MannlífiðÞorskur í sítrónu- og smjörsósu21. september 2018 Fljótlegur og bragðgóður réttur sem er tilvalinn fyrir önnum kafið fólk.
MannlífiðBlóðappelsínu-spritz21. september 2018 Frískandi kokteill þar sem blandaður er saman nýkreistur blóðappelsínusafi, prosecco og kryddaður sætur vermouth. Ef blóðappelsínur eru ekki fáanlegur má nota bleikan greipaldinsafa í staðinn.
MannlífiðFljótlegur eftirréttur í miðri viku4. september 2018 Hér fá bláberin að njóta sín í bland við kardimommur og hnausþykka gríska jógúrt. Kardimommubragðið kemur virkilega á óvart og á vel við berin. Þessi eftirréttur getur líka verið sparilegur morgunmatur.
MannlífiðKaffikaka með hlynsírópskremi12. ágúst 2018 Þessi kaka er ein af mínum uppáhalds og ég reyni iðulega að finna tækifæri til að bera hana fram. Hún er sérstaklega tíguleg þegar notað er hringlaga og mynstrað formkökuform en þó má nota hringlaga form, tvö hefðbundin formkökuform eða 33x 23 cm kassalaga form.
MannlífiðFíkju- og geitaostabaka11. ágúst 2018 Þessa böku er mjög auðvelt að útbúa fyrir utan hvað hún bragðast dásamlega. Furuhnetur í bland við bragðmikinn ost og sætan frá ávöxtunum gera þennan rétt ómótstæðilegan. Tilvalinn smáréttur þegar von er á gestum og ekki mikill tími fyrir flókna eldamennsku.
MannlífiðHvað er hnúðkál?9. ágúst 2018 Hnúðkál flokkast ekki undir rótargrænmeti heldur undir garðkál. Það er skylt blómkáli, brokkólí og grænkáli. Hnúðurinn sem við borðum, eða kálhausinn er hluti af stilknum en ekki rótinni. Stilkurinn getur verið grænn, hvítur eða fjólublár en kjötið er alltaf hvítt.
MannlífiðLjúfur lambaborgari á grillið8. ágúst 2018 Að öllum líkindum hafa flest okkar borðað meira af hamborgurum í sumar en við getum talið enda með vinsælli sumarmat á landinu. Þó getur verið gaman að breyta til og prófa sig áfram með annað kjöt á borgarann og þá kemur íslenska lambakjötið sterkt inn.
MannlífiðEin góð í nestisboxið um helgina1. ágúst 2018 Einföld og meðfærileg kaka sem minnir á hjónabandssælu en í staðinn fyrir rabarbarasultu er notuð sykurlaus hindberjasulta. Mjög fljótlegt að henda í þessa fyrir helgina og ekki spillir fyrir að hún geymist vel og er í hollari kantinum.
MannlífiðPeach Melba15. júlí 2018 Pêche Melba er löngu orðinn klassískur eftirréttur og hefur verið á matseðlum veitingahúsa allt frá því að matreiðslumaðurinn frægi Georges Escoffier framreiddi hann fyrst fyrir óperusöngkonuna Nellie Melba undir lok 19. aldar. Melba var áströlsk að uppruna en hafði elt draum sinn um frægð og frama á óperusviðinu til Evrópu.
MannlífiðLinsubaunasúpa með brúnuðu smjöri, chili og kóríander12. júlí 2018 Linsubaunir hafa ávallt verið ódýr matur og héldu lífi í bændum og fátækari stéttum fólks í Evrópu. Þær eru einstaklega næringargóðar, orkuríkar og góð uppspretta trefja, fólats og járns. Ólíkt þurrkuðum baunum þarf ekki að láta linsubaunirnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leynast smásteinar í pokanum.
MannlífiðPasta með kjúklingabaunum og rósmarín-hvítlauksolíu5. júlí 2018 Pasta e ceci er klassískur ítalskur pastaréttur sem á uppruna sinn að rekja til Rómar. Ef til er skorpa af parmesanosti er gott að setja hana út í pottinn og sjóða með baununum. Einnig má nota kjúklingasoð í staðs vatns ef það er við höndina.
MannlífiðAsískur innbakaður lax með sesam-brokkolí2. júlí 2018 Einfaldur innbakaður lax með asískum hráefnum, ristuðu sesam-brokkolí og bragðmikilli sósu.