Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna hættir sem formaður Eflingar: „Starfsfólk Eflingar sem hrekur mig úr starfi“

Sólveig Anna hættir sem formaður Eflingar: „Starfsfólk Eflingar sem hrekur mig úr starfi“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur sagt af sér for­mennsku hjá félag­inu. Þetta til­kynnti hún á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.

Svo hljóðar til­kynn­ing Sól­veigar í heild sinni:

Á fimmtu­dag­inn var haft sam­band við mig frá frétta­manni á RÚV. Hann vildi spyrja mig um texta sem að trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sam­þykktu þann 9. júní og sendu þá á mig og aðra stjórn­endur. Í þessum texta er ég m.a. sökuð um að halda „aftöku­lista“ og að fremja grafal­var­leg kjara­samn­ings­brot gegn starfs­fólki á borð við fyr­ir­vara­lausar upp­sagnir, auk þess sem farið er með furðu­legar rang­færslur um starfs­manna­veltu. Textinn er und­ir­rit­aður af trún­að­ar­mönnum og sagður settur fram fyrir hönd starfs­manna.

Mér var brugðið yfir þessum texta, sem var ekki sann­leik­anum sam­kvæmur og að mínu mati skrif­aður af miklu dóm­greind­ar­leysi, en ég bland­aði mér þó ekki í þetta mál heldur fól öðrum stjórn­endum að bregð­ast við, sem þau gerðu hratt og fag­lega. Skrifleg stað­fest­ing barst frá trún­að­ar­manni þar sem mál­inu var sagt lokið.

Stjórn­ar­maður í Eflingu sem lengi hefur verið upp­sigað við félagið, Guð­mundur Bald­urs­son, fékk veður af til­vist þessa texta og fékk upp­frá því mik­inn áhuga á að fá hann afhentan frá mér. Ég taldi mig ekki hafa neina heim­ild til þess og meiri­hluta stjórn­ar­manna tóku undir þá afstöðu með mér. Frekar en að virða trúnað við félagið sem hann er stjórn­ar­maður í, upp­hóf Guð­mundur í kjöl­farið mikla klögu­mála-her­ferð á vett­vangi Starfs­greina­sam­bands­ins og ASÍ til að fá umræddan texta afhentan, en varð þar aft­ur­reka.

Fremur en að sætta sig við lög og leik­reglur síns eigin félags og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, ákvað Guð­mundur að fara með starfs­manna­mál skrif­stofu Eflingar í fjöl­miðla og er það ástæða þess að frétta­maður hafði sam­band við mig á fimmtu­dag­inn eins og áður sagði.

Eftir að hafa fengið póst frá frétta­manni ákvað ég að ávarpa starfs­fólk Eflingar í upp­hafi vinnu­dags á föstu­dag­inn síð­asta, en búið var að ákveða starfs­manna­fund á þeim tíma. Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­inu.

Það var ekki auð­veld ákvörðun fyrir mig að stilla þessu upp svona en það er að mínu mati óhjá­kvæmi­legt. Starf mitt með félags­fólki Eflingar, sem er rétt­læt­is­bar­átta varð­andi kjör og aðstæður verka­fólks á vinnu­stöðum, hefur ekki trú­verð­ug­leika ef trún­að­ar­menn starfs­fólks Eflingar eru til­búnir að full­yrða að ég reki hér vinnu­stað jafn slæman eða verri en þeir sem við höfum sjálf gagn­rýnt.

Ég lýsti því fyrir starfs­fólki að fjöl­miðlar hafa áður gert sér mik­inn mat úr frá­sögnum fyrrum starfs­manna Eflingar um meinta glæpi og rétt­inda­brot mín gegn þeim. Slíkar fréttir hafa ítrekað birst á for­síðum blaða og í sjón­varps­fréttum. Mikil orka og tími hefur farið í að verj­ast þessum ásök­unum. Þessar her­ferðir hafa þannig skilað til­ætl­uðum árangri jafn­vel þótt engar þeirra hafi verið á rökum reistar, ekki frekar en alvar­legar ásak­anir trún­að­ar­manna um aftöku­lista, fyr­ir­vara­lausar upp­sagnir og fleira.

Ég lýsti því að skað­inn sem þetta myndi valda yrði mik­ill fyrir bar­áttu félags­ins og hags­muni félags­manna. Ég myndi aldrei geta borið til baka sjálf þessar ásak­anir, enda settar fram af trún­að­ar­mönnum vinnu­stað­ar­ins í nafni starfs­fólks. Aðeins starfs­fólk gæti því kveðið upp dóm um rétt­mæti þess­ara ásak­ana.

Ég vék af fund­inum ásamt öðrum stjórn­endum og tóku starfs­menn sér tíma fram að hádegi til að bregð­ast við og ræða saman. Nið­ur­staða fundar þeirra var ályktun sem send var til stjórn­enda og önnur ályktun til RÚV.

Í þessum álykt­unum kemur fram afdrátt­ar­laus stað­fest­ing á þeim orðum sem var að finna í ályktun trún­að­ar­manna frá í júní. Talað er á þeim nótum að alvar­leg vanda­mál séu við­var­andi sem þurfi að leysa með funda­höldum og öðru. Krafist er auk­ins valds fyrir trún­að­ar­menn vinnu­stað­ar­ins og tíð­ari vinnu­staða­funda, þar sem mögu­leg van­líðan ein­stakra starfs­menna verði fund­ar­efni. Í yfir­lýs­ingu til RÚV er jafn­framt engin til­raun gerð til að bera til baka ásak­anir um ógn­ar­stjórn. Álykt­an­irnar eru van­trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfs­manna­málum vinnu­stað­ar­ins.

And­stæð­ingar félags­ins og þeirrar stefnu sem ég og stjórn félags­ins hafa markað í bar­áttu verka- og lág­launa­fólks eru því miður margir. Með ákvörðun stars­fólks Eflingar sl. föstu­dag um að standa stað­fast­lega við ýktar og ósann­gjarnar lýs­ingar trún­að­ar­manna á vinnu­staðnum sem ég ber ábyrgð á hefur starfs­fólk í reynd gefið sam­þykki sitt fyrir áfram­hald­andi nei­kvæðri umfjöllun og umræðu sem gerir mér ill­mögu­legt að leiða bar­áttu félags­fólks.

Ég kýs að útsetja mig ekki fyrir slíka útreið enn á ný, með til­heyr­andi skaða fyrir bar­áttu Eflingar og Efl­ing­ar­fé­laga. Fremur kýs ég að hlíta þeirri afdrátt­ar­lausu van­trausts­yf­ir­lýs­ingu sem starfs­fólk Eflingar hefur sent mér, félag­inu og fjöl­miðlum, sem gera starf mitt ómögu­legt. Ég get ekki gegnt stöðu for­manns í félag­inu að svo komnu máli og hef ég til­kynnt stjórn Eflingar um afsögn mína.

Mér þykir það ótrú­legt að það sé starfs­fólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­stæð­ingum félags­ins að hossa sér á ýkjum, lygum og rang­færslum um mig og sam­verka­fólk mitt. Starfs­fólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögu­legt að leiða sögu­lega og árang­urs­ríka bar­áttu verka- og lág­launa­fólks síð­ustu ár, mann­orði mínu og trú­verð­ug­leika.

Ég er full af þakk­læti yfir því að hafa verið treyst af félags­fólki Eflingar til að leiða okkar bar­áttu og er ótrú­lega stolt af þeim magn­aða árangri sem við höfum náð á þeim stutta tíma sem ég hef verið for­maður félags­ins. Barátta Efl­ing­ar­fé­laga und­an­farin ár hefur sýnt og sannað að með krafti og sam­stöðu vinnu­aflsins þá náum við árangri. Með þau vopn í höndum getum við tek­ist á við allan mót­byr sama hversu óheið­ar­legir og ómerki­legir and­stæð­ingar okkar eru, hvar sem þeir leyn­ast.

Ég mun aldrei hætta í bar­áttu fyrir rétt­læti fyrir okkur sem til­heyrum stétt verka- og lág­launa­fólks og þekkja lífið undir oki auð­valds­kerf­is­ins og lág­launa­stefn­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina