Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Farðu út! – Þú þarft ekki að vera þar lengi

Í sam­komu­banni er mik­il­vægt að hafa rútínu, og halda áfram að sinna því dag­lega. Í pistli á vef­síðu Ljóssins minnir Guðrún Frið­riks­dóttir, iðju­þjálfi, okkur öll á að fara út og hreyfa okkur utandyra, við þurfum ekk­ert að vera þar lengur en við viljum.

Farðu út! – Þú þarft ekki að vera þar lengi
Mynd / Unsplash|Guðrún Frið­riks­dóttir iðju­þjálfi

Við erum hluti af nátt­úr­unni en við munum ekki alltaf eftir því.

Sér­stak­lega þegar veðrið er eins og það hefur verið í vetur, þá viljum við alls ekki vita af teng­ing­unni eins og við myndum hunsa leið­in­legan ætt­ingja sem mætir alltaf í veislur með læti. Snjór á snjó ofan, stormar, hálka, hríð, snjó­flóð og ofsa­veður. Þá viljum við skilj­an­lega alveg endi­lega loka okkur af, vera inni í hlýj­unni og fylgj­ast bara með út um glugg­ann.

En inni­lok­unin getur orðið of mikil. Sér­stak­lega núna þegar fólk er hvatt til að vera heima þurfum við að muna að það er ekki endi­lega verið að hvetja okkur til að vera inn­an­dyra.

Vetur verður að vori

Það að „fara út“ þýðir heldur ekki tveggja tíma göngur í fjör­unni eða fjall­göngur eða sleða­ferðir eða sjó­sund. Að fara út getur ein­fald­lega verið að fara í hlýj­ustu úlpuna sína og standa úti á tröppum augna­blik. Loka aug­unum, finna beint fyrir geislum sól­ar­innar (eða kulda vinds­ins) án þess að hafa gler glugg­ans á milli, anda nokkrum sinnum inn og út og muna eftir því að við erum tengd nátt­úr­unni og nátt­úran er tengd okkur.
Þegar þú ferð út dag­lega, sér­stak­lega á þessum árs­tíma, sérðu þær hæg­fara breyt­ingar sem verða þegar snjór­inn hverfur (en hann kemur mögu­lega aftur um páska­leytið, það er páska­hretið, ekki örvænta) og líf vors­ins kviknar. Náttúran fer á sínum hraða, hægt og rólega, smátt og smátt á hverjum degi breyt­ist hún og það kemur sumar. Náttúran fer ekki of hratt, hún vinnur nákvæm­lega á þeim hraða sem hún þarf að vinna til að allt gangi upp. En ætli það sé ekki nokkuð algengt að fólk fatti allt í einu að það er komið sumar án þess að hafa séð það fæð­ast?

Guðrún Frið­riks­dóttir iðju­þjálfi

Vorið vaknar

Það er hægt að nota tím­ann á meðan sam­komu­bannið varir til að fylgj­ast með nátt­úr­unni leysa sig úr klaka­böndum vetr­ar­ins og um leið hægja aðeins á okkur sjálfum líka. Ef við vitum hvert við stefnum, eins og nátt­úran veit að hún stefnir að sumri, þurfum við ekki að flýta okkur. Við getum tekið eitt skref í einu eins og nátt­úran gerir og látum ekki hug­fall­ast ef það verður bakslag. Náttúran losar sig fyrst við snjó­inn áður en tréin fara að bruma og þrátt fyrir páska­hretið hættir nátt­úran ekki við að stefna að sumri. Að lokum er allur snjór­inn far­inn og tréin, grasið og plönt­urnar fara að taka við sér.

Sumarið nálgast

Notum tím­ann núna til að fylgj­ast með breyt­ing­unum og kannski finnum við ein­hverja breyt­ingu á okkur sjálfum líka? Stefnum við líka að ein­hverju eins áþreif­an­legu og nátt­úran stefnir að sumri? Hvaða skref erum við að taka til að nálg­ast okkar mark­mið? Hvaða snjór verður að bráðna, einn dropa í einu, til þess að við nálg­umst okkar mark­mið?

Lífið er ekki sprett­hlaup, sum­arið er ekki allt í einu komið, nema þegar við lifum of hratt til að taka eftir því. Það á allt sinn tíma og þetta eru ekki bara orð. Farðu út á hverjum degi og horfu á það með þínum eigin augum og and­aðu í leið­inni nokkrum sinnum inn og út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum