Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Draga á úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ – Aðgerðaráætlun Vinnumálastofnunar og bæjaryfirvalda

Draga á úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ – Aðgerðaráætlun Vinnumálastofnunar og bæjaryfirvalda

Aðgerða­á­ætlun vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ á vegum Vinnu­mála­stofn­unar

Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær hafa unnið aðgerða­á­ætlun vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum Vinnu­mála­stofn­unar. Áætlunin sam­anstendur af 16 aðgerðum sem fela meðal ann­ars í sér margs konar tóm­stunda­úr­ræði fyrir fólk á öllum aldri og opnun virkni­m­ið­stöðvar undir heit­inu Klúbb­ur­inn. Mið­stöðin verður í hús­næði sem áður hýsti Officera-klúbb­inn á Ásbrú og þar verður boðið upp á nám­skeið, smiðjur og fjöl­breytta dag­skrá. Samhliða mun Vinnu­mála­stofnun leit­ast við að draga eins og kostur er úr dvöl umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ.

Þann 9. jan­úar sl. und­ir­rit­uðu félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið, Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær vilja­yf­ir­lýs­ingu um að greindar yrðu þær áskor­anir sem Reykja­nes­bær stæði frammi fyrir vegna fjölg­unar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelj­ast í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum rík­is­ins. Ákveðið var að aðilar að yfir­lýs­ing­unni myndu vinna saman að lausnum og er aðgerða­á­ætl­unin afrakstur þeirrar vinnu.

Áætlunin er gerð vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem uppi eru í Reykja­nesbæ vegna mik­ils fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem þar dvelja í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög. Meg­in­mark­miðið er ann­ars vegar að draga til lengri tíma litið úr fjölda umsækj­enda sem dvelja í bænum og hins vegar að auka virkni og vellíðan fólks á meðan það bíður eftir afgreiðslu umsóknar sinnar hjá Útlend­inga­stofnun. Áætlunin var unnin sam­eig­in­lega af Reykja­nesbæ og Vinnu­mála­stofnun.

Vel sótt tómstundanámskeið

Aðgerðir eru þegar hafnar sam­kvæmt áætl­un­inni og hafa börn umsækj­enda um alþjóð­lega vernd meðal ann­ars sótt tóm­stunda­nám­skeið nú í sumar sem Vinnu­mála­stofnun kom á fót á Ásbrú. Nám­skeiðin hafa mælst vel fyrir og þátt­taka verið afar góð en dag­lega hafa á bil­inu 60-70 börn tekið þátt.

Barna og ung­linga­ráð Körfuknatt­leiks­deildar Kefla­víkur hefur séð um yngri hóp­inn, börn 6-10 ára, og meðal ann­ars haft körfu­bolta á dag­skrá, föndur og margs konar leiki. Knatt­spyrnu­deild Kefla­víkur hefur séð um eldri krakk­ana, 11-16 ára, og meðal ann­ars farið með þeim í fót­bolta, blak og margs konar hreyf­ingu utandyra.

Önnur aðgerð í áætl­un­inni sem er þegar hafin snýr að sam­göngu­málum og er ætlað að mæta auknu álagi á almenn­ingsam­göngur frá Ásbrú og niður í miðbæ Reykja­nes­bæjar.

Friðheimar, sjálfboðaliðar og hugmyndasöfnun

Meðal aðgerða sem hefj­ast á næst­unni er að koma á fót þró­un­ar­skóla í Klúbbnum undir heit­inu Frið­heimar, auka þjón­ustu við flótta­fólk og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd með aðkomu sjálf­boða­liða úr nær­sam­fé­lag­inu og ráð­ast í hug­mynda­söfnun meðal umsækj­enda um það hvað fólk vilji helst gera og hvernig virkni það mæli með.

Þá mun þjón­ustu- og mót­tökuteymi alþjóðateymis Reykja­nes­bæjar verða tvo morgna í viku á Ásbrú með upp­lýs­inga­gjöf um þá þjón­ustu sem bær­inn veitir og leið­beina fólki varð­andi nyt­sam­lega hluti.

Fækkun umsækjenda í Reykjanesbæ

Vinnu­mála­stofnun tók síð­ast­liðið sumar við því hlut­verki sem Útlend­inga­stofnun hafði áður varð­andi þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Útlend­inga­stofnun ber eftir sem áður ábyrgð á afgreiðslu umsókna og máls­með­ferð þeirra.

Líkt og áður segir mun Vinnu­mála­stofnun draga úr fjölda þeirra  umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelur í Reykja­nesbæ líkt og kostur er. Myndist svig­rúm í búsetu­úr­ræðum stofn­un­ar­innar eða hjá sveit­ar­fé­lögum sem stofn­unin er með samn­inga við verður leit­ast við að fækka þeim umsækj­endum sem dvelja í Reykja­nesbæ.

Stofn­unin vinnur nú með Reykja­vík­ur­borg að því að finna hent­uga stað­setn­ingu fyrir ein­inga­hús fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Um leið er unnið mark­visst að því að fjölga sveit­ar­fé­lögum sem hýsa umsækj­end­urna. Nýleg sveit­ar­fé­lög sem bæst hafa í hóp­inn sem slík mót­töku­sveit­ar­fé­lög eru Blá­skóga­byggð, Grinda­vík, Kópa­vogur og Vest­manna­eyjar. Samhliða leitar Fram­kvæmda­sýslan/Rík­is­eignir að hús­næði vítt og breitt um landið.

Áfram verður áhersla lögð á að Vinnu­mála­stofnun tengi flótta­fólk við önnur sveit­ar­fé­lög sem samið hefur verið við um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