Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Árásarmaður í jólasveinabúningi banaði manni í Mosfellsbæ: Ölvun réttlætti ekki framferði gerandans

Árásarmaður í jólasveinabúningi banaði manni í Mosfellsbæ: Ölvun réttlætti ekki framferði gerandans

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi 27 ára karl­mann í tveggja ára óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir stór­fellda lík­ams­árás sem leiddi til dauða manns á veit­inga­stað Mos­fellsbæ í des­em­ber 2004. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu nærri 15 millj­óna króna í skaða­bætur og máls­kostnað.

Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði gerst sekur um að greiða hinum látna hnefa­högg með þeim afleið­ingum að hann lést en í ákæru var kraf­ist refs­ingar fyrir stór­fellda lík­ams­árás, sem hafði í för með sér brot í hlið­ar­t­ind fyrsta háls­hryggjar­liðs og rof í slagæð við háls­hrygg. Við þetta varð mikil blæð­ing inn á höf­uð­kúpu sem leiddi til dauða Ragnars.

Árás­armað­ur­inn krafð­ist sýknu í mál­inu ellegar til væg­ustu refs­ingar. Hann mundi ekki eftir sam­skiptum sínum við fórn­ar­lambið á veit­inga­staðnum vegna ölv­unar. Var því stuðst við frá­sagnir sjón­ar­votta og skýrslu sér­fræð­inga.

Bar vitnum saman um að ákærði hefði slegið hinn látna hnefa­högg með þeim afleið­ingum að hann hneig í gólfið. Að fengnum þessum fram­burðum, og sam­hljóða áliti lækna um að dán­ar­or­sökin hefði verið högg efst á háls, var talið full­sannað að ákærði væri sekur um árás­ina.

Eiginkonan reyndi endurlífgun

Fórn­ar­lambið lést aðfar­arnótt 12. des­em­ber 2004. Aðdrag­and­inn var sá að hinn látni hafði staðið við and­dyri veit­inga­stað­ar­ins Ásláks með konu sinni er maður íklæddur jóla­sveina­bún­ingi tróðst inn og felldi niður glas sem brotn­aði við fætur manns­ins. Fórn­ar­lambið hellti sér í kjöl­farið yfir mann­inn sem brást reiður við og kýldi hann í háls­inn. Við það féll hann í gólfið og rak höf­uðið í.

Árás­armað­ur­inn yfir­gaf stað­inn en vinur hans náði honum og fékk hann með sér til baka. Lífg­un­ar­til­raunir eig­in­konu, eig­anda veit­inga­stað­ar­ins og síðan sjúkra­liða og uppi á Land­spít­ala báru ekki árangur. Kona fórn­ar­lambs­isn er hjúkr­un­ar­fræð­ingur en hún reyndi að blása lífi í hann og svo tóku við vinir föður míns og starfs­maður Ásláks, kokk­ur­inn á staðnum.  Slagæð hafði rifnað við höggið og blæddi mikið inn á höf­uð­kúpu manns­ins. Hann lést vegna mik­illar blæð­ingar á milli heila og innri heila­himnu.

Árás­armað­ur­inn hafði verið á grímu­balli í hlut­verki jóla­sveins. Hann var enn á staðnum og mjög ölv­aður er lög­reglan mætti á vett­vang og var hann strax hand­tek­inn.

Ásetningur ósannaður

Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að ákærði hefði frá­leitt haft vilja til þess að vinna hinum látna meiri háttar lík­ams­tjón og ósannað var að hann hefði borið ásetn­ing til að slá í háls hans fremur en and­lit. Ölvun ákærða gæti þó aldrei rétt­lætt fram­ferði hans en hún gæti horft til skýr­ingar á verkn­að­inum, sem beind­ist að manni sem ákærði hvorki þekkti né átti neitt sök­ótt við þegar þeir hitt­ust í fyrsta sinni.

Vitni sögðu að hinn látni hefði á engan hátt átt upp­tök að árásinni og taldi dóm­ur­inn að ekk­ert gæti rétt­lætt hana. Að því virtu, sem og því hve langt væri liðið frá árásinni og hve óvægna umfjöllun ákærði hefði sann­ar­lega hlotið hjá ein­stökum fjöl­miðlum þrátt fyrir ósann­aða sök, þótti hæfi­leg refs­ing tveggja ára fang­elsi.

Ákærði var dæmdur til að greiða ekkju hins látna 8,3 millj­ónir kr. í bætur og þremur börnum hans 3,8 millj­ónir kr. auk 2,8 millj­óna kr. í sak­ar­kostnað.

Málið dæmdi Jónas Jóhanns­son hér­aðs­dóm­ari. Verjandi var Björn Ólafur Hall­gríms­son hrl. og sækj­andi Ragn­heiður Harð­ar­dóttir vara­rík­is­sak­sókn­ari.

Heim­ildir:

Inn­lendar fréttir. 26.sept­em­ber 2006. Tveggja ára fang­elsi fyrir ban­væna lík­ams­árás. Ekkert sem rétt­lætti árás­ina á ókunn­ugan mann á Ásláki. Morg­un­blaðið.

Innlent. 13. des­em­ber 2004. Eig­in­konan reyndi end­ur­lífgun. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