlishús við Laugarásveg í Reykjavík á sölu. Ásett verð eignarinnar er 350 milljónir króna.

Húsið var byggt árið 1959 og stendur hátt á gróður­sælli lóð. Það er falið frá götu og ekið er upp botnlanga að hellu­lagðri innkeyrslu. Frá efri hæð hússins er víðáttu­mikið útsýni yfir Laugar­dalinn.

Í húsinu eru fjögur svefn­herbergi, sjónvarps­herbergi, vinnu­herbergi, fjögur baðherbergi, þvottahús, eldhús og þrjár stofur. Þá fylgir eigninni um 30 fermetra bílskúr.

Aðal­stofur hússins eru á efri hæð og einkennast af mikilli lofthæð og útsýni. Úr þeim er gengið út á stórar suðursvalir. Samkvæmt fasteigna­auglýsingu eru stofurnar það rúmgóðar að þar megi halda standandi veislur fyrir allt að 80 til 100 manns.

Á neðri hæðinni eru meðal annars fjögur svefn­herbergi, tvö baðherbergi og sjónvarps­stofa. Hjóna­herbergið er með sérbaðherbergi og stórum fata­skápum. Á milli­palli er vinnu­herbergi eða skrif­stofa sem einnig mætti nýta sem svefn­herbergi.

Eldhúsið er rúmgott og opið inn í stóra borðstofu. Fallegur timbur­stigi tengir hæðir hússins saman en einnig er sérinngangur á efri hæð frá norður­hlið þess.

Umhverfis húsið er gróinn garður og timbur­pallur sem snýr í suður. Innkeyrslan er hellulögð og með hita­lögnum og er að sögn auðvelt að leggja fjórum bifreiðum á lóðinni auk þess sem bílskúr fylgir eigninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“