InnlentCovid-19Landsþingi Viðreisnar frestað vegna COVID-192. mars 2020 Í ljósi þeirrar óvissu sem skapast hefur eftir að smit vegna COVID-19 veirunnar greindust hér á landi, hefur stjórn Viðreisnar ákveðið að fresta Landsþingi flokksins sem átti að fara fram dagana 14. og 15. mars. Stefnt er að því að Landsþing fari þess í stað fram í haust og verður ný tímasetning auglýst síðar. Á heimasíðu flokksins segir að undanfarna...
HeimurCovid-19Covid-19 hættulegra körlum en konum2. mars 2020 Dánartíðni karlmanna sem sýkjast af kórónaveirunni Covid-19 er töluvert hærri en dánartíðni kvenna. Í greiningu sem Sóttvarnamiðstöð Kína birti fyrir helgina kemur fram að þótt jafnt hlutfall karla og kvenna sýkist af veirunni er dánartíðni karlanna 2.8 prósent en dánartíðni kvenna 1.7 prósent. Þetta er í samræmi við dánartíðni í öðrum kórónaveirusýkingum, til dæmis sýktust fleiri konur en karlar af...
InnlentCovid-19Þrír einstaklingar greindir í dag með COVID-192. mars 2020 Þrjú tilfelli veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómi voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í dag. Heildarfjöldi staðfestra tilfella er núna sex. Einstaklingarnir sem greindust með veiruna dag komu til landsins á laugardaginn með flugi Icelandair til Keflavíkurflugvallar frá Veróna. Þessir þrír einstaklingar, tvær konur og einn karl, eru allir á sextugsaldri og búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru ekki mikið...
InnlentCovid-19Fær ferð til Spánar ekki endurgreidda: „Er ekkert mið tekið af ástandinu í heiminum?“2. mars 2020 „Er ekkert mið tekið af ástandinu í heiminum?,“ spyr ung kona sem pantaði ferð fyrir alla fjölskylduna, sex einstaklinga og ungbarn með Heimsferðum til Spánar. Brottför er áætluð um miðjan júní, en í ljósi þess að COVID-19 veiran berst hratt um og tilfellum á Spáni fjölgar ákvað konan að kanna möguleika hennar á að fá ferðina endurgreidda, en hún er...
InnlentCovid-19Karlmaðurinn sem fyrstur greindist með COVID-19 útskrifaður í dag2. mars 2020 Karlmaður á fimmtugsaldri sem var fyrstur Íslendinga til að greinast með COVID-19 veiruna verður útskrifaður af spítala í dag. Hann hefur verið í eingangrun frá einangrun og er nú einkennalaus og því ekki talin ástæða til að halda honum lengur inn á spítala. Í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi sagði hann: „Ég er með lítil einkenni og er hér í...
InnlentCovid-19Landlæknir fundar með útfararstjórum2. mars 2020 Landlæknisembættið hefur boðað útfararstjóra landsins til fundar í byrjun vikunnar. Á fundinum verður farið yfir verkferla um hvernig á að meðhöndla lík þeirra sem látast vegna kórónaveirunnar COVID-19-sjúkdómnum. Fréttablaðið greinir frá þessu. Þar kemur fram útfararstjórum landsins hafi verið farið að lengja eftir þessum upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum þar sem talið sé að væg sýkingarhætta stafi af líkum þeirra sem látast...
InnlentCovid-19Martröð íslenskrar fjölskyldu á Tenerife: Fimm mánaða barnið flutt á spítala1. mars 2020 Langþráð frí fimm manna fjölskyldu frá Grundarfirði varð martröð líkast þegar fjölskyldufaðirinn þurfti í aðgerð á sjúkrahúsi á Tenerife, yngsta barnið smitaðist af RS-vírus, sandstormur frá Sahara hamlaði flugi og kórónaveiran greindist í ferðamönnum á svæðinu. „Við hugsum okkur allavega tvisvar um áður en við förum aftur til Tenerife,“ segir fjölskyldufaðirinn Tómas Freyr Kristjánsson. Tómas Freyr Kristjánsson. „Já, þetta hefur...
InnlentCovid-19Kona á fimmtugsaldri greind með COVID-19: Þriðja tilfellið á Íslandi1. mars 2020 Í kvöld var þriðja tilfellið af veirunni SARS-CoV-2 sem veldur COVID-19 sjúkdómi staðfest hér á landi á veiru- og sýklafræðideild Landspítala. Um er að ræða konu á fimmtugsaldri. Þau tilfelli sem greind hafa verið í dag tengjast bæði flugferðum á vegum Icelandair til landsins í gær; annars vegar flugi sem kom frá Veróna og hins vegar flugi sem kom frá...
InnlentCovid-19Annar íslenskur karlmaður greindur með COVID-191. mars 2020 Íslenskur karlmaður á sextugsaldri var greindur með COVIS-19 kórónaveiruna í dag. Maðurinn kom með flugi Icelandair frá Veróna á Ítalíu í gær. Á föstudag var íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri greindur með veiruna. Maðurinn sem greindist í dag sýnir lítil einkenni og verður hann heima hjá sér í sóttkví. Hafist verður handa við að rekja allar mögulegar smitleiðir í tengslum við...
InnlentLögreglan og landlæknir á móti áfengisfrumvörpum1. mars 2020 Mjög skiptar skoðanir eru um tvö frumvörp sem nú liggja fyrir í þinginu um breytingar á áfengislögum. Öðru frumvarpinu er ætlað að heimila sölu áfengis í vefverslunum. Markmið hins er að afnema þá refsingu sem finna má í lögum vegna heimabruggunar með gerjun. Óhætt er að segja að umsagnaraðilar frumvarps Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum skiptist í...
HeimurCovid-19Ákæra trúarleiðtoga fyrir manndráp vegna Covid-191. mars 2020 Borgaryfirvöld í Seúl hafa farið þess á leit við saksóknara að gefnar verði út ákærur á hendur Lee Man-hee, stofnanda Shincheonji-kirkjunnar, og ellefu öðrum. Fólkið er sakað um að hafa legið á upplýsingum á sama tíma og yfirvöld reyndu hvað þau gátu að rekja möguleg smit eftir að Covid-19 greindist meðal sóknarbarna kirkjunnar. Alls hafa 3.730 tilfelli Covid-19 greinst í...
InnlentCovid-19Fárveiku ungbarni þvælt á milli sjúkrahúsa þar sem faðirinn vinnur á Keflavíkurflugvelli: „Bíðum enn eftir svörum um hvað amar að barninu okkar“1. mars 2020 „Við fórum í einu og öllu eftir þeim ráðleggingum sem okkur voru gefnar,“ segir ung móðir sex mánaða gamals drengs í samtali við Mannlíf. Í gær birtist frétt á Suðurnes.net um það að foreldrum barnsins hefði verið meinaður aðgangur með hann að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem faðir drengsins vinnur á Keflavíkurflugvelli. Segir móðirin að fréttinni hafi verið deilt á samfélagsmiðlum...