Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tímarit sem fyllir börn eldmóði, áhuga og gleði

Ágústa Margrét Arn­ar­dóttir, búsett á Djúpa­vogi, er rit­stjóri HVAÐ, nýs barna- og ung­menna­tíma­rits sem kom út í fyrsta sinn í byrjun júní 2019. Lögð er áhersla á efni fyrir les­endur á aldr­inum 8-18 ára þótt efnið höfði til les­enda á öllum aldri.

Tímarit sem fyllir börn eldmóði, áhuga og gleði
Ágústa Margrét Arn­ar­dóttir er rit­stjóri HVAÐ

„Mér datt aldrei í hug að ég myndi ein­hvern tíma gefa út barna- og ung­menna­tíma­rit, en ég er gríð­ar­lega hug­mynda­rík, hvat­vís og ofvirk þannig að líf mitt kemur mér alltaf á óvart,“ segir Ágústa þegar hún er spurð um til­urð þess að hún hóf tíma­rita­út­gáfu. „Ég tók eftir því fyrst fyrir um sex árum að það væri vöntun á hvetj­andi og efl­andi tíma­ritum fyrir börn, öðru hvoru hugs­aði ég svo að þetta og hitt væri snið­ugt í þannig blað. Ég kláraði svo mitt fimmta fæð­ing­ar­or­lof í sept­meber í fyrra og ákvað að prófa þetta bara.“

HVAÐ er fjöl­breytt tíma­rit og í það skrifa um fjöru­tíu ein­stak­lingar á öllum aldri, pistla, upp­skriftir, sögur, við­töl og fleira. „Það er mikið um inn­sent efni frá börnum sem eru að kynna sín áhuga­mál, sín svæði og fleira fyrir les­endum en eldri pistla­höf­undar skrifa sína pistla með „hvað myndi ég vilja segja mér þegar ég var 8-18 ára“. Þetta eru hvetj­andi pistlar um til dæmis vin­áttu, lík­ams­í­mynd og mik­il­vægi þess að virða og elska sig sjálf og margt fleira sem og upp­lýsandi pistlar um kyn­færi, fjár­mál, tísku­ljós­myndir og hvernig á að baka tún­fífla, svo fátt eitt sé nefnt.“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt

Ágústa stofn­aði hönn­unar- og fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Arfleifð þegar fyrsta barnið hennar og manns­ins hennar sem er sjó­maður var sex mán­aða, svo eign­uð­ust þau þrjú börn á þremur árum. „Ég reyndi mitt allra besta við að reka fyr­ir­tækið, sinna börnum, heim­ili og líf­inu, að miklu leyti ein. Þetta var nokk­urra ára rús­sí­bani sem end­aði með að ég hrundi and­lega og lík­am­lega. Eftir á að hyggja var þetta þrot sem ég komst í mun alvar­legra en ég gerði mér grein fyrir því eft­ir­köstin eru enn. Ég hef ekki sama úthald, orku og getu og ég hafði. Ég þurfti að breyta algjör­lega um lífs­stíl, ég hætti að drekka, fékk ADHD-grein­ingu og sam­kvæmt lækn­is­ráði átti ég að láta við­burði og stór verk­efni á pásu,“ segir Ágústa. „Ég þurfti í raun að læra að lifa upp á nýtt, sætta mig við alls konar, fara í gegnum for­tíð­ina, end­ur­skipu­leggja fram­tíð­ina og læra að lifa í núinu. Það má segja að þetta ferli hafi ekki síst verið kveikjan að HVAÐ. Ég hef lesið svo margt upp­byggi­legt og merki­legt, er að læra mark­þjálfun og ætla mér að vinna við að hvetja fólk. Úr því að ég gat fundið hug­arró, sátt og inni­halds­rík­ara líf þá geta það allir.“

„Ég þurfti í raun að læra að lifa upp á nýtt, sætta sig við alls konar, fara í gegnum for­tíð­ina, end­ur­skipu­leggja fram­tíð­ina og læra að lifa í núinu.“

Hún segir að í nútíma­sam­fé­lagi sé allt of mik­ill hraði, neyslu­hyggja, yfir­borðs­kennd, við­miðun og von­brigði, bæði hjá full­orðnum og börnum. „Börn verða fyrir stans­lausu áreiti á öllum miðlum, bíó­myndum, aug­lýs­ingum, inni á heim­ilum, í skólum og sam­fé­lag­inu öllu. Kvíði, streita og van­líðan er að aukast hjá börnum og ég var þannig barn – mér leið oft illa. Ég var „vand­ræðaung­lingur“, byrj­aði að drekka á þrett­ánda ári til að fylla í eitt­hvað tóm og flýja raun­veru­leik­ann. Ég skamm­að­ist mín fyrir svo margt, bar enga virð­ingu fyrir mér eða öðrum. Ég eyði­lagði hluti, sam­bönd og mig sjálfa. Þetta var allt sprottið út frá van­líðan og of lít­illi trú á sjálfa mig,“ segir Ágústa.

Fylgdi syni sínum í skólanum allan daginn í fjóra mánuði

Í þessu fyrsta tölu­blaði HVAÐ er ítar­legt við­tal við Heiðar Loga Elíasson, brim­bretta­kappa með meiru. „Jákvæðni hans, kraftur og eld­móður urðu mér inn­blástur fyrir nokkrum árum, þegar hann var um tví­tugt og ég um 35 ára þriggja barna móðir að takast á við þrotið mitt. Ég tók hann mér til fyr­ir­myndar og nú er ég orðin fer­tug og fimm barna móðir sem fer í blaut­galla og hoppar í sjó­inn, ár og vötn til að tengj­ast nátt­úr­unni og skemmta sér. Þetta er eitt­hvað sem ég gerði aldrei en lang­aði alltaf. Af ein­hverjum ástæðum var ég búin að búa mér til allt of mikið af hindr­unum og hafði afsak­anir fyrir öllu. Stærstu afsak­anir mínar voru að ég ætti of mörg börn, of lít­inn tíma, of lít­inn pen­ing og fleira. Fyrir tveimur árum var mér svo enn meira kippt inn í raun­veru­leik­ann. Sonur minn sem þá var í 3. bekk var í kol­vit­lausum far­vegi. Hann sýndi alls konar hegðun sem benti til mik­illa erf­ið­leika og van­líð­unar. Það var búið að prófa ýmsar aðferðir til að reyna að „láta“ hann haga sér betur og líða betur en ekk­ert breytt­ist, honum leið verr og verr, ef eitt­hvað.“

Ágústa ákvað að fara með honum í tvær til fjórar vikur í skól­ann til að reyna að sjá hvað „væri að honum“. Það end­aði þannig að hún setti Arfleifð á pásu, dropp­aði öllu og mætti með honum í allar kennslu­stundir, frí­mín­útur, tóm­stundir og fleira í tæp­lega fjóra mán­uði „Ég sá ótrú­lega vel að það var margt að hjá honum en ekki að honum. Við tók tveggja ára ferli til að finna hans far­veg og vellíðan. Útivist, sam­vera, áhuga­mál, ástríða fyrir ein­hverju, leikur, hvatn­ing, ábyrgð og fleira var partur af því sem gjör­breytti hans líðan og okkar allra. Því þegar barni, eða full­orðnum, líður illa hefur það áhrif á alla í kring. Það sem ég sá einnig var að það var líka svo ofboðs­lega margt að hjá mér, fjöl­skyld­unni, skól­anum og sam­fé­lag­inu. Öll mín hugsun breytt­ist.“

Öll fjöl­skyldan breytti um stefnu í líf­inu fyrir nokkrum árum og tekur þátt í blaða­út­gáf­unni með Ágústu.

Eftir þetta snýst líf Ágústu og fjöl­skyldu um að finna far­veg hvers og eins ein­stak­lings í fjöl­skyld­unni og fjöl­skyld­unnar sem heildar. Þau fóru að stunda vatna­sport, mun meiri úti­vist, flakk og ferða­lög, breyttu kaup­hegðun og flæði inn á heim­ilið, fóru að safna upp­lif­unum í stað eigna og svo ótal margt sem hefur skilað þeim vellíðan, hug­arró og sátt.

1100 kílómetra ferðalag vel þess virði

Börn Ágústu eru með henni í blaða­út­gáf­unni. „Ég hann­aði þessa útgáfu og allt sem fylgir út frá börn­unum og fjöl­skyld­unni. Þau skrifa öll eitt­hvað í blaðið og hafa verið að selja það hús úr húsi á lands­byggð­inni. Ég fór einu sinni ein til Reykja­víkur að vinna að þessu en ann­ars hafa þau komið með mér. Ég og Vigdís, elsta dóttir mín, keyrðum frá Djúpa­vogi til Reykja­víkur og til baka, alls 1100 kíló­metra, til þess að hitta Heiðar Loga í þrjár klukku­stundir. Það ferða­lag var marg­falt þess virði og magnað tæki­færi að hitta og heyra sögu hans, sem er í 1. tölu­blað­inu. Ég er rit­stjóri og skrifa í blaðið en mitt helsta verk var að fá efni frá öllum og setja það saman á einn aðgengi­legan stað. Íris Ösp Svein­björns­dóttir er graf­ískur hönn­uður og list­rænn stjórn­andi HVAÐ. Fyrsta tölu­blaðið var í um níu mán­uði í vinnslu og á loka­sprett­inum leið okkur eins og við værum að eign­ast barn saman. „Með­gangan“ gekk vel, við fórum fram yfir settan útgáfu­dag en eins og eðili­legt er með fyrsta barn og lærðum alveg ólýs­an­lega mikið af þessu ölllu.“

Ágústa hefur horft mikið til tíma­rit­anna ABC og Æskunnar sem vin­sæl voru þegar hún var barn. „Ég sendi inn hell­ing af sögum, teikn­ingum og óskaði eftir penna­vinum þegar ég var barn og þau fylltu mig inn­blæstri í þess­ari útgáfu. HVAÐ er vett­vangur barna og ung­menna til að láta ljós sitt skína. Í stað plakata með tón­list­ar­fólki og íþrótta­mönnum eru fal­leg og upp­byggi­leg kvót og heil­ræði sem sóma sér vel uppi á vegg í ramma. Og í stað kross­gátna og þrauta eru hvetj­andi verk­efni, áskor­anir og mark­miða­eyðu­fyll­ingar sem gaman og gagn­legt er að fylla inn í. Þannig að þetta er svona nútíma­út­færsla á þessum gömlu tíma­ritum í bland við brand­ara, leiki og lífið í land­inu frá börnum og ung­mennum.“

Vill sporna við skjátíma

Lang­flestir sem Ágústa tal­aði við í sam­bandi við HVAÐ hafa verið jákvæðir og til í að taka þátt. Ævar Þór, rit­höf­undur og vís­inda­maður, Alda Karen, Sölvi Tryggva, Pálína Ósk, Þor­grímur Þráins, Erna í Ernu­landi, Ólafur Stef­áns­son, Fanney Þóris, Rakel Rán  og fleiri skrifa pistla. „Þetta er fólk sem vinnur við að hvetja og upp­lýsa. Þau vita að börn og ung­menni þurfa að fá upp­lýs­ingar beint í æð og þau höfðu trú á þessu hjá mér. Það er ómet­an­legt. Ég vil með hefð­bund­inni prentút­gáfu í stað net­út­gáfu reyna að sporna við skjá­tíma og mín hugsun er að ég verði að prófa þetta. Ég trúi því inni­lega að ef HVAÐ fær tæki­færi, fær kynn­ingu og verði aðgengi­legt í versl­unum þá muni það blómstra.“

Prent­smiðjan Oddi prentar blaðið og Ágústa segir að starfs­fólkið þar hafi verið með ein­dæmum þol­in­mótt, ráða­gott og dásam­legt í sam­skiptum.

„Það var mark­mið okkar allra að hafa þetta metn­að­ar­fullt og fag­legt. Við höfum fengið mikið hrós fyrir inni­hald, útlit, gæði, pappír, prentun og fleira. Það var ekk­ert mál að vinna þetta frá Djúpa­vogi, ekki síst af því að það var frá­bært fólk í hverju verki. Reynsla mín úr fyrri rekstri, menntun, nám­skeið og fleira hjálp­aði mikið.“

Óskin er að blaðið ýti undir heil­brigði og heil­indi, sjálf­stæða hugsun, efli og hvetji les­endur til dáða.

Næst á dag­skrá hjá fjöl­skyld­unni er við­burður og sala á Humar­há­tíð á Horna­firði þar sem þau verða með sér­stakt HVAD-svæði – skap­andi og hvetj­andi svæði þar sem inni­hald blaðs­ins er fært í raun­veru­leik­ann. Alls konar áskor­anir, föndur og fleira. „HVAÐ er ekki bara tíma­rit, það er lífs­stíll sem hvetur til sam­veru, úti­vistar og að njóta. Einnig verðum við með sölu á Lummu­dögum í Skaga­firði. Við von­umst til að vera með sem mest af svona við­burðum og ýmis nám­skeið eru í bígerð fyrir vet­ur­inn. Markmið okkar með HVAÐ eru stór og fal­leg, ég er þó raunsæ og veit að í rekstri, og líf­inu, getur allt gerst. Jafn­að­ar­geð, þol­in­mæði og æðru­leysi í bland við kæru­leysi, hvat­vísi og trú er nauð­syn­legt vega­nesti í öllum verk­efnum sem maður tekur sér fyrir hendur.“

Kemur út tvisvar á ári

Í lof­orði til les­enda og stefnu HVAÐ segir að óskin sé að þegar börn og ung­menni skoði blaðið finni þau fyrir eld­móði, áhuga og gleði og að HVAÐ ýti undir heil­brigði og heil­indi, sjálf­stæða hugsun, efli og hvetji les­endur til dáða. Í tíma­rit­inu eru líka upp­lýs­ingar um staði sem börn og ung­menni geta leitað til – hjálp­ar­sími Rauða kross­ins, Bergið, SÁÁ og fleira. Blaðið mun koma út tvisvar á ári til að byrja með, í júní og nóv­em­ber, það er til sölu á heima­síð­unni hvad­tima­rit.is, í barna­vöru­versl­un­inni Hreiður í Kópavogi, versl­unum Pennans, Nettó og Hagkaupa og kostar alls staðar 2.500 kr. HVAÐ er einnig á Facebook og Instagram undir Hvad­tima­rit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti