InnlentTímarit sem fyllir börn eldmóði, áhuga og gleði28. júní 2019 Ágústa Margrét Arnardóttir, búsett á Djúpavogi, er ritstjóri HVAÐ, nýs barna- og ungmennatímarits sem kom út í fyrsta sinn í byrjun júní 2019. Lögð er áhersla á efni fyrir lesendur á aldrinum 8-18 ára þótt efnið höfði til lesenda á öllum aldri.
Innlent„Þetta er mín leið til mótmæla fitufordómum“5. júní 2019 Íslenska fyrirsætan Ísold Halldórudóttir hefur vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum. Ísold er mikill talsmaður líkamsvirðingar og berst gegn fitufordómum.
MenningFékk upp í kok á kjaftæðinu24. maí 2019 Frá barnsaldri kom ekki annað til greina hjá Steinunni Camillu Stones en að verða forseti, norn eða listakona. „Mér var bent á að ég gæti ekki orðið forseti fyrr en ég væri orðin 35 ára þannig að ég gaf það upp á bátinn, ég dunda mér við að vera norn í hjáverkum og sem betur fer sat ég því uppi með listina,“ segir hún og brosir.
MenningÓskar þess stundum að vera í þægilegri innivinnu17. maí 2019 Tónlistarmaðurinn og frumkvöðullinn Svavar Pétur Eysteinsson eða Prins Póló hefur alltaf nóg fyrir stafni. Sumar í Havarí er á næsta leiti ásamt tveimur ólíkum safnplötum. Svo er bók í bígerð og nýtt brakandi snakk. Albumm hitti á Svavar og byrjaði á því að spyrja hvernig ferillinn hefði farið af stað.
SkoðunPawel BartoszekFöst í draumastarfinu15. maí 2019 Síðast en ekki síst Eftir / Pawel Bartoszek Nútímaævintýri fjalla ekki um smaladrengi sem drýgja hetjudáð og fá að giftast prinsessum. Nei, nútímaævintýri fjalla ekki um forboðnar ástir heldur um forboðin störf. Í tímaritum og helgarútgáfum dagblaða birtast sögur af hetjum sem segja upp dagvinnunni og einbeita sér að einhverju sem þær elska: Stofna eigin fyrirtæki. Selja eigin hönnun. Og...
FólkÓhrædd við að taka stóru stökkin14. maí 2019 Sólveig Pálsdóttir rithöfundur stóð eins og margir aðrir á tímamótum þegar hún varð fimmtug. Hún gerði það sem ýmsa langar að gera en ekki allir láta verða af. Hún ákvað að láta drauma sína rætast. Vatt sínu kvæði í kross og gerðist rithöfundur eftir að hafa starfað sem leikkona og kennari ásamt ýmsu öðru í áratugi.
Innlent„Er fljót að gleyma því slæma“11. maí 2019 „Það er vissulega samdráttur en veitingastaðir sem eru orðnir tólf og sjö ára standa auðvitað mun betur að vígi en þeir sem eru nýir. Þeir eru orðnir rótgrónir og hafa tryggari rekstrargrundvöll,“ segir Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs.
InnlentTekur tíma að jafna sig á áfallinu10. maí 2019 Hrefna Rósa Sætran segir lokun Skelfiskmarkaðarins hafa verið áfall en það hafi samt að sumu leyti verið jákvæð reynsla að lenda í. Hún sé heldur ekki týpan sem dvelur við það leiðinlega í lífinu, hún haldi ótrauð áfram að gera sitt besta.
FólkSysturmissir kveikjan að tónlistarferlinum9. maí 2019 Margrét Kristín Sigurðardóttir prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Vikunnar. Margrét Kristín, sem er betur þekkt undir listamannsnafninu Fabúla, lét gamlan draum rætast og skellti sér í leiklistarnám í London þegar hún var fimmtug. Hún hafði verið í slíku námi í Noregi þegar hún var ung en hætt þegar áfall í fjölskyldunni varð til þess að tónlistar- og textasköpun hennar tók yfirhöndina.
InnlentLangvarandi álag varð að sprengju8. maí 2019 Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir var að gefa út bókina Þegar kona brotnar , bókina gefur hún út í samstarfi við VIRK – starfsendurhæfingarsjóð. Í bókinni er að finna viðtöl við konur sem kiknuðu undan álagi en risu aftur upp.
InnlentBlómstra á nýjum vettvangi28. október 2018 Þjóðþekktir Íslendingar sem hafa tekið U-beygju á starfsferlinum.