Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ég átti rosalega erfitt fyrst eftir að hann dó“

Guðrún Lára Svein­björns­dóttir fylgdi föður sínum, Svein­birni Bjarka­syni, í gegnum stig­vax­andi alkó­hól­isma sem að lokum dró hann til dauða langt fyrir aldur fram. Sú reynsla hefur markað líf Guðrúnar Láru alla tíð en fyrir jólin sendi hún frá sér bók­ina Orðlaus þar sem hún kall­ast á við ljóð föður síns með upp­rifj­unum á eigin reynslu. Hún segir vinn­una við bók­ina að mörgu leyti hafa verið frelsandi en hún glími þó enn við með­virkni og aðrar afleið­ingar þess að alast upp við alkó­hól­isma for­eldris.

„Ég átti rosalega erfitt fyrst eftir að hann dó“

Guðrún Lára var ætt­leidd af Svein­birni Bjarka­syni og Krist­jönu Þrá­ins­dóttur ásamt systur sinni sem er tveimur árum eldri. Hún þekkti aldrei kyn­föður sinn en hefur alltaf vitað af kyn­móður sinni og verið í sam­bandi við hana annað slagið í gegnum tíð­ina. Framan af átti hún lit­ríka og áfalla­lausa æsku og seg­ist bara eiga góðar minn­ingar um for­eldra sína frá þeim tíma.

„Við pabbi vorum mjög náin,“ segir Guðrún Lára, sem reyndar er alltaf kölluð Lára, spurð um sam­band sitt við föður sinn. „Pabbi var hálf­gerð ævin­týra­per­sóna og náði vel til barna og við syst­urnar áttum margar eft­ir­minni­legar og góðar stundir með honum í æsku. Þegar ég var sex ára missti pabbi fyr­ir­tækið sitt og varð gjald­þrota og upp úr því byrj­aði hann að drekka stíft. Hann hafði drukkið áður, en ég man ekki eftir því að það hafi verið ein­hver vand­ræði. Mamma var flug­freyja og mikið að heiman, þannig að pabbi var mikið með okkur syst­urnar. En í kjöl­far gjald­þrots­ins misstu for­eldrar mínir íbúð­ina sína í Árbænum og fluttu í mið­bæ­inn í leigu­í­búð. Pabbi átti erfitt með að sætta sig við þetta og deyfði hug­ann í drykkju sem ágerð­ist og var orðin dag­leg. Það var eins og hann hefði verið rændur karakt­ernum sínum. Hann stjórn­aði okkur til­finn­inga­lega og beitti okkur alvar­legu and­legu ofbeldi á þessum tíma. Þetta voru erf­iðir tímar fyrir okkur öll þar sem við héldum alltaf í von­ina um að hann myndi taka sig á, eins og hann lof­aði svo oft. Því miður gerð­ist það ekki og drykkjan var orðin stjórn­laus. Hann hvarf heilu vik­urnar og hann var far­inn að beita mömmu lík­am­legu ofbeldi þegar þau skildu. Þá hef ég verið níu ára.“

Reyndi að stjórna drykkju föð­ur­ins
Eftir að for­eldrar hennar skildu umgekkst Lára föður sinn stop­ulla, en þær syst­urnar fóru þó alltaf til hans annað slagið og sóttu mikið í nær­veru hans, að hennar sögn. „Ég sótti mikið í pabba,“ segir hún. „Hann drakk líka þegar við vorum hjá honum en hann reyndi að halda því innan marka á meðan. Ég vor­kenndi honum og var ein­hvern veg­inn alltaf að reyna að passa upp á hann. Hélt að ef ég væri með honum þá myndi hann ekki drekka, en það var auð­vitað ekki þannig. Ég sé það í dag að þetta var rosa­leg með­virkni, maður sækir í ein­hvern sem maður er að reyna að stjórna með því að koma inn hjá honum sam­visku­biti. Ég tuð­aði oft í honum að hætta að drekka eins og ég veit að aðstand­endur gera. Ég man vel eitt sinn þegar ég bað hann að gefa mér það í afmæl­is­gjöf að hætta að drekka og hann svar­aði því að hann skyldi hætta að drekka ef ég myndi hætta að borða nammi. Ég sé það auð­vitað núna hvað hann var orð­inn rosa­lega veikur, að segja þetta við við mig.“

„Ég kom oft þreytt og tætt í skól­ann þegar mamma og pabbi voru enn saman og var orðin félags­lega ein­angruð. Sagði fátt og var orðin bæld í sam­ræðum við vin­konur mínar. Það hafði áhrif á vin­átt­una og tengsl við skóla­fé­laga.“

Spurð hvaða áhrif skiln­að­ur­inn og ástand föð­ur­ins hafi haft á hana, hvort það hafi til dæmis haft áhrif á árangur hennar í skóla, segir Lára að það hafi sjálf­sagt gert það að ein­hverju leyti, hún hafi verið ber­skjölduð og lent í hálf­gerðu ein­elti af hendi nokk­urra skóla­fé­laga þegar verst stóð á heima fyrir. „Ég kom oft þreytt og tætt í skól­ann þegar mamma og pabbi voru enn saman og var orðin félags­lega ein­angruð. Sagði fátt og var orðin bæld í sam­ræðum við vin­konur mínar. Það hafði áhrif á vin­átt­una og tengsl við skóla­fé­laga. Það end­aði svo á því að ég var skilin út undan og gert grín að því hvernig ég hag­aði mér.

Eftir að mamma og pabbi skildu og ég var hjá pabba kom ég líka oft seint eða mætti ekki þar sem pabbi var ekki í standi til að keyra mig í skól­ann, þá hringdum við inn veik­indi. Þetta hafði þau áhrif að ég var óör­ugg með sjálfa mig og fannst eins og allir sæju í gegnum mig, vanda­málin urðu stærri og ég gat ekki tjáð mig um þau.

Framan af átti Guðrún Lára lit­ríka og áfalla­lausa æsku og seg­ist bara eiga góðar minn­ingar um for­eldra sína frá þeim tíma.

Ég held að það ger­ist oft með krakka sem búa við slæmar heim­il­is­að­stæður, þeir verða ber­skjald­aðir, þá er létt­ara fyrir hina krakk­ana að atast í þeim.

Ég skamm­að­ist mín líka oft fyrir pabba og fékk síðan sam­visku­bit yfir því. Það fylgdi þessu enda­laus tog­streita. Einu sinni var ég að keppa í fót­bolta og pabbi kom á leik­inn. Hann var fullur og gólaði og öskr­aði inn á völl­inn. Honum fannst hann vera hvetj­andi og gerði sér enga grein fyrir því hvað þetta var orðið skammar­legt. Ég skamm­að­ist mín mikið fyrir hvernig hann hegð­aði sér og fann hvernig liðið mitt og þjálf­ar­inn vor­kenndu mér.“

Lára seg­ist ekki hafa fengið mikla aðstoð við að takast á við þessar stríð­andi til­finn­ingar, það hafi ein­hvern veg­inn ekki verið venjan á þeim tíma. „Kenn­ar­inn minn hafði sam­band við mömmu um að koma okkur systrum að hjá félags­ráð­gjafa í skól­anum og við fórum þangað. Ég hefði örugg­lega þurft að ganga til sál­fræð­ings á þessum tíma líka en þetta var bara öðru­vísi í gamla daga, það var ekki eins aðgengi­legt að fara til sál­fræð­ings eins og er í dag.

Eftir að mamma og pabbi skildu gift­ist mamma öðrum manni og við fluttum í Mos­fellsbæ. Þar fann ég meiri stöð­ug­leika heima fyrir og átti auð­veld­ara með sjálfa mig. Eign­að­ist ynd­is­lega vini sem ég held enn sam­bandi við og sjálfs­myndin efldist.“

Líka reið við mömmu
„Mamma var ekk­ert voða­lega hrifin af því að við værum svona mikið hjá pabba, en við vildum alltaf fara til hans og hann var yfir­leitt edrú þegar hann kom að sækja okkur, svo hún gat lítið gert. Ég laug líka að mömmu, sagði að hann hefði verið edrú þótt hann hefði verið fullur og svona. Við vorum oft mjög tættar þegar við komum heim og vildum ekki ræða neitt um það hvernig dvölin hjá pabba hefði verið. En þetta var allt svo flókið, ég var eig­in­lega bál­reið út í mömmu líka. Hún átti í fyrsta lagi ekk­ert að vera að skipta sér af þessu, þetta var pabbi okkar, en svo vildi maður líka að hún myndi taka utan um mann og hugga mann. Þetta var algjör til­finn­inga­rús­sí­bani.“

Lára seg­ist hafa brenglaða mynd af nánum sam­böndum og það hafi kannski markað hana hvernig sam­skiptin við föður hennar voru. Hún eigi erfitt með að treysta og viti eig­in­lega ekk­ert hvað eðli­legt sam­band sé. „Mamma mín og stjúppabbi minn áttu vina­legt sam­band og það er ágætt við­mið. En það er eins og ég kunni ekki að meta þannig sam­bönd sjálf og ég finn það alveg að ég hrífst af mönnum sem eru lík­ari pabba. Það er eitt­hvað sem ég er að vinna í og er mjög sátt við að vera ein í dag.“

Um það bil að gef­ast upp
Þegar Lára var í fram­halds­skóla var pabbi hennar nán­ast kom­inn á göt­una og orð­inn úti­gangs­maður, eða það sem kallað var á þeim tíma að vera að róni. Það hlýtur að hafa verið erfið reynsla. „Pabbi eign­að­ist líka aðra konu sem var okkur systur minni mjög góð og við eigum enn í dag í góðu sam­bandi við. Þau voru saman í nokkur ár en undir það síð­asta var sam­band þeirra slitr­ótt og átak­an­legt. Pabbi var orð­inn mjög veru­leikafirrtur og illa hald­inn af sínum sjúk­dómi. Eftir að þau skildu var nið­ur­leiðin hröð. Hann flutt­ist milli íbúða en gat ekki staðið í skilum með leig­una og kom sér fjár­hags­lega og and­lega á mun verri stað. Hann bjó oft­ast nálægt mið­bænum og umgekkst fólk sem var í slæmu ástandi líka. Um þetta leyti hætti ég að mestu að fara heim til hans, en ég reyndi samt að halda sam­bandi við hann þótt það væri erfitt. Hann var oft týndur eða hafði lent í slags­málum og lenti stundum upp á spít­ala nær dauða en lífi af drykkju og vímu­efnum. Ég man sér­stak­lega eftir einu skipti þegar hann hafði verið lagður inn með gröft í lung­unum og eitrun í blóð­inu og lækn­arnir sögðu okkur að það væri óvissa um ástand hans. Ég von­aði þó að hann myndi fara í með­ferð. En dag­inn eftir mætti ég upp á spít­ala og þá var hann far­inn, hann hafði farið í spít­alasloppnum með æða­legg­inn hang­andi framan á sér. Þá fékk ég nán­ast tauga­á­fall. Ég skildi ekki hvernig hægt var að hleypa mann­inum út og átti áhrifa­ríkt sam­tal við hjúkr­un­ar­konu. Hún benti mér á að það væri ekki hægt að halda fólki óvilj­ugu á spít­al­anum en ég gæti mögu­lega farið fram á að svipta hann sjálf­ræði tíma­bundið. Ég fór heim til hans til að athuga hvort hann væri þar og það reynd­ist rétt. Hann leit hræði­lega illa út, var gul­leitur á hör­und og gröftur lak úr hend­inni á honum. Hann gat ekki talað og augna­ráð hans var fjar­rænt. Ég bað hann að koma með mér aftur upp á spít­ala en hann hlust­aði ekki. Hann gekk út í átt að Aust­ur­velli. Ég gekk á eftir honum og sá hvernig fólk starði á hann. Hann gekk beint inn í ríkið og reyndi að kaupa sér áfengi en hafði bara tekið notað síma­frelsiskort með sér. Ég borg­aði fyrir hann og hljóp í burtu. Þessum tíma­punkti í lífi mínu gleymi ég aldrei. Pabbi sagði mér þó síðar að hann hefði farið aftur upp á spít­ala um nótt­ina og svo í fram­hald­inu á geð­deild.“

„Það var partí heima hjá honum þar sem 16 ára stúlku var nauðgað hrotta­lega af tveimur mönnum inni á bað­her­bergi. Hann sjálfur var áfeng­is­dauður inni í svefn­her­berg­inu á meðan því stóð og mundi ekk­ert.“

Lára seg­ist á þessum tíma hafa verið um það bil að gef­ast upp á föður sínum og það sama hafi gilt um alla aðra sem þekktu hann. „Vinur minn sagði mér einu sinni af því þegar hann hitti pabba niðri í bæ í slæmum frá­hvörfum og gaf honum pen­inga fyrir afrétt­ara og mat. Frænka mín grét eitt sinn í jóla­boði eftir að hafa hitt pabba á bekk í bænum. Sumir sem þekktu hann vildu ekki sjá hann, urðu reiðir og köll­uðu hann aum­ingja. Ég gerði allt þetta líka. Ég hitti hann líka stundum í mis­jöfnu ásig­komu­lagi. það var sárt að sjá hann og ég skamm­að­ist mín fyrir hann. En það erf­ið­asta var að hann vildi ekki hjálp og ég gat ekk­ert gert sama hvað ég reyndi.“

Lára segir fyrstu árin eftir að faðir hennar dó hafa ein­kennst af því að hún hafi keppst við að gera hluti sem hún vissi að hann hefði orðið stoltur af.

Svein­björn dó af völdum alkó­hól­ism­ans þegar Lára var tutt­ugu og fjög­urra ára, en áður hafði hann náð að vera edrú í tvö ár og þau ár voru afar mik­il­væg fyrir Láru. „Pabbi var á botn­inum þegar hann tók þá ákvörðun að verða edrú. Nánustu ætt­ingjar og vinir voru alveg búnir að loka á hann og það hefði ekki komið mörgum á óvart að hann hefði dáið á þessum tíma. Hann bjó á Snorra­braut­inni þegar hræði­legur atburður gerð­ist sem varð til þess að hann tók sig á og varð edrú,“ segir Lára og þagnar. „Það var partí heima hjá honum þar sem 16 ára stúlku var nauðgað hrotta­lega af tveimur mönnum inni á bað­her­bergi. Hann sjálfur var áfeng­is­dauður inni í svefn­her­berg­inu á meðan því stóð og mundi ekk­ert. Hann kenndi þó sjálfum sér um þetta og sá að hann vildi ekki lifa svona lengur. Hann hafði oft farið í með­ferð áður en aldrei náð tökum á edrú­mennsk­unni en í þetta sinn fór hann í gegnum allan með­ferð­ar­pakk­ann og var edrú í tvö ár eftir það. Sá tími var okkur dýr­mætur og hann vildi allt fyrir okkur systur og barna­börn gera, enda var hann ljúfur og góður maður. Þetta var eins og fá pabba aftur.“

Gat loks fyr­ir­gefið mér
Sælan ent­ist ekki lengi og Svein­björn fór að drekka aftur, sú drykkja dró hann hratt til dauða. Meðan hann var edrú hafði hann ætlað sér að gefa út ljóða­bók eftir sig og aðra sem höfðu gefið honum ljóð á förnum vegi. Sú bók átti að heita Orð. „Ég hafði hvatt hann árum saman til að safna ljóðum sínum og halda utan um þau og hann gerði það. Hann var kom­inn langt á leið með að setja ljóðin sín saman í bók áður en hann datt í það. Þegar hann var svo fall­inn reyndi ég að fá hann til að verða edrú aftur og lof­aði að aðstoða hann með bók­ina. Þá sagði hann kald­hæðn­is­lega að ef hann lifði það ekki að bókin kæmi út ætti hún að heita Orðlaus. Þegar hann dó sat ég uppi með heilan hell­ing af ljóðum, bæði eftir hann og aðra. Ég tók þau ljóð sem ég vissi að voru hans en það eru þrjú ljóð í bók­inni sem gætu mögu­lega verið ann­arra en þau fylgdu honum og eiga greini­lega erindi hvort sem þau eru hans eða ann­arra.

Daginn fyrir afmælið hans, 25. októ­ber 2007, var ég að bíða eftir honum heima hjá honum. Þegar hann kom heim var hann með kippur af bjór og orð­inn léttur. Hann hafði verið á brún­inni með að falla og hafði dottið tvisvar í það áður en þarna vissi ég að hann var fall­inn. Ég varð gjör­sam­lega eyðilögð. Ég gekk út frá honum eftir að hafa sagt alls konar leið­in­lega og sær­andi hluti við hann. Hann reyndi að hringja í mig en í fyrsta sinn ákvað ég að loka á hann og svar­aði honum ekki. Ég hélt þá að ég væri að gera rétt og þetta myndi jafn­vel hafa áhrif á að hann hætti. Ég hitti hann einu sinni aftur áður en hann dó. Þá kom hann í vinn­una til mín fullur og ég vildi ekki sjá hann. Ég heyrði af honum og þá var hann á stans­lausu fylliríi og orð­inn illa hald­inn á sál og lík­ama. Ef ég ætti að ráð­leggja sjálfri mér í dag, myndi ég ekki loka á hann. Ég hefði viljað svara sím­anum og segja honum að ég elskaði hann, þótt ég gæti ekki talað við hann núna.“

Spurð hvort hún hafi leitað sér hjálpar við að vinna úr til­finn­ing­unum sem þessi reynsla hefur valdið seg­ist Lára ekki hafa gert mikið af því. „Ég hef ekki farið til sál­fræð­ings en ég hef verið að vinna úr þessu með góðri konu og mér hefur loks­ins tek­ist að fyr­ir­gefa sjálfri mér,“ segir Lára og greini­lega er stutt í kökk­inn í háls­inum. „Það tók mig alveg svaka­lega langan tíma að fyr­ir­gefa mér.“

Forð­að­ist sjálfa sig
Lára segir fyrstu árin eftir að faðir hennar dó hafa ein­kennst af því að hún hafi keppst við að gera hluti sem hún vissi að hann hefði orðið stoltur af. Hún fór til dæmis í íþrótta­fræði og útskrif­að­ist sem íþrótta­fræð­ingur, vann við að kenna súlu­fimi og lík­ams­rækt í nokkur ár.

