MannlífiðKartöflu-blaðlauksbaka8. maí 2019 Bökur eru þægilegur og góður matur. Þær er einfalt að búa til og þegar deigið hefur verið gert eru engin takmörk fyrir hvað nota má í fyllingu. Hægt er að grípa það sem til er í ísskápnum og þetta er því góð leið til að nýta afganga, grænmeti sem er á síðasta snúningi eða hvað annað sem leynast kann í matarskápum heimilisins. Hér kemur ein góð baka.
MannlífiðMarokkóskt lambagúllas7. maí 2019 Alltaf er gaman að elda rétti sem koma frá öðrum heimshornum og enn skemmtilegra að nota ekta íslenskt hráefni í þá eins og lambakjöt. Þægilegt er að elda pottrétti og tilvalið að láta þá eldast lengi við vægan hita. Pottréttir eru oft betri daginn eftir og því gott að elda stóra skammta og láta duga í tvær máltíðir. Auðveldlega má skipta lambakjötinu út fyrir nautakjöt fyrir þá sem vilja það frekar.
MannlífiðFrábært flatbrauð á grillið4. maí 2019 Nú fer að verða grillhæft, að minnsta kosti að mati okkar Íslendinga. Við erum þekkt fyrir að láta ekki smávegis rigningu eða lágt hitastig koma í veg fyrir að nota grillin okkar. Það er líka ákveðinn vorboði þegar grilllyktin gýs upp í görðum fólks.
MannlífiðBakað úr maísmjöli: maísbrauð – arepas1. maí 2019 Maísmjöl er frekar fínkornað mjöl sem unnið er úr maískorni. Það er mjög algengt í Suðurríkjum Ameríku en einnig í Afríku, og Ítalir nota það í polentugerð. Á Íslandi er lítil hefð fyrir notkun þess en við þekkjum það einna helst í gegnum mexíkóska matargerð því maísmjöl er notað í tortillur og tacos og svo í ýmiskonar snakk sem við getum keypt í stórmörkuðunum.
MannlífiðVilja sýna fólki hvað það er skemmtilegt að elda vegan-mat24. apríl 2019 Grænkerinn Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir deilir hér nokkur uppskriftum að dásamlegum vegan-réttum.
MannlífiðSpennandi og matarmikið ávaxtabrauð23. apríl 2019 Þetta brauð er matarmikið og spennandi og í því er fjölbreytt næring, alls konar mjöl, fræ, hnetur og ávextir. Brauðið passar með öllu mögulegu og er frábært á ostabakkann.
MannlífiðUnaðsleg Oreo-ostakaka20. apríl 2019 Ostakökur eru uppáhald margra. Þeir sem eru fyrir ostakökurnar eru oft ástríðufullir aðdáendur þeirra og nota hvert tækifæri til að gæða sér á þeim. Hér er uppskriftir að einni góðri þar sem Oreo-kex spilar stórt hlutverk.
MannlífiðGómsætt meðlæti með páskamatnum19. apríl 2019 Rétt meðlæti er oft það sem gerir máltíðina að sælkeramat. Hér gefum við ykkur uppskriftir að gómsætu meðlæti sem er fullkomið á páskaborðið.
MannlífiðKjötsúpa með lambaskönkum og perlubyggi14. apríl 2019 Kjötsúpa er í augum margra dæmigerður íslenskur matur og er alltaf vinsæl, bæði hjá ungum sem öldnum. Algengast er að nota gulrófur, gulrætur og hvítkál í súpuna, annað hvort haframjöl eða hrísgrjón og bæta síðan þurrkuðum súpujurtum saman við.
MannlífiðSeiðandi súkkulaði6. apríl 2019 Reglulega berast fréttir af hinum ýmsu rannsóknum sem benda til hollustu súkkulaðis og súkkulaðigrísir um allan heim gleðjast um leið og þeir teygja sig í eldhússkápinn og ná sér í einn bita með kaffinu. Það er löngu sannað að allt er gott í hófi og það á auðvitað við um súkkulaði eins og annað. Hér er uppskrift að afar girnilegri og gómsætri köku sem súkkulaðiunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
MannlífiðFlatbrauð með steiktum lauk, chili-sveppum og sesamsmjörssósu3. apríl 2019 Hér kemur uppskrift að dásamlegri pizzu sem er fljótlegt að gera og því hentar hún vel þegar tíminn er naumur og allir svangir eftir annasaman dag. Í uppskriftinni er gert ráð fyrir að pizzan sé bökuð á grilli en hana er auðvitað líka hægt að baka í ofni.
MannlífiðLjúffeng papriku- og gulrótasúpa17. mars 2019 Paprikur eru vinsælar víða um heim. Þær eru litríkar, hollar og bragðgóðar. Þær eru góðar hráar, bakaðar eða í súpur og það er auðvelt að nálgast þær allt árið um kring. Hér kemur uppskrift að dásamlegri súpu þar sem paprika spilar stórt hlutverk.