Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þessi vinnubrögð lögreglunnar og ríkissaksóknara kalla ég brot í opinberu starfi“

Aldís Schram flutti aðra af aðal­ræðum Druslu­göng­unnar á Aust­ur­velli í dag og fór hörðum orðum um opin­bera stjórn­sýslu gagn­vart sér. Hún vitn­aði meðal ann­ars í skýrslu lög­reglu sem unnin var úr yfir­heyrslu lög­reglu við Aldísi eftir að hún kærði ólög­mætar nauð­unga­vist­anir en skýrslan er í mörgun atriðum í ósam­ræmi við það sem Aldís sagði í raun og veru. Auk Aldísar tóku dóttir hennar Tatjana Dís Aldís­ar­dóttir og lög­mað­ur­inn Helga Baldvins Bjargar til máls. Hér má sjá ræður þeirra í fullri lengd.

„Þessi vinnubrögð lögreglunnar og ríkissaksóknara kalla ég brot í opinberu starfi“
|Fjöl­menni var á Aust­ur­velli þegar ræður voru fluttar í dag. Mynd/Mannlíf|Tatjana Dís

„Gleði­legan dag, kæru landar.
Aldís heiti ég Schram.
Sú hin sama sem á fyrir svo­kall­aðan föður fyrrum ráð­herra og sendi­herra er nú hefur verið opin­ber­lega bor­inn sökum um kyn­ferð­is­brot af 23 konum (að mér með­taldri) og stritar við það að telja þjóð­inni trú um almætti mitt, þ.e. að ég hafi allar þessar konur á mínu valdi – þess vald­andi að vitn­is­burð­unum um kyn­ferð­is­brot hans hefur nú fjölgað nú upp í 43. Þessa sömu rullu þuldi umræddur frammi fyrir þjóð­inni árið 2012, af því til­efni að Guðrún Harð­ar­dóttir birti þá opin­ber­lega þau bréf sem hann hafði skrifað henni í æsku, þar sem hann m.a. lýsir sér sem „sígröðum geit­hafri“ sem „serðir án afláts“ konur „í drauma­heimum.“

Svo er það ég sem á að heita „geð­veik!“

Það er það fagn­að­ar­er­indi sem hann ásamt konu sinni hefur keppst við að breiða út allar götur síðan árið 1992, er ég í fyrsta sinni hermdi upp á hann kyn­ferð­is­glæpi. Með þeim lyktum að ég var nörruð upp á geð­deild Land­spít­al­ans, greind á korteri með „alvar­legt ítr­kekað þung­lyndi“ og „maníu“ (sem er þver­sögn!) og síðan látin sæta nauð­ung­ar­vistun, mán­að­ar­langt, án laga­heim­ildar, þar sem hún var hvorki borin undir ráðu­neyti né dóm eins og bar lögum sam­kvæmt.

Með þeim afleið­ingum að þaðan í frá mátti ég mín einskis gegn inn­rásum lög­regl­unnar, í fimm­gang, í kjöl­far þess að ég bar upp á þennan (þá) hæst­virta föður minn fleiri kyn­ferð­is­brot gagn­vart öðrum (en sjálf mundi ég ekki eftir því hvað hann hafði gert mér fyrr en árið 2002).

Það sama ár, nánar til­tekið þann 13. apríl, sneri ég vörn í sókn og til­kynnti kyn­ferð­is­brot beið­anda nauð­ung­ar­vistana minna til lög­reglu, af því til­efni að þá voru til gögn sem sönn­uðu hvern mann, sendi­herr­ann, hafði að geyma, þ.e. hans eigin bréf til hins móð­ur­lausa stúlku­barns, Guðrúnar Harð­ar­dóttur. Með þeim mála­lyktum að ég, 10 mín­útum seinna, var fyrir beiðni móð­ur­innar, hand­tekin, og fyrir beiðni föð­ur­ins, nauð­ung­ar­vi­stuð. Sem hinn háæru­verð­ugi faðir minn síðan hamp­aði opin­ber­lega, árið 2012, sem sönnun þess að hann væri sak­laus af sök um kyn­ferð­is­brot gagn­vart Guðrúnu Harð­ar­dóttur. Þá var mér, sem hafði reynt að gleyma og fyr­ir­gefa (sem var full vinna því ein­hverra hluta vegna trúðu æ fleiri mér fyrir því sem þeir höfðu liðið af hendi föður míns), nóg boðið. Ég get og hef sætt mig við að vera útskúfuð úr sam­fé­lag­inu vegna ljúg­vitnis for­eldr­anna – af því ég hef það sem máli skiptir – dásam­lega dóttur, trausta vini og gef­andi starf, en það sem ég hvorki vil, mun, né á að þurfa að sætta mig við er að vera sökuð um það að vera svo illa inn­rætt að ljúga kyn­ferð­is­brotum upp á sjálfan föður minn. Það er rangt og það er órétt­látt.

Fjöl­menni var á Aust­ur­velli þegar ræður voru fluttar í dag. Mynd/Mannlíf

Fyr­ir­gefn­ing er jú holl, en hún á ekki að frýja ill­gjörð­ar­menn ábyrgð gjörða sinna. Ég ákvað því að sækja umræddan aftur til saka. En fyrst þurfti ég að fá það tryggt að ég yrði ekki hand­tekin og nauð­ung­ar­vi­stuð fyrir vikið. Því var það að ég, þann 6. sept­em­ber árið 2013, ark­aði á fund lög­reglu­stjóra og spurði hann í við­ur­vist Harðar Jóhann­es­sonar, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra, hvort ég, kyn­ferð­is­brota­þol­inn, mætti eiga von á því að vera hand­tekin aftur, ef ég kærði ger­and­ann. Lög­reglu­stjór­inn kvað nei við. Síðan lýsti ég því yfir að ég ætl­aði að leita réttar míns gagn­vart föður mínum, alls­endis grun­laus um að umræddur Hörður hafði, árinu áður, kvittað upp á það fyrir umræddan ger­anda að hvorki hann né kona hans hefði nokkrun tíma „beðið lög­reglu um aðstoð af neinu tagi“ mín vegna – sem eru ósann­indi eins og lög­reglu­gögn sanna.

Nokkrum dögum síðar – eins og við var að búast, gerði móðir mín til­raun til að láta loka mig inni með hring­ingum sínum til geð­deildar sem og heim­il­is­læknis míns en varð ekki kápan úr því klæð­inu þar sem hann tók hana ekki á orð­inu og á ég það því þessum lækni mínum að þakka að ég gat mætt í skýrslu­tök­una, þann 8. okt­o­ber árið 2013. Þar rakti ég mála­vexti ítar­lega, frammi fyrir kameru, með vísan í fram­lagða skrif­lega skýrslu mína og meðf. sönn­un­ar­gögn, er sanna aðal­kæru­efnið sem var „ólög­mæt nauð­ung­ar­vistun.

Kyn­ferð­is­brot kærða – sem hann þá mér vit­an­lega hafði gerst sekur um að sögn 20 aðila (að mér með­taldri), gat ég ekki hins vegar ekki kært af þeirri aug­ljósu ástæðu að þau sem hann hafði framið gagn­vart mér voru fyrnd. En viti menn, kæru minni var vísað frá af þeirri yfir­lýstu ástæðu að kyn­ferð­is­brot kærða – sem rang­lega eru sögð hafa verið „kærð,“ falli ekki undir kyn­ferð­is­brotakafla alm. hgl. og „að öðru leyti“ þyki „ekki efni til að hefja rann­sókn út af kærunni.“ Þá ákvörðun stað­festi síðan rík­is­sak­sókn­ari þann 28. febr­úar 2014, þótt svo hann árétti sjálfur í bréfi sínu að ég hefði „tekið fram í skýrslu­tök­unni“ að ég væri að „til­kynna“ um kyn­ferð­is­brot kærða en „ekki að leggja fram kæru.“ M.ö.o. byggir þessi nið­ur­staða á ófull­nægj­andi og röngum upp­lýs­ingum.

