MenningSömdu leikrit undir sprengjuregni Rússa: „Sársaukinn er stöðugur“30. júní 2023 Úkraínskur leikhópur sýnir afar sterkt leikrit á Fringe Festival listahátíðinni sem nú stendur yfir í Reykjavík. Leikritið varð til undir sprengjuregni Rússlandshers. Kringumstæður leikhópsins breyttust á einu augabragði þegar Rússlandsher hóf innrás í Úkraínu en skyndilega breyttist leikhús þeirra í loftvarnarbyrgi en þar varð leikritið The Book of Sirens til. Mannlíf ræddi við eina úr leikhópnum, hana Anabell Sotelo Ramires....
InnlentIllugi afar ósáttur við Guðrúnu: „Til hvers þurfti hún aftur endilega að verða ráðherra?“30. júní 2023 Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra er strax búinn að valda Illuga Jökulssyni vonbrigðum. Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson birti hlekk á Facebook af frétt Ríkisútvarpsins þar sem Guðrún Hafsteinsdóttir, hinn nýji dómsmálaráðherra, segist harma mál öryrkjans sem missti hús sitt á nauðungaruppboði í Reykjanesbæ en hún sagði málið alfarið á ábyrgð Reykjanesbæjar og að sýslumaðurinn á Suðurnesjum, sem samþykkti þriggja milljóna króna boð í...
InnlentJakub hefur áður lent í hremmingum: „Mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í lífinu“30. júní 2023 Mál Jakubs Polkowski hefur vakið mikla athygli undanfarið en sýslumaðurinn á Suðurnesjum samþykkti nauðungarboð í einbýlishús hans á þrjár milljónir króna vegna tveggja og hálfs milljóna króna skuldar Jakubs. En hver er Jakub? Erfiðar heimilisaðstæður Jakub er 23 ára pólskur innflytjandi sem var virkur 13 ára unglingur sem hafði meðal annars gaman af því að spila fótbolta, þegar alvarleg læknamistök...
InnlentDraga á úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ – Aðgerðaráætlun Vinnumálastofnunar og bæjaryfirvalda29. júní 2023 Aðgerðaáætlun vegna dvalar umsækjenda um alþjóðlega vernd í Reykjanesbæ á vegum Vinnumálastofnunar Vinnumálastofnun og Reykjanesbær hafa unnið aðgerðaáætlun vegna dvalar umsækjenda um alþjóðlega vernd í sveitarfélaginu á vegum Vinnumálastofnunar. Áætlunin samanstendur af 16 aðgerðum sem fela meðal annars í sér margs konar tómstundaúrræði fyrir fólk á öllum aldri og opnun virknimiðstöðvar undir heitinu Klúbburinn. Miðstöðin verður í húsnæði sem áður...
InnlentReynisfjara áttunda besta strönd heims29. júní 2023 Samkvæmt Twitter-reikningum World of Statistics er Reynisfjara áttunda besta strönd heims. World of Statistics birtir ýmsa fróðlega tölfræði um heiminn, bæði á Twitter og YouTube en alls fylgjast 2.6 milljónir með aðganginum á Twitter. Efst á listanum yfir 50 bestu strandir heims er ströndin Lucky í Ástralíu. Í áttunda sæti má svo sjá hina íslensku Reynisfjöru, rétt á eftir Honopu-strönd...
MenningDagbók Önnu: „Íslendingar sem koma hingað væla eins og stungnir grísir yfir hlýindunum“29. júní 2023 Anna Kristjándsdóttir er tíðrætt um hita í nýjustu dagbókarfærslu sinni. Ein vinsælasta dagbók internetsins, fyrir utan kannski dagbók Önnu Frank, er dagbók Önnu Kristjánsdóttur vélstjóra, en hún birtir eina blaðsíðu á hverjum einasta degi ársins. Í nýjustu færslunni hælir hún veðrinu á Tenerife, sem hún kallar Paradís. Segir hún þó að Íslendingar á eyjunni „væli“ yfir hitanum, bæði ferðamenn og...
InnlentTúristar rápa inn í Austurbæjarskóla: „Margir upplifa óöryggi í því samhengi“29. júní 2023 Stjórn Foreldrafélags Austurbæjarskóla óskar eftir því að lagfæringum og endurbótum á skólalóðinni verði ekki frestað heldur staðið við upprunalegt loforð borgarinnar. Aðgengið sé einnig of auðvelt um skólann. Í bréfi Foreldrafélagsins kemur einnig fram að stígur liggi í gegnum skólalóðina og þar gangi túristar gjarnan á leið sinni að Hallgrímskirkju eða Sundhöll Reykjavíkur og í sumum tilfellum álpist þeir jafnvel...
InnlentHeimspekingur um heiðarleika og traust á bankakerfinu: „Slík viðleitni er oftast dauðadæmd“29. júní 2023 Heimspekingurinn Atli Harðarson velti fyrir sér Íslandsbankamálinu í nýlegri færslu á Facebook. Atli Harðarson Færslan hefur vakið athygli og ekki ómerkilegri maður en Egill Helgason hefur deilt færslunni. Þar segist Atli treysta betur þeim sem „reyna að vera heiðarlegir en þeim sem reyna að afla sér trausts“ og á þá við umræðuna um að afla þurfi traust á bankakerfinu, eftir...
InnlentLíkamsárás á Ísafirði – Einn maður handtekinn og annar fluttur á sjúkrahús með áverka29. júní 2023 Alvarleg líkamsárás átti sér stað á Ísafirði á þriðjudaginn. Einn maður var handtekinn og brotaþolinn fluttur á sjúkrahús. Fréttamiðillinn bb.is segir að hnífi hafi verið beitt í árásinni en lögreglan á Vestfjörðum kannast ekki við það. „Það liggur ekkert fyrir í málinu, að bitvopni hafi verið beitt, þannig að ég átta mig ekki á því hvaðan það kemur,“ svaraði lögreglan...
InnlentUnnur spyr hvort kynið hafi eitthvað að gera með afsögn Birnu: „Hashtag not all men kiss kiss“29. júní 2023 Unnur Eggertsdóttir söng- og leikkona velti fyrir sér hvort kynið hafi eitthvað með afsögn Birnu Einarsdóttur sem bankastjóra Íslandsbanka. „Haldiði að bankastjórinn hefði sagt af sér ef hún væri kk eða eru konur líklegri til að axla ábyrgð þótt það kosti þær starfið?“ spyr Unnur Eggertsdóttir í nýrri færslu á Twitter. Færslan hefur vakið nokkra eftirtekt en hundrað manns hefur...
Innlent„Birna er öflug, traust og góð kona, sem hefur staðið sig frábærlega í að byggja upp öflugan banka“28. júní 2023 Öll spjót hafa beinst að Birnu Einarsdóttur fráfarandi bankastjóra Íslandsbanka, frá því að skýrsla Fjármálaeftirilitsins um bankasöluna leit dagsins ljós á dögunum. Öll spjót nema mögulega eitt, spjótið hans Brynjars Níelssonar. Brynjar Níelsson, fyrrum aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar fyrrum dómsmálaráðherra, skrifaði í dag færslu á Facebook þar sem hann tekur upp hanskann fyrir Birnu Einarsdóttur, fráfarandi bankastjóra Íslandsbanka en þau tvö...
InnlentSéra Davíð tekur Jón Gunnarsson í nefið: „Það kostar minna en ekkert að taka á móti flóttafólki“28. júní 2023 Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju skýtur nístingsfast í þá ráðamenn sem talað hafa um „flóttamannavandann“ en bæði Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafa tala um þann meinta vanda. Í færslu á Facebook bendir séra Davíð Þór á þá staðreynd að meðalflóttamaður borgi upp þann kostnað sem hlýst af því að taka á móti honum, á tveimur...