InnlentCovid-19Katrín greindist ekki með smit vegna COVID-1924. mars 2020 „Mér hafa borist þau ánægjulegu tíðindi að í sýni mínu væru engin merki um coronaveiru,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, í færslu á Facebook fyrr í dag. Katrín greindi frá því í gær að hún hefði þurft að fara í sjálfskipaða sóttkví þar sem smit hefði greinst í skóla yngsta sonar hennar, og sonurinn og eiginmaður Katrínar hefði farið í sóttkví....
InnlentCovid-19Nettó ræður inn fjölda starfsmanna til að anna eftirspurn í netverslun: Allt að tveggja sólarhringa bið eftir afgreiðslu24. mars 2020 Nettó hefur ráðið inn rúmlega 50 nýja starfsmenn, þar af 20 bílstjóra, og keypt yfir tíu nýja bíla til að anna mikilli eftirspurn í netverslun fyrirtækisins. Bílarnir bætast við þá sem fyrir eru af fyrirtækinu Aha, samstarfsaðila Nettó í netversluninni. „Viðskiptavinir okkar hafa verið einkar skilningsríkir á þessum óvissutímum og þeir eiga hrós skilið. Það hafa komið tímabil þar sem...
InnlentCovid-19Gleðipinnar loka nokkrum stöðum tímabundið og breyta opnunartímum24. mars 2020 Nokkrir veitingastaða Gleðipinna loka tímabundið og opnunartímar breytast. Áherslan á heimsendingar með Hreyfli og Take away. Skapandi lausnir og samstaða „Við höfum reynt eftir fremsta megni að vera til staðar fyrir okkar viðskiptavini í þessum aðstæðum og munum vera það áfram. Eftir að samkomubannið var þrengt í 20 manns ákváðum við að loka hluta staðanna okkar tímabundið frá og með...
HeimurCovid-19Dibango lést af völdum COVID-1924. mars 2020 Manu Dibango djassleikari lést í dag, 86 ára að aldri. Dibango lést eftir að hafa smitast af COVID-19 kórónaveirunni. „Hann lést snemma í morgun á sjúkrahúsi á Parísarsvæðinu,“ segir Thierry Durepaire útgefandi hans. Í færslu á opinberri Facebook-síðu hans segir að útför Dibango muni fara fram í kyrrþey og minningarathöfn verði skipulögð og haldin þegar hægt verður. Vinsælasta lag hans,... Myndband
InnlentCovid-19Andlát konu á Suðurlandi talið tengjast COVID-1924. mars 2020 Eldri kona með undirliggjandi lungnasjúkdóm lést laust eftir hádegi í gær, talið er að andlátið sé vegna COVID-19 kórónuveirunnar, en það er ekki staðfest. Fréttablaðið greinir frá andlátinu á forsíðu blaðsins í dag og staðhæfir að andlátið sé vegna COVID-19. Blaðið leitaði svara hjá Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, og Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, sem neituðu bæði að tjá sig um málið. Samkvæmt...
InnlentCovid-19Innan við 30 mínútur að safna fyrir súrefnisvélum: „Verulega ánægjulegt að finna fyrir samtakamætti samfélagsins“23. mars 2020 Í gærkvöldi var birt ákall frá hjúkrunarheimilum Fjarðabyggðar á Facebook síðunni Fjarðabyggð – Auglýsingar og viðburðir. Ákveðið var að leita til nærsamfélagsins eftir fjárstuðningi, meðal annars við kaup á sex öndunarvélum. Viðbrögðin létu svo sannarlega ekki á sér standa, en það tók innan við 30 mínútur að safna fyrir súrefnisvélunum. „Við erum klökk yfir öllum stuðningnum sem við fengum í...
InnlentFarðu út! – Þú þarft ekki að vera þar lengi23. mars 2020 Í samkomubanni er mikilvægt að hafa rútínu, og halda áfram að sinna því daglega. Í pistli á vefsíðu Ljóssins minnir Guðrún Friðriksdóttir, iðjuþjálfi, okkur öll á að fara út og hreyfa okkur utandyra, við þurfum ekkert að vera þar lengur en við viljum.
InnlentCovid-19Guðmundur Ingi kominn í sóttkví: „ Ég hef ekki fundið fyrir neinum einkennum og líður vel“23. mars 2020 Guðmundur Ingi Guðbrandssonu, umhverfis- og auðlindaráðherra, er kominn í sóttkví eftir að samstarfskona hans í ráðuneytinu greindist með COVID-19. Hann segir frá þessu á Facebook. Smitrakningarteymi hafði samband við Guðmund í gær. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neinum einkennum og segir líðan sína góða. Núna er hann að aðlaga sig nýjum aðstæðum og mun vinna að heiman. „Hugur manns...
InnlentCovid-19Smári McCarthy smitaður af COVID-19: „Ég er í stuttu máli ótrúlega heppinn með hvað þetta virðist vægt“23. mars 2020 Smári McCarthy, þingmaður Pírata, greinir frá því í færslu á Facebook að hann greindist með COVID-19 kórónuveiruna. „Jæja. Það kom að því. Fyrir rúmri viku fór ég í sjálfskipaða sóttkví eftir að ég fór að fá hósta. Það kom á daginn í gær eftir prufu á föstudaginn að ég er búinn að vera með Covid-19 smit. Ég er þokkalega hress,...
InnlentCovid-19Sum íslensk fyrirtæki sýna engin grið vegna COVID-1922. mars 2020 Formaður Neytendasamtakanna hvetur stjórnendur fyrirtækja til að koma til móts við neytendur með sanngjörnum hætti á tímum kórónaveirunnar. Hann telur mikilvægt að hafa sanngirni og stillingu að leiðarljósi. „Við hvetjum stjórnendur fyrirtækja til að koma til móts við viðskiptavini eins og þeir mögulega geta. Það eru engin fyrirtæki án neytenda.“ Þetta segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við Mannlíf....
InnlentCovid-19Hert samkomubann: Ekki fleiri en 20 mega koma saman22. mars 2020 Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt að samkomubann miðist nú við að eigi fleiri en tuttugu einstaklingar komi saman hverju sinni. Bannið tekur gildi á miðnætti annað kvöld, mánudaginn 23. mars. Gerir ráðherra þetta í samráði við tilmæli sóttvarnalæknis til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu. Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman verða óheimilar meðan...
InnlentNærmynd Alda D. Möller: „Bara engill af himnum ofan“22. mars 2020 Alma Dagbjört Möller landlæknir er ein þeirra sem staðið hefur í eldlínunni undanfarnar vikur vegna útbreiðslu COVID-19 kórónuveirunnar hér á landi. Þríeykið, Alma, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafa nær daglega setið upplýsingafundi, þar sem þau hafa svarað spurningum blaðamanna af yfirvegun og öryggi.