Aldís Schram flytur ræðu sína á Aust­ur­vell í dag. Mynd/Mannlíf

Því var það að ég fór þess á leit að fá afritun af upp­tök­unni af skýrslu­tök­unni, er ég fékk loks í des­em­ber árið 2015. Og þar með fæ ég sannað að rann­sókn­ar­lög­reglan, í hlut­drægri „sam­an­tekt“ sinni á „aðal­at­riðum“ kæru­skýrslu minnar, ýmist rang­færir hana eða leynir aðal­at­riðum hennar. Þ.e. „aðal­kæru­efn­inu“ sem var „nauð­ung­ar­vist­anir.“ Sem hún nefnir ekki á nafn og kallar „sjúkra­húsinn­lagnir.“ Og þar með gefur til kynna að kæru­efnið sé það að ég hafi lagst inn á sjúkra­hús!

Eins og síðan rík­is­sak­sókn­ari, sem kallar nauð­ung­ar­vistun mína „vistun.“ Er leynir alvöru glæps­ins – sem rík­is­sak­sókn­ari tók ekki til efn­isum­fjöll­unar að öðru leyti en því að hann sagði „mat lækna“ liggja fyrir um „veik­indi“ kær­anda. Eigi hann við „geð­hvarfa­sjúk­dóm“ þá rétt­lætir hann per se ekki nauð­ung­ar­vistun enda ætti því sam­kvæmt að loka inni þrjú pró­sent þjóð­ar­innar!
Þessi vinnu­brögð lög­regl­unnar og rík­is­sak­sókn­ara kalla ég brot í opin­beru starfi. Látum gögnin tala sínu máli. Tanja, dóttir mín og Helga Baldvins Bjargar, hdl., ætla nú að lesa þau upp.“

. . .

Tatjana Dís Aldís­ar­dóttir les:

„Starfs­maður geð­deildar Land­spít­al­ans skrifar:
„Fékk sprautu gegn vilja sínum kl. 9:00…
Leið illa, grét, spurði um barnið sitt. Var reið út í inn­lögn­ina og bað um lög­fræð­ing … mjög
meir og við­kvæm. Hefur grátið tölu­vert …
Fljót­lega var sjúk­lingur orðin mjög stíf í kjálka­vöðvum og í tung­unni … átti erfitt með mál og gat varla borðað …
Fékk röng lyf kl. 18:00.
Sjúk­lingur kvartar undan fótap­irr­ingi … Talsvert lyfjuð … Kvartar yfir slapp­leika … er
drug­geruð tölu­vert, ör og dóm­greind­ar­laus … ein­beit­ing er lítil …
Mjög lyfjuð í morgun og slag­aði um gang­ana … er með kippi í munn­vik­unum … Vildi ekki
svona ávana­bind­andi lyf … Hefur áhyggjur af auka­verk­unum af ýmsum lyfjum.“

Hjúkr­un­ar­fræð­ingur skrá­setur eft­ir­far­andi:
„Þokka­lega snyrti­leg. Tal­þrýst­ingur og er æst og þrætir. Ókurteis á köflum.“ „Ásakanir gagn­vart föður. Ekki vitað hvort réttar.“

Geð­læknir skrifar:
„ … hefur verið með ásak­anir á sína nán­ustu eins og stundum þegar hún hefur verið ör og úr raun­veru­leika­tengslum.“

Annar geð­læknir skrifar:
„ … stutt í pirr­ing og æsing sér­stak­lega ef fjöl­skyldu­mál ber á góm. Þá hefur borið tölu­vert á rang­hug­myndum og ásök­unum af kyn­ferð­is­legum toga.“

Sá þriðji skrifar:
„Mikil reiði og taum­lausar ásak­anir í garð fjöl­skyldu sinnar einkum föður. Óvíst hvort um
hreinar rang­hug­myndir sé að ræða.“

Enda veitti Ólafur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga, Aldísi afsök­un­ar­beiðni fyrir hönd Land­spít­al­ans þann 11.11. árið 2014.“

Tatjana Dís, dóttir Aldísar, flutti brot úr sjúkra­skýrslum Aldísar.Mynd/Mannlíf

. . .

Helga Baldvins Bjargar, lög­maður, les:

„Sú sem hér stendur horfði á upp­tök­una af skýrslu­gjöf Aldísar hjá lög­reglu frá 2013. Mynd­bandið er 2 klst og 23 mín. Í tæp­lega tveggja blað­síðna skrif­legri skýrslu lög­regl­unnar segir:
„Eft­ir­far­andi sam­an­tekt var gerð um skýrsl­una. Tekið skal fram að stiklað er á aðal­at­riðum í
sam­an­tekt­inni en um smæstu atriði vís­ast á hljóð- og mynd­ritun skýrsl­unnar.“

Eftir að hafa bæði lesið lög­reglu­skýrsl­una og horft á alla upp­tök­una vil ég koma nokkrum
athuga­semdum á fram­færi:

Í skýrsl­unni er margoft ekki greint frá því sem Aldís segir eða rangt farið með frá­sögn
hennar. Mig langar að taka hér þrjú dæmi:

Á upp­tök­unni segir Aldís: „Við vökn­uðum allar við hann um nætur – ég nátt­úru­lega hélt bara í asna­skap mínum – ég hef ekki sam­an­burð­inn … að svona væri þetta bara, að maður vakn­aði við föður sinn uppi í rúmi hjá sér.“
Í lög­reglu­skýrsl­unni segir: „Aldís tal­aði um að [hann] hafi staðið yfir rúmi þeirra … þegar
hún var ung.“

Á upp­tök­unni segir Aldís frá því að hún sé með 20 vitn­is­burði nafn­greindra aðila um
kyn­ferð­is­brot í skýrslu sem hún leggur fram og seg­ist „vona að lög­reglan lesi vitn­is­burð­inn
þeirra.”
Í lög­reglu­skýrsl­unni segir: „Aldís tal­aði mikið um meint kyn­ferð­is­brot [hans] gegn öðrum
stúlkum og kvaðst hún vera með undir höndum vitn­is­burði sumra þeirra.“

Á upp­tök­unni segir Aldís: „Við erum 5 sem höfum vaknað við hann um nætur …
Í lög­reglu­skýrsl­unni segir: „Hún sagði lít­il­lega frá því sem þessar stúlkur hefðu sagt
henni.“

Þá eru mörg atvik sem Aldís lýsir í skýrslu­tök­unni sem ekki er greint frá í sam­an­tekt
lög­regl­unnar á „aðal­at­riðum!“

• Í lög­reglu­skýrsl­unni er ekki greint frá því að það eru ásak­anir Aldísar um kyn­ferð­is­brot, sem eru í öllum til­vikum aðdrag­and­inn að beiðnum um nauð­ung­ar­vist­anir hennar.
• Það er ekki greint frá meintum brotum á reglum varð­andi nauð­ung­ar­vist­anir og ólög­mætar þving­aðar lyfja­gjafir.
• Það er ekki greint frá því að sumar beiðnir um nauð­ung­ar­vist­anir eru skrif­aðar á
bréfs­efni sendi­ráðs þar sem beið­and­inn titlar sig sendi­herra Íslands.
• Í lög­reglu­skýrsl­unni er dregið mjög úr alvöru sak­ar­efn­is­ins með því að kalla meintar
ólög­mætar nauð­ung­ar­vist­anir ýmist „sjúkra­húsinn­lagnir“ eða „aðgerðir.“
• Það er ekki greint frá meintu ólög­mætu hús­broti sem Aldís sætti af hálfu systur sinnar
og lög­reglu þann 9. apríl 1998.
• Það er ekki greint frá því að hið meinta hús­brot er skráð í mála­skrá lög­reglu sem
„aðstoð við erlend sendi­ráð.“
• Það er ekki greint frá meintri hand­töku sem Aldís sætti þann 13. apríl 2002.
• Það er ekki greint frá því að sú hand­taka átti sér stað 10 mín­útum eftir að hún hringdi í
lög­reglu til að til­kynna um meint kyn­ferð­is­brot föður síns.
• Það er ekki greint frá því að sam­þykki ráðu­neyt­is­ins á nauð­ung­ar­vistun Aldísar árið
2002, var veitt áður en beiðnin barst ráðu­neyt­inu skv. mót­t­töku­stimpli.
• Það er ekki greint frá því að allar þessar nauð­ung­ar­vist­anir fóru yfir þann tíma sem lög
heim­ila án þess að fyrir því lægi úrskurður dóm­ara um sjálf­ræð­is­svipt­ingu hennar, eins
og lög kveða skýrt á um að þurfi.

Orðrétt segir í skýrslu lög­regl­unnar:
„Aldís byrj­aði á því að segja frá meintum mann­rétt­inda­brotum [föður síns] gegn henni er
varðar sjúkra­húsinn­lagnir hennar. Hún sagði að [hann] hefði í skugga stöðu sinnar sem
utan­rík­is­ráð­herra hér á árum áður beitt sér fyrir því að hún yrði lögð inn á geð­deild og gefin
lyf.“
„Aldís fór mik­inn um geð­heilsu sína í skýrslu­tök­unni og hélt því stakkt og stöðugt fram að
[faðir hennar] væri á bak við þær aðgerðir.“ „Hún vildi að lög­regla myndi ræða við þolendur
[hans] og kom­ast að hinu sanna í mál­inu.““

. . .

Aldís tekur þá aftur við:

„Hall­grímur Pét­urs­son kvað:
Vei þeim dóm­ara, er veit og sér
víst hvað um málið rétt­ast er
vinnur það þó fyrir vin­skap manns
að víkja af götu sann­leik­ans.

Má ég eiga von á rétt­látri úrlausn minna mála?
Það ræðst af við­brögðum lög­reglu­stjóra, heil­brigð­irs­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra sem hafa fengið gögn í hendur er sanna þessi alver­legu brot í opin­beru starfi. Svo þið megið búast við fram­halds­sögu – en ég lofa ykkur ekki að hún fáist birt!

Kæru landar.

Það er hægt að sporna gegn kyn­ferð­is­glæpum með breyt­ingum á núgild­andi lögum og setja
skýrar reglur til að tryggja fram­fylgd þeirra. Og ef þeir sem fara með þau völd fyrir okkur,
þegja yfir öllu röngu, þá verðum við víst að vinna verkin fyrir þau.
Það getum við, ef sam­einuð stöndum.
Berjumst saman og upp­rætum kyn­ferð­is­of­beldi í þessu ást­kæra landi okkar!“

. . .

Ljóð sem Aldís vildi láta fylgja með en seg­ist hafa gleymt að flytja:

HETJAN MÍN
Hún þorir að bíða, vona og þreyja
þá stund sem ekki aðrir eygja
kann ekki að láta bil­bug sig beygja
né bugta fyrir þeim er haus­inn reigja,
hún stekkur eftir hjart­ans helga boði
ei hlustar á köllin: „Voði, voði“
og gal­vösk víg­völl­inn geys­ist á,
er guggna hinir og sitja hjá.
Það er hetjan mín, hér og nú,
hún ert þú, þú, þú, þú, þú …!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð