InnlentÓhugnalegt hvarf Valgeirs – Grunur um saknæmt athæfi23. mars 2022 Þegar faðir Valgeirs Víðissonar kom af sjónum, náði hann engu sambandi við son sinn. Eftir ítrekaðar tilraunir hafði hann loks samband við lögreglu og kom þá í ljós að enginn hafði séð til, né talað við Valgeir í heila viku. Valgeir var fæddur þann 11.júlí árið 1964. Faðir hans bjó í Reykjavík en Valgeir ólst upp að mestu leiti hjá...
InnlentÁrásarmaður í jólasveinabúningi banaði manni í Mosfellsbæ: Ölvun réttlætti ekki framferði gerandans22. mars 2022 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi 27 ára karlmann í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða manns á veitingastað Mosfellsbæ í desember 2004. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu nærri 15 milljóna króna í skaðabætur og málskostnað. Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði gerst sekur um að greiða hinum látna hnefahögg með þeim afleiðingum að hann lést en...
InnlentHafið gleypti Hólmaborgina með öllu: „Ég tel að þar hafi verið valinn maður í hverju rúmi“21. mars 2022 Þann 30. janúar árið 1956 lagði Hólmaborgin SU-555 af stað með fjögurra manna áhöfn, frá Neskaupsstað á leið sinni til Skotlands þar sem setja átti nýja vél í skipið. Þann 2. febrúar barst neyðarboð frá skipinu til loftskeytastöðina í Þórshöfn í Færeyjum. Og síðan spurðist aldrei aftur til hennar. Hólmaborg SU-555Mynd: Lubbi Þann 1. apríl sama ár skrifaði Friðrik Steinsson...
InnlentRearview Mirror: When four people died in the slush floods in Patreksfjörður21. mars 2022 The Saturday of 22nd of January, 1983, was a fateful day in the lives of the people living in the town Patreksfjörður. The day started out as any other Saturday, except for the fact that there was to be a Þorrablót celebration in the evening. Þorrablót is an ancient Nordic tradition in celebration of the Nordic Gods, where people eat...
InnlentAurskriðan sem þurrkaði næstum út heila fjölskyldu: „Það molaðist niður og grófst undir skriðunni“18. mars 2022 Að morgni laugardags 19. ágúst árið 1950 varð sá skelfilegi atburður á Seyðisfirði að aurskriða féll á tvílyft steinhús af miklu afli með þeim afleiðingum „að það molaðist niður og grófst undir skriðunni, sem gekk í sjó fram,“ líkt og því var lýst í Morgunblaðinu daginn eftir. Í húsinu bjuggu tvær fjölskyldur. Voru það hjónin Aðalbjörn Jónsson og Ingibjörg Magnúsdóttir...
InnlentÞungt fótatak og hrollvekja í eyðibýli á Ströndum: „Þetta er ömurlegt kvöld“17. mars 2022 Eiríkur Guðmundsson frá Dröngum í Strandasýslu lenti í eftirminnilegri lífsreynslu þegar hann fór á tófuveiðar 19 ára gamall. Hann og félagar hans upplifðu dulræn fyrirbæri sem enn hefur ekki fengist skýring á. Þetta var um hávetur, í febrúarmánuði árið 1914. Eiríkur var með tveimur öðrum mönnum við refaveiðarnar, einkum í landareign fjögurra eyðibýla, í Barðsvík, Smiðjuvík, Bjarnarnes og Látravík. Þegar...
InnlentÓhugnanlegt hvarf Frakka í Vestmanneyjum – „Ég held að hann hafi verið orðinn þunglyndur“16. mars 2022 Þegar Bernard skilaði sér ekki í kvöldmatinn fór vinafólk hans að hafa áhyggjur en hann var þekktur fyrir stundvísi. Þegar lengra leið á kvöldið var farið að svipast um eftir honum en ekkert sást til hans. Dagana á eftir var leitað hans en bar það engan árangur. Bernard Journet fæddist í Suður Frakklandi þann 9.júní árið 1946. Hann var mikið...
InnlentUng kona var myrt af eiginmanni sínum í Hamraborg í Kópavogi: Morðið var framið í stundarbrjálæði15. mars 2022 Aðfaranótt fyrsta dags nóvembermánaðar árið 2004 var lögreglan kvödd að fjölbýlishúsi í Kópavogi. Ung kona var látin og eiginmaður hennar játaði á staðnum að hafa banað konunni. Um var að ræða fjölskyldufólk sem lifði hefðbundnu lífi og var ekki í óreglu. Morðið var ástríðuglæpur, framið í stundarbrjálæði. „Oft er um að ræða ástríðuglæp milli maka eða fyrrverandi maka þar sem...
InnlentFjórir létu lífið í krapaflóðunum á Patreksfirði: „Eins og mórautt jökulhlaup félli úr gilinu“14. mars 2022 Laugardagurinn 22 janúar 1983 var örlagaríkur dagur fyrir íbúa Patreksfjarðar. Dagurinn var ekki frábrugðinn öðrum laugardögum nema að því leyti að halda átti þorrablót um kvöldið, margir voru því spenntir. Nóg var að gera hjá björgunarsveitinni á svæðinu en fjöldi tilkynninga hafði borist vegna úrhellisrigningar sem fallið hafði um nóttina. Moka þurfti snjó af þökum, dæla vatni úr kjöllurum og...
InnlentÍslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“11. mars 2022 Styrmir Gunnarsson heitinn er ekki eini njósnari Íslandssögunnar. Á meðan Styrmir njósnaði um vinstrisinnaða Íslendinga fyrir Bandaríkin og Sjálfstæðisflokkinn, reyndu Sovíetmenn að fá Ragnar nokkurn Gunnarsson til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar samband við lögregluna og tjáði þeim frá því að Sovíetmenn væru að biðja hann um að gerast njósnari í þeirra þágu. Við tók reyfarakennd atburðarás sem...
InnlentFaxaskjólsbeinin – Börn fundu mannabein við leik í Reykjavík10. mars 2022 Sumarið 1975 voru nokkur börn að leik við Faxaskjól í Reykjavík þegar þau rákust á mannabein. „Okkur brá svolítið, en svo héldum við bara áfram að leita,“ sögðu börnin í samtali við Morgunblaðið á sínum tíma. Beinin voru, ásamt sokkum, tölum og þremur byssukúlum í grunnri gröf. Strax var ljóst að ekki væri um fornleifar að ræða, efnið í sokkunum...
InnlentStokkseyrarmálið, eitt ógeðfelldasta ofbeldisbrot Íslandssögunnar -Frelsissvipting og misþyrmingar9. mars 2022 Stokkseyrarmálið er eitt af stærri sakamálum íslandssögunnar. Fimm menn voru meðal annars ákærðir fyrir þrjár stórfelldar líkamsárásir og frelsissviptingu, þeirra á meðal voru Stefán Blackburn og Stefán Logi Sívarsson en þeir eru báðir með langa sakaferla að baki. Þeir eru einir þekktustu glæpamenn landsins, bæði hjá almenningi og í undirheimunum og hafa framið sérstaklega ofbeldisfull brot. Mennirnir námu á brott...