InnlentSkólaþjófur stal ruslatunnu – Ógnvaldur í miðborginni bölvaði lögreglunni og leyndi nafni sínu –13. júlí 2023 Ofbeldismaður fór um miðborgina í nótt og ógnaði blásaklausu fólki. Lögreglan mætti á vettvang og handtók manninn þar sem hann var til alls vís . Óróaseggurinn var fluttur á lögreglustöð en hegðun hans reynist vera óútreiknanleg. Hann var með ógnandi tilburði í garð lögreglu og „bölvaði lögreglumönnum í sand og ösku“ eins og segir í dagbók lögreglunnar. Maðurinn fékk ítrekað...
InnlentSkemmdarvargur á Seltjarnarnesi11. júlí 2023 Skemmdarvargur lék lausum hala á Seltjarnarnesi í gærkvöld. Óskað var aðstoðar lögreglunnar vegna framferðis mannsins og vegna eignaspjalla. Skemmdarvargurinn var handtekinn og reyndist vera viti sínu fjær vegna neyslu. Hann var læstur inni í fangaklefa þar sem hann verður þar til af honum bráir. Ökumaður handtekinn í miðborginni, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Hann var látinn...
InnlentTók kókaín með morgunverðinun10. júlí 2023 Stífdópaður ökumaður var handtekinn á höfuðborgarsvæðinu í gær. Lögreglan segir að hann hafi viðurkennt neyslu sína og að hann hefði „neytt kókaíns með morgunverðinum“. Þá kom einnig í ljós að ökumaðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum og hefur ítrekað verið staðinn að því að aka réttindalaus. Sá brotlegi var látinn laus að að dregið hafði verið úr honum blóðsýni. Búðarþjófar voru...
InnlentVeittist að maka sínum inni á lögreglustöð – Illa lyktandi þjófur í sykurleit nappaður í verslun9. júlí 2023 Mikil ölvun var á höfuðborgarsvæðinu í nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar og hafði lögreglan í nógu að snúast. Hér eru helstu atriðið næturinnar. Lögreglan sem þjónustar Austurbæ Reykjavíkur, miðbæinn, Vesturbæinn og Seltjarnarnes var kölluð í matvöruverslun vegna þjófnaðar á matvöru. Hafði aðili stolið níu súkkulaðistykkjum og einum rakspíra. Til kynnt var um mann sem grunaður var um sölu fíkniefna. Lögreglan hafði...
InnlentLögreglan kenndi rollum umferðareglurnar – Fluttur á slysadeild eftir árás frosinnar beyglu8. júlí 2023 Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru alls bókuð 50 mál á tímabilinu frá 05:00 í morgun til 17:00 í dag. Í miðbæ Reykjavíkur var aðili handtekinn fyrir ógnandi tilburði en hann hafði reynt að snapa fæting (slást) við vegfarendur. Vegna ástandsins á honum var hann handtekinn og látinn gista í fangageymslu. Var hann kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt. Hefði aðilinn...
InnlentSpiderman í annarlegu ástandi kleif hús – Ökumaður fjórhjóls ók undir áhrifum og valt8. júlí 2023 Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Mikið var um hraðakstur víðsvegar um borgina og voru þó nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna þess og sektaðir í kjölfarið. Lögreglan á stöð 1, sem þjónustuar Austurbæinn, Miðbæinn, Vesturbæ og Seltjarnarnes, fór í útkall vegna manns sem sem lék sér að því að skera á dekk og koma til...
InnlentÁhyggjufullt starfsfólk hótels hringdi á lögreglu en ástæðan var hin sorglegasta7. júlí 2023 Starfsfólk hótels í hverfi 103 hafði samband við lögreglu í gærkvöldi vegna manns sem var með ógnandi tilburði í garð gesta og starfsfólks. Þegar lögregla mætti á vettvang fór maðurinn ekki að fyrirmælum lögreglu og var hann að lokum handtekinn og vistaður í fangaklefa. Stuttu síðar barst lögreglu tilkynning um aðila sem var til vandræða á veitingastað í hverfi 105....
InnlentÓvæntar upplýsingar komu í ljós þegar lögregla hafði afskipti af manni í Laugardal6. júlí 2023 Lögreglu barst tilkynning í gærkvöld um mann í annarlegu ástandi í hverfi 104. Þegar betur var að gáð kom í ljós að viðkomandi hafði framið rán ásamt þremur öðrum fyrr um daginn. Maðurinn var handtekinn en hafði hann, ásamt öðrum, veist að erlendum ferðamanni og tekið af honnu verðmæti. Hluti ránfengsins er fundinn og er málið í rannsókn. Síðar um...
InnlentLögregla rannsakar óhugnanlegt mál þar sem maður var sleginn í höfuð með verkfæri5. júlí 2023 Lögregla var kölluð til í gærkvöldi til þess að vísa tveimur mönnum út úr bílageymslu en höfðu þeir komið sér þar fyrir í óþökk eiganda. Skömmu síðar hringdi starfsmaður verslunar á lögreglu og tilkynnti um þjófnað úr verslun. Lögregla fór á vettvang og afgreiddi málið á staðnum. Brotist var inn á leikskóla en engar frekari upplýsingar voru um málið í...
InnlentKarlmaður var stunginn í nótt: „Líðan hans er eftir atvikum“4. júlí 2023 Lögregla var kölluð út í nótt vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hnífi var beitt. Samkvæmt dagbók lögreglu var þolandi fluttur á bráðamóttöku og var hann með meðvitund. Líðan mannsins er eftir atvikum en málið er til rannsóknar. Þá veitti lögregla engar upplýsingar um geranda í málinu. Skömmu síðar barst lögreglu tilkynning um mikinn eld í grilli. Vel gekk að slökkva...
InnlentÍbúa krossbrá og hringdi strax á lögreglu í gærkvöldi en þetta var ástæðan3. júlí 2023 Íbúi á höfuðborgarsvæðinu brá heldur betur í brún í gær þegar hann áttaði sig á að brotist hafði verið inn heima hjá honum. Hann hringdi strax á lögreglu sem kom á vettvang en samkvæmt dagbók lögreglu er málið í rannsókn. Fyrr um kvöldið var lögregla kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi sem hafði ítrekað angrað gesti á bar í...
InnlentLögreglan elti uppi og náði bílþjófum og fleira kom í ljós2. júlí 2023 Það hlóp á snærið hjá lögreglumönnunum sem eltu uppi bílþjófa í Reykjavík. Tilkynnt var um þjófnað á bifreið og komst lögreglan fljótt á sporið og stöðvaði þjófana. Þá kom á daginn að þetta var sama fólkið og hafði verið að verki í öðru þjófnaðarmáli. Þarna voru því slegnar tvær flugur í einu höggi. Nokkuð var um grunsamlegar mannaferðir í umdæmi...