Innlent„Er fljót að gleyma því slæma“11. maí 2019 „Það er vissulega samdráttur en veitingastaðir sem eru orðnir tólf og sjö ára standa auðvitað mun betur að vígi en þeir sem eru nýir. Þeir eru orðnir rótgrónir og hafa tryggari rekstrargrundvöll,“ segir Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs.
InnlentTekur tíma að jafna sig á áfallinu10. maí 2019 Hrefna Rósa Sætran segir lokun Skelfiskmarkaðarins hafa verið áfall en það hafi samt að sumu leyti verið jákvæð reynsla að lenda í. Hún sé heldur ekki týpan sem dvelur við það leiðinlega í lífinu, hún haldi ótrauð áfram að gera sitt besta.
InnlentLokun Skelfiskmarkaðarins áfall9. maí 2019 Hrefna Rósa Sætran hefur verið í sviðsljósinu frá því hún var rúmlega tvítug sem sjónvarpskokkur, veitingahúsaeigandi og höfundur matreiðslubóka. Hún fékk óbilandi áhuga á matargerð strax í æsku og var orðin annar eigenda Fiskmarkaðarins 27 ára gömul. Hún segist að eðlisfari vera jákvæð manneskja sem ekki dvelji við óhöpp og sorgir en endalok Skelfiskmarkaðarins og aðdragandi þeirra hafi þó vissulega tekið mikið á.
InnlentGuðmundar- og GeirfinnsmálÞögn Katrínar meiðir meira5. maí 2019 „Ég er sár út í Katrínu. Ég fylltist von um að nú kæmi einhver niðurstaða sem mundi feykja skýjunum frá sólinni.“
InnlentGuðmundar- og GeirfinnsmálÞað er verið að hrúga salti í öll sár, dag eftir dag3. maí 2019 Erla Bolladóttir segir að enn sé margt órannsakað í þagnarhjúpi kerfisins í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálið og að stjórnvöld, allt til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherrra, sýni sakborningum sömu lítilsvirðingu og þau hafi alltaf mátt þola. Samt er ekki að finna að Erla sé bitur eða reið kona þegar blaðamaður hittir hana að máli. Þvert á móti er hún einkar yfirveguð og viðkunnanleg manneskja sem hefur barist lengi af einurð og yfirvegun fyrir réttlæti til handa sér og sínum í stærsta glæpamáli síðari tíma á Íslandi.
InnlentFékk ekki krónu borgaða fyrstu árin28. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson, sem nýverið var ráðinn til að lýsa enska boltanum í Sjónvarpi Símans næsta hausti, hefur verið lengi í íþróttafréttamennskunni og byrjaði strax á unglingsaldri að skrifa um leiki á heimasíðu síns félags, Víkings. En hvað kom til að hann tók þá ákvörðun að gera þetta að ævistarfi?
Innlent„Það vill enginn horfa á mann sem er 225 kíló“27. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson var í forsíðuviðtali á Mannlífi í gær þar sem hann sagði meðal annars frá mikilli lífsstílsbreytingu en árið 2014 var hann orðinn 225 kíló og átti erfitt með að hreyfa sig en er í dag 105 kíló og í fínu formi. Undir það síðasta átti hann orðið erfitt með að koma sér fram úr rúminu og þyngdin hafði hamlandi áhrif á frama hans í starfi.
InnlentVar með eina og hálfa manneskju utan á sér26. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson hefur verið ráðinn til að stýra þætti um enska boltann þegar Sjónvarp Símans tekur við útsendingum frá ensku deildunum í sumar. Hann segist vera ánægður með nýja starfið, þótt hann sé í eðli sínu lítið gefinn fyrir breytingar. Fáir hafa þó gert meiri breytingar á lífi sínu en hann undanfarin ár því árið 2014 var hann orðinn 225 kíló og átti erfitt með að hreyfa sig en er í dag 105 kíló og í fínu formi. Hann segir breytinguna jafnast á við að losna úr fjötrum.
Fólk„Ég átti rosalega erfitt fyrst eftir að hann dó“20. apríl 2019 Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir fylgdi föður sínum, Sveinbirni Bjarkasyni, í gegnum stigvaxandi alkóhólisma sem að lokum dró hann til dauða langt fyrir aldur fram. Sú reynsla hefur markað líf Guðrúnar Láru alla tíð en fyrir jólin sendi hún frá sér bókina Orðlaus þar sem hún kallast á við ljóð föður síns með upprifjunum á eigin reynslu. Hún segir vinnuna við bókina að mörgu leyti hafa verið frelsandi en hún glími þó enn við meðvirkni og aðrar afleiðingar þess að alast upp við alkóhólisma foreldris.
InnlentDraumurinn sem dó varð kveikjan að tónlistarferlinum12. apríl 2019 Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, betur þekkt sem tónlistarkonan GDRN, hefur verið á allra vörum undanfarna mánuði eftir að fyrsta plata hennar, Hvað ef, sló hressilega í gegn og sópaði til sín verðlaunum. Velgengnin hefur að sumu leyti komið Guðrúnu á óvart, enda ætlaði hún sér ekki að verða tónlistarkona heldur atvinnufótboltakona þegar hún var yngri. Slitin krossbönd bundu enda á þann draum og það var ekki fyrr en þá sem Guðrún hellti sér af fullum krafti út í tónlistina með þessum glæsilega árangri.
Innlent„Við eigum að vera í góða liðinu“5. apríl 2019 Biskup Íslands hefur áhyggjur af upprisu afla sem ala á ótta gagnvart innflytjendum og minnihlutahópum. Sjálf hefur hún skipað sér og kirkjunni í það lið sem berst gegn slíkum málflutningi með því að breiða út kærleik og virðingu.
Innlent„Hér er friður eins og ég hef aldrei upplifað áður“29. mars 2019 Elín Richter, Sindri Bjarkason og Amíra Snærós Jabali og skólasystkini þeirra berjast nú fyrir því að skólasystir þeirra, Zainab Safari og fjölskyldu hennar, verði ekki vísað úr landi. Fjölskyldan þráir að setjast hér að eftir líf á flótta en von hennar um mannsæmandi líf fer ört þverrandi.