InnlentÍslenskir lífeyrissjóðir undirrita viljayfirlýsingu upp á 40 milljarða króna í hreinni orku2. nóvember 2021 Almenni lífeyrissjóðurinn hefur skrifað undir viljayfirlýsingu gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC). Lífeyrissjóðurinn fjárfestir fyrir 300 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 40 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030. Þrettán aðrir íslenskir lífeyrissjóðir ásamt Almenna hafa líka undirritað slíka viljayfirlýsingu gagnvart CIC. Verkefnið var formlega kynnt í morgun á loftslagsráðstefnu Sameinuðu...
InnlentSteinunn Ólína svarar fyrir skrif sín: „Flestum er nú ljóst að útskúfunarsinnar vilja enga siðbót“2. nóvember 2021 Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona skrifaði langan pistil á Facebook í gær þar sem hún svarar fyrir pistil sem hún birti síðastliðinn föstudag og vakti nokkuð hörð viðbrögð. Pistillinn fjallaði um meintan byrlunarfaraldur á landinu. Þar velti hún því fyrir sig hvort mögulega sé í sumum tilfellum um að ræða afleiðingar þess að blanda saman geðlyfjum og áfengi. Í pistli gærkvöldsins...
InnlentSólveig Anna hlær að orðum Guðmundar: „Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín“2. nóvember 2021 „Í Kastljósi í gærkvöld krafðist Guðmundur Baldursson þess að Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar, segði af sér líkt og ég hef gert. Mér var vissulega ekki hlátur í hug en ég gat þó ekki annað en hlegið agnarsmáum hlátri þegar Guðmundur lét þessi orð falla.“ Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, í nýrri yfirlýsingu sem hún sendi frá...
InnlentHjartnæm kveðja: Fjölskyldan á leið til Noregs – „Ég elska þig – sjáumst á morgun “2. nóvember 2021 Stefán Pálsson bróðir Emils birti færslu á Twitter í gær sem VG í Noregi fjallar um. „Emil Pálsson ég elska þig sjáumst á morgun,“ skrifar Stefán á Twitter í gærkvöldi. Fjölskylda Emils Pálssonar er á leið til Noregs til að styðja við drenginn sinn sem nú dvelur á sjúkrahúsi í Noregi. Emil fór í hjartastopp í leik með Sogndal í...
InnlentLögreglan rannsakar ofbeldi í grunnskóla: Ábendingar um innilokun barna úr öðrum skólum2. nóvember 2021 Lögreglan rannsakar mál er varðar ofbeldi gegn barni í skóla á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur komið fram að þrír starfsmenn og einn kennari grunnskólans hafi veið kærðir til lögreglu vegna meðferðar á barninu. Hafi það verið lokað eitt inni í skólanum í hið minnsta tvisvar sinnum. Hefur umboðsmaður Alþingis nú farið...
InnlentÁrni leitar að bjargvætti sínum: „Blóðið flæddi um höfuðið og ég gat ekki staðið upp“2. nóvember 2021 Árni Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, skrifaði nýverið færslu á Facebook þar sem hann lýsti eftir bjargvætti sínum eftir að hann hafði dottið á höfuðið. Árni hafði farið með konu sína í augnaðgerð og ætlað að sinna erindagjörðum á meðan konan var í aðgerð. „Mikið langar mig að vita hvað hann heitir maðurinn, sem aðstoðaði mig skammt austan við Landspítalann í morgun,...
InnlentFimm bíla árekstur vegna ölvaðs ökumanns – Ölvuð kona fann ekki heimili sitt og fékk gistingu2. nóvember 2021 Lögreglu barst tilkynning um umferðarslys í Fossvogi skömmu fyrir klukkan sex í gær. Fimm bifreiðar höfðu lent í slysinu og var um harðan árekstur að ræða. Sá sem talinn er hafa valdið slysinu var handtekinn, bæði grunaður um ölvun og að hafa ekið ítrekað án ökuréttinda. Ekki er vitað um meiðsl ökumanna eða farþega að svo stöddu. Þá bárust lögreglu...
InnlentYfirlýsing Guðmundar: „Sólveig neitaði að kynna starfslokasamning við fráfarandi skrifstofustjóra“1. nóvember 2021 Guðmundur Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu, segir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fráfarandi formann, hafa haldið lykilupplýsingum leyndum frá stjórninni til að hylma yfir vanlíðan starfsfólks á skrifstofu Eflingar. Hann segir í yfirlýsingu alvarlegan trúnaðarbrest hafa orðið innan stjórnarinnar eftir að Sólveig Anna vildi ekki kynna fyrir stjórninni starfslokasamning við fráfarandi skrifstofustjóra í upphafi árs. Eins og Mannlíf greindi frá seint í gærkvöldi...
InnlentEmil Pálsson fór í hjartastopp í knattspyrnuleik í Noregi: Var endurlífgaður og er í rannsóknum1. nóvember 2021 Íslenski knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson, leikmaður Sögndal í Noregi, hneig niður í leik gegn Stjördals Blink í B-deildinni norsku í knattspyrnu á Fosshaugane-vellinum í Sögndal. Emil fór í hjartastopp; atvikið átti sér stað á þrettándu mínútu leiksins og var leikurinn samstundis flautaður af. Eðlilega var öllum brugðið sem á svæðinu voru, og leikmönnum beggja liða var vísað í átt að búningsherbergjum...
InnlentÞórdís gagnrýnir varðstjóra: „Mannréttindi fólks falla ekki úr gildi þótt það sé fullt á djamminu.“1. nóvember 2021 „Mér þykir ljóst að Aníta Rut Harðardóttir lögregluvarðstjóri hafi brotið með skýlausum hætti gegn siðareglum lögreglunnar þegar hún lét ummælin „Full á djamminu.is“ falla um brotaþola í ofbeldismáli,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og baráttukona gegn ofbeldi. Í samtali við Mannlíf gagnrýnir Þórdís Elva harðlega ummæli sem Aníta Rut, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, lét falla á Facebook-síðu sinni. Aníta...
InnlentHjónin á Ökrum lentu í furðulegum þjófnaði – Óska eftir upplýsingum1. nóvember 2021 Hjónin á Ökrum á Snæfellsnesi lentu í þjófum en þýfið verður að teljast ansi óvenjulegt. Af landi þeirra hvarf nefnilega hvalbeinagrind. Ólína Guðlaugsdóttir, á Ökrum, segir frá málinu á Facebook. „Góðan dag. Í Garðasandi hér í Hleinarplássi á Hellnum hefur legið hvalshræ á þriðja ár og höfum við verið að bíða eftir að hreinsaðist af beinum svo hægt væri að...
InnlentGrjóthrun í Norðfjarðargöngum: „Þetta getur því miður gerst en sem betur fer varð ekkert slys.“1. nóvember 2021 Eftir hádegi í dag var Norðfjarðargöngum lokað vegna grjóthruns úr lofti ganganna. Óvíst er hvernær unnt verður að opna þau aftur. Kemur þetta fram í frétt Austurfréttar. Í samtali við Austurfréttir segir Sveinn Sveinsson, umdæmisstjóri Vegagerðarinna á Austurlandi, að verið sé að meta aðstæður en jarðfræðingar stofnunarinnar eru hafið í samráði. Það var upp úr hádegi í dag að svolítið...