„Ég gerði þessi ár eig­in­lega að keppni við sjálfa mig,“ útskýrir hún. „Ég var alltaf að ögra sjálfri mér og flýta mér að klára þetta eða hitt. Ég held að það hafi verið mín leið til að reyna að kom­ast undan sorg­inni. Ég átti rosa­lega erfitt fyrst eftir að hann dó, en ég ein­hvern veg­inn lok­aði á allar til­finn­ingar, ég gat til dæmis ekki grátið, ég hló bara þegar eitt­hvað var sorg­legt. Fólki fannst þetta mjög skrítið og ég stóð mig að því að gera mér upp grát þegar ég vissi að maður ætti að gráta. Seinna kom það svo aftan að mér, ég var orðin rosa­lega þung og eirð­ar­laus en djöfl­að­ist bara áfram og lét eins og þetta væri ekk­ert mál. Ég gleymdi alveg að líta inn á við og þekkti ekki sjálfa mig, var bara svaka­lega hörð og lét eins og ég gæti allt. Síðan kom að því að ég meidd­ist illa í vinnu og gat ekki lengur gert það sem ég var vön að gera og þá breytt­ist allt. Þótt það hafi verið vont að meið­ast var þetta samt gott fyrir mig. Ég neydd­ist til að stoppa og fara að skoða sjálfa mig og hvernig mér leið í raun og veru.“

„Ég átti rosa­lega erfitt fyrst eftir að hann dó, en ég ein­hvern veg­inn lok­aði á allar til­finn­ingar, ég gat til dæmis ekki grátið, ég hló bara þegar eitt­hvað var sorg­legt. Fólki fannst þetta mjög skrítið og ég stóð mig að því að gera mér upp grát þegar ég vissi að maður ætti að gráta.“

Lára var alltaf með það í bak­hönd­inni að gefa ljóð föður síns út. Hún ætl­aði upp­haf­lega að gefa út hefð­bundna ljóða­bók og fór á nám­skeið í skap­andi skrifum 2012 hjá Þorvaldi Þor­steins­syni. Þar byrj­aði hún hins vegar að skrifa sínar eigin minn­ingar út frá ljóð­unum sem hún hafði setið á í fimm ár. Þor­valdur og hóp­ur­inn hennar hvöttu hana áfram og hún sendi Þorvaldi upp­kast að bók­inni í febr­úar 2013. Þá nótt lést Þor­valdur og hún tók sér langa pásu frá bók­inni eftir það. „Árið 2016 var ég nokkurn veg­inn búin að gef­ast upp á bók­inni. Þá kom vin­kona mín í heim­sókn til mín til Noregs þar sem ég bjó þá og ég sagði henni frá hand­rit­inu. Hún hvatti mig til að klára bók­ina og fékk tengda­mömmu sína, Helgu Har­alds­dóttur, til að aðstoða mig. Sú ynd­is­lega kona sneri mér í hring og gaf mér ráð sem breytti mörgu fyrir mér. Hún sagði mér að vera ég sjálf í minn­ing­unum mínum. Áður hafði ég búið til sögur eða verið ein­hver annar í minn­ing­unum. Það var erfitt að verða ég, en ég er mjög sátt við það í dag.

Að skrifa um mína eigin upp­lifun var afar hreins­andi fyrir mig. Eins konar heilun og það er meg­in­mark­mið mitt með þess­ari opin­berun að fá börn og ung­linga sem eiga erfitt með að tjá sig, til að skrifa og koma hlut­unum frá sér. Í dag er ég flug­freyja og ein­stæð móðir sex ára stelpu. Við mæðgur erum sam­rýndar og ég geri mitt besta til að sinna móð­ur­hlut­verk­inu og búa til góðar og eft­ir­minni­legar minn­ingar fyrir hana. Ég skrifa enn og á minn fantasíu­heim sem ég hverf inn í öðru hvoru. Það besta við sögu­heim­inn er að hann er óend­an­legur og maður getur gert og skapað það sem manni sýn­ist.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una