Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sólveig Anna hlær að orðum Guðmundar: „Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín“

Sólveig Anna hlær að orðum Guðmundar: „Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín“
Sólveig Anna Jóndóttir og Guð­mundur Bald­urs­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Í Kast­ljósi í gær­kvöld krafð­ist Guð­mundur Bald­urs­son þess að Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður Eflingar, segði af sér líkt og ég hef gert. Mér var vissu­lega ekki hlátur í hug en ég gat þó ekki annað en hlegið agn­arsmáum hlátri þegar Guð­mundur lét þessi orð falla.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður Eflingar, í nýrri yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér á Facebook-síðu sinni nú í morgun.

Í Kast­ljós­þætti gær­kvölds­ins sagði Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, sína hlið á atburð­unum sem end­uðu með afsögn Sól­veigar Önnu úr for­manns­stóli stétt­ar­fé­lags­ins.

Þar sagð­ist Guð­mundur hafa óskað eftir upp­lýs­ingum í kjöl­far þess að einum starfs­manni var sagt upp störfum hjá félag­inu. Þær upp­lýs­ingar fékk hann ekki. Hann vildi einnig fá upp­lýs­ingar um starfs­loka­samn­ing sem gerður var við skrif­stofu­stjóra sem var sagt upp störfum.

„Ég komst síðar að því eftir öðrum leiðum að gerður hafi verið við hana 9 mán­aða starfs­loka­samn­ingur og þar á undan var hún búin að vera í 3 mán­uði í veik­inda­leyfi. 9 mán­uðir í starfs­loka­samn­ing hjá verka­lýðs­fé­lagi eftir tveggja ára starf þykir nokkuð ríf­legt.“

Hann neit­aði því alfarið að hann gengi erinda ein­hverra stjórn­mála­flokka. Sagðist Guð­mundur ein­göngu vera að fara eftir lögum sem honum beri að gera – það er að fylgja eftir því að ekki sé verið að gera óþarf­lega langa starfs­loka­samn­inga.

Krafa Guðmundar yfirgengileg og óbærilega ógeðsleg

„Ég hugs­aði um „afreka­lista“ hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem til­heyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þess­vegna hló ég í örskamma stund. Fárán­leiki þess að þessi maður væri að krefj­ast þess að hún léti sig hverfa var svo yfir­gengi­legur. En auð­vitað fyrst og síð­ast svo óbæri­lega ógeðs­legur,“ segir Sólveig Anna í yfir­lýs­ingu sinni.

Sólveig segir að Agnieszka sé valin af félögum sínum til að gegna stöðu vara­for­manns. Það hafi hún gert með sóma.

„Áður var hún trún­að­ar­maður árum saman og barð­ist gegn launa­þjófn­aði og óboð­legum aðstæðum, svo sem engri sal­ern­is­að­stöðu. Hún er fyrsta konan af pólskum upp­runa sem gegnir svo mik­il­vægu hlut­verki í íslenskri verka­lýðs­hreyf­ingu. Hún er fyrsti raun­veru­legi full­trúi aðflutts verka­fólks í verka­lýðs-bar­átt­unni.

Hún þekkir allt það sví­virði­lega rugl sem við­gengst gagn­vart aðfluttu verka­fólki á eigin skinni. Allt. Hún hefur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raun­veru­lega hafa viljað bæta hag alls vinnu­aflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stór­kost­lega umbóta vinnu innan félags­ins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæm­lega sömu þjón­ustu og þau okkar sem fædd eru hér.“

Sólveig Anna minnir á að um það bil helm­ingur félags­fólks Eflingar sé aðflutt fólk.

„Í fyrsta skipti er í ábyrgð­ar­hlut­verki mann­eskja sem til­heyrir þeim hópi, mann­eskja sem berst fyrir þennan hóp af öllu hjarta, alla leið. Og svo dirf­ist ein­hver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skamm­að­ist sín en ég veit af mik­illi reynslu að það kann hann ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina