Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Þóra segir Stefán Einar róta í sorpi

Miklar umræður hafa skap­ast um vók­menn­ingu á Íslandi og Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir telur að þjóðin hafi vókað yfir sig

Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum Spursmál
Stefán Einar Stef­áns­son stýrir þætt­inum Spursmál Hann þykir harður í horn að taka Mynd: Skjáskot / mbl.is

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, skrifar pistil í dag um hina svokölluð vók­menn­ingu og setur það í sam­hengi við sam­skipti Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, og rit­höf­und­ar­ins Hall­gríms Helga­sonar á Sam­stöð­inni.

Þar afneit­aði Sólveig vók­menn­ingu og því sem fylgir henni og kall­aði Hall­grímur hana Trump­ista i fram­hald­inu en baðst reyndar afsök­unar á því síðar.

„Eins hvers staðar í bak­sýn­is­spegl­inum grillir í upp­haf woke tíma­bils­ins og meToo bylt­ing­ar­innar sem jákvæðs afls, vald­efl­ingar þar sem að sjónir beindust að mann­rétt­indum svartra, lesbía, homma, trans­fólks og ann­arra útsettra jað­ar­hópa, kyn­þátta­for­dómum, kyn­ferð­is­legu ofbeldi og kúgun. Og það var mik­il­vægt,“ skrifar Þóra.

„Þeir sem áður höfðu enga rödd, fengu rödd, vald og áhrif, skil­uðu skömminni og köst­uðu af sér hlekkj­unum,“ heldur hún áfram en segir að mark­aðs­hyggjan hafi sigrað og brennan hafi logað glatt.

„Allskyns "áhrifa­valdar" tóku að sér, sjálfum sér til dýrðar, að vera böðlar á sam­fé­lags­miðlum, Fleiri og fleiri fengu að kenna á því fyrir æ minni eða óljós­ari sakir. Fjöl­miðlar nutu góðs af, stjórn­málin hrukku í gír­inn enda var þetta bæði sam­fé­lags­lega við­ur­kennt en síðan var þetta líka snið­ugt tæki til að koma póli­tískum and­stæð­ingum fyrir katt­ar­nef sem og sam­herjum sem þvæld­ust fyrir á leið upp met­orða­stig­ann.“

Næst hafi tekið við ógn­ar­stjórn góð­mennsk­unar að mati Þóru. Fólk hafi í orðið hrætt að tjá sig og að hægri menn hafi nýtt vók­menn­ing­una til hins ýtrasta. „Sið­fræð­ingur Morg­un­blaðs­ins varð nán­ast fjöl­miðla­stjarna á einni nóttu enda dug­legur að róta í sorp­inu,“ nefnir Þóra sem dæmi.

„Það er orðin þröng á þingi við bálið og áhrifa­vald­arnir, ölv­aðir af lækum og deil­ingum á sam­fé­lags­miðlum, fleygja stundum hver öðrum á bálið, ýmist til að glæða log­ana eða fá meira oln­boga­rými sjálfir. Og allir sem gagn­rýna brennu­fólkið eða finnst of harka­lega gengið fram geta líka gert ráð fyrir að lenda í log­unum.

Núna er Sólveig Anna for­maður Eflingar, kall­aður trump­isti og mann­hat­ari fyrir að gagn­rýna, harð­asta wókið. Það er auð­vitað hlá­legt í ljósi þess að Efling er það verka­lýðs­fé­lag sem raun­veru­lega hefur lagt sig í fram­króka við að vald­efla og styrkja hópa sem hafa orðið undir í sam­fé­lag­inu,“ skrifar hún um for­mann Eflingar og hennar sam­skipti við Hallgrím.

Þóra telur að bylt­ingin sé búin að éta börnin sín og að ungt fólk í dag sé dóm­harð­ara og hægri sinn­aðra en áður. Þá trúi það ekki lengur á lýð­ræði.

„Ofbeldi og kúgun leiða alltaf af sér meira ofbeldi og kúgun, líka þegar góða fólkið heldur á vend­inum.

"Woke" var í eðli sínu fal­legt afl en það hefði aldrei átt að snú­ast um slaufun, kúgun og refs­ingar. Vegna þess að það býður heim, öfgum, hræðslu og hættu­legri skoð­ana­kúgun sem við sjáum hin nýju fasísku öfl vera að nýta sér til fram­dráttar.

Við lentum í því að vóka yfir okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði