SkoðunSteingerður SteinarsdóttirÁ réttvísi eitthvað skylt við réttlæti?4. ágúst 2019 Leiðari 27. tbl. Mannlífs 2019 Gyðja réttlætisins er blind og heldur á vogarskálum til marks um að hún sé hlutlaus. Allir vita samt að vogarskálarnar eru skakkar, á þær hefur verið hlaðið lóðum gildismats samfélagsins. Algert hlutleysi er ekki og verður aldrei til. Hvergi er þetta jafnaugljóst og í kynferðisbrotamálum. Lengi trúðu menn því að konur og börn kölluðu yfir...
SkoðunAðsend greinAfleiðingar spyrja ekki um ásetning30. júlí 2019 TW Trigger Warning/VVvarúð váhrif: lýsingar á kynferðisofbeldi og afleiðingum þess Höfundur / Helga Baldvins Bjargardóttir Ég á ótal minningar um fólk sem fer yfir mín kynferðislegu mörk en þrjú atvik standa þar upp úr og hafa haft hvað mest áhrif á líf mitt. Fyrst var það kynferðislegt ofbeldi sem ég varð fyrir af hálfu konu sem tengist mér fjölskylduböndum og...
Innlent„Þessi vinnubrögð lögreglunnar og ríkissaksóknara kalla ég brot í opinberu starfi“27. júlí 2019 Aldís Schram flutti aðra af aðalræðum Druslugöngunnar á Austurvelli í dag og fór hörðum orðum um opinbera stjórnsýslu gagnvart sér. Hún vitnaði meðal annars í skýrslu lögreglu sem unnin var úr yfirheyrslu lögreglu við Aldísi eftir að hún kærði ólögmætar nauðungavistanir en skýrslan er í mörgun atriðum í ósamræmi við það sem Aldís sagði í raun og veru. Auk Aldísar tóku dóttir hennar Tatjana Dís Aldísardóttir og lögmaðurinn Helga Baldvins Bjargar til máls. Hér má sjá ræður þeirra í fullri lengd.
InnlentÓttaðist að fólki fyndist hún ógeðsleg27. júlí 2019 Druslugangan verður farin í níunda sinn í dag en tilgangur hennar er að sýna brotaþolum kynferðisofbeldis samstöðu og krefjast betra réttarkerfis og bætts samfélags. Að göngu lokinni verður skipulögð dagskrá á Arnarhóli, tónlistaratriði og ræðuhöld en meðal þeirra sem taka til máls er Sigrún Bragadóttir sem hefur meðal annars vakið athygli fyrir að tala opinskátt um afleiðingar kynferðisofbeldis sem hún varð fyrir.
Innlent„Druslugangan bjargaði lífi mínu“24. júlí 2019 Druslugangan verður gengin í níunda sinn hér á landi næstkomandi laugardag til að vekja athygli á kynferðisofbeldi og færa ábyrgð kynferðisafbrota frá þolendum yfir á gerendur. Druslugangan sýnir brotaþolum kynferðisofbeldis samstöðu og krefjast betra réttarkerfis og bætts samfélags. Eva Sigurðardóttir er hluti af skipulagsteymi Druslugöngunnar.
InnlentSöfnuðu tæplega fjórum milljónum í málfrelsissjóð23. júlí 2019 Tæplega fjórar milljónir króna söfnuðust í málfrelsissjóð á einum mánuði.
InnlentÁkæra á hendur Kevin Spacey felld niður18. júlí 2019 Saksóknarar í Massachusetts-ríki í Bandaríkjunum hafa fallið frá rannsókn í máli leikarans Kevin Spacey.
InnlentHótar að leka kynlífsmyndbandi með Heru Björk3. júlí 2019 Söngkonan Hera Björk gerir lítið úr hótanunum hakkara sem segist ætla að leka kynlífsmyndböndum með henni á Netið.
Innlent„Ég hef aldrei orðið eins hrædd“2. júní 2019 Nara Walker hlaut dóm á Íslandi fyrir ofbeldi gegn þáverandi eiginmanni sínum sem hafði beitt hana ofbeldi í áraraðir. Hún var nýlega látin laus úr fangelsi en býr hér sem réttlaus kona. Hér á eftir fer lýsing á örlagaríka kvöldinu þegar Nara fékk nóg af ofbeldinu og varðist manninum. Athugið, frásögnin er alls ekki fyrir viðkvæma.
InnlentRefsað fyrir að velja að lifa1. júní 2019 Nara Walker sem var dæmd til fangelsisvistar fyrir að hafa bitið hluta af tungu þáverandi eiginmanns síns eftir langvarandi ofbeldi sem hún lýsir í nýjasta tölublaði Mannlífs ætlar ekki að játa sig sigraða fyrir óréttlætinu heldur fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.
Innlent„Þessi lífsreynsla hefur gjörbreytt mér“26. maí 2019 Kynferðisbrotamál hafa verið mikið í umræðunni síðustu ár og Sigurþóra Bergsdóttir sem er í forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs hefur tekið virkan þátt í þeirri umræðu. Hún hefur ákveðnar væntingar til þess að málaflokkurinn muni breytast til hins betra.
InnlentAlvarlegt ef þolendur kynferðisofbeldis fá ekki aðstoð14. maí 2019 Móður ungs barns, sem sætti kynferðisofbeldi af hálfu tveggja jafnaldra sinna og samnemenda í skóli, sagði í samtali við Mannlíf að fjölskyldan hafi ítrekað lent á veggjum í kerfinu eftir að upp komst um ofbeldið. Sigríður Björnsdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastjóri forvarnarverkefnisin Blátt áfram segir sögu móðurinnar ekki koma á óvart þar sem hún sé því miður ekki einsdæmi.