FólkÓhrædd við að taka stóru stökkin14. maí 2019 Sólveig Pálsdóttir rithöfundur stóð eins og margir aðrir á tímamótum þegar hún varð fimmtug. Hún gerði það sem ýmsa langar að gera en ekki allir láta verða af. Hún ákvað að láta drauma sína rætast. Vatt sínu kvæði í kross og gerðist rithöfundur eftir að hafa starfað sem leikkona og kennari ásamt ýmsu öðru í áratugi.
FólkSex hlutir sem við ættum ekki að gera húð okkar13. maí 2019 Húðin gegnir mjög margþættu hlutverk, til dæmis ver hún okkur gegn sýklum, framleiðir D-vítamín, hindrar vökvatap frá líkamanum og svo margt fleira. Í ofanálag ætlumst við til að hún haldist falleg og hraustleg, sérstaklega á andlitinu. Við verðum þó að horfast í augu við það að lífsstílsvenjur okkar hafa mikil áhrif á húðina og hér eru nokkur atriði sem við ættum alveg að sleppa.
InnlentNú er hægt að lesa Hús og híbýli, Vikuna og Gestgjafann í vefútgáfu10. maí 2019 Núna er hægt að kaupa áskriftir að Húsum og híbýlum, Gestgjafanum og Vikunni í vefútgáfu. Þá er hægt að skoða blaðið í tölvum, farsímum og spjaldtölvum þar sem vefútgáfa blaðsins er framsett á fallegan og aðgengilegan máta.
FólkÍ hefndarhug gegn fyrrverandi9. maí 2019 Lífsreynslusaga úr Vikunni Vinkona mín var um árabil gift virtum manni sem gegndi ábyrgðarmiklu embætti. Heima fyrir var hann svo stjórnsamur að það var nánast fyndið, ef það hefði ekki kostað vinkonu mína áratugi nánast í fangelsi … í gullbúri þó. Ég hafði ekki hugmynd um hversu kúguð Sonja vinkona var á meðan hún var gift Stefáni, hún áttaði sig...
FólkSmáforrit sem koma þér í hlaupaform9. maí 2019 Smáforrit, eða svokölluð öpp eru til margs nýtileg. Meðal annars er hægt að ná sér í ýmiskonar öpp sem hjálpa til við að koma upp hlauparútínu, halda utan um árangurinn og spila tónlist eftir þínum hlaupahraða.
FólkSysturmissir kveikjan að tónlistarferlinum9. maí 2019 Margrét Kristín Sigurðardóttir prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Vikunnar. Margrét Kristín, sem er betur þekkt undir listamannsnafninu Fabúla, lét gamlan draum rætast og skellti sér í leiklistarnám í London þegar hún var fimmtug. Hún hafði verið í slíku námi í Noregi þegar hún var ung en hætt þegar áfall í fjölskyldunni varð til þess að tónlistar- og textasköpun hennar tók yfirhöndina.
FólkGat ekki sest niður í lífstykkinu8. maí 2019 Kim Kardashian klæddist hönnun Thierry Mugler á Met Gala. Flíkin sjálf var afar þröng og gerð úr latexi og þurfti Kim að klæðast lífstykki til að komast í flíkina. Myndband
FólkLeyniíbúðin hans pabba7. maí 2019 Lífsreynslusaga úr Vikunni Við systkinin ólumst upp hjá ástríkum foreldrum. Ég var komin á fimmtugsaldurinn þegar ég komst að leyndarmáli sem faðir minn hafði búið yfir í áratugi. Ég er næstelst í hópi fjögurra systkina. Mamma vann úti hálfan daginn eftir að við vorum öll komin í skóla en pabbi gegndi ábyrgðarmiklu starfi og var nokkuð þekktur, að minnsta kosti...
FólkSvakalegir kjólar á rauða dreglinum á Met Gala6. maí 2019 Einn stærsti tískuviðburður ársins, The Met Gala, er hafinn og fer fram í nótt í New York. Tískuunnendur bíða alltaf spenntir eftir þessum viðburði enda er tískan á rauða dreglinum alltaf veisla. Hér kemur lítið brot af því besta og áhugaverðasta sem hefur sést á rauða dreglinum í kvöld.
FólkHeillast af glamúr og glitri2. maí 2019 Móeiður Svala Magnúsdóttir segist klæða sig mest í dragtir, samfestinga og hælaskó en að hennar áliti eiga allar stelpur að eiga glæsilega kjóla sem lætur þeim líða eins og prinsessum.
FólkÚtrunnið eða ónýtt?1. maí 2019 Góð ástæða til að hreinsa til í baðskápnum og snyrtibuddunni er að skapa meira pláss og skipulag. Önnur, og mögulega betri ástæða, er sú að eftir að vara hefur verið opnuð kemst súrefni að henni sem gerir það að verkum að hún fer að skemmast, innihaldsefnin tapa virkni sinni auk þess sem að bakteríur og örverur af fingrum okkar og úr umhverfinu komast í vöruna. Allt þetta getur valdið ertingu eða jafnvel sýkingu í húð okkar. Þess vegna er mikilvægt að gera reglulega rassíu og henda útrunnum snyrtivörum.
FólkGlæsilegur tískuþáttur í brúðkaupsblaði Vikunnar30. apríl 2019 Brúðkaupsblað Vikunnar kom út í mars en blaðið verður í verslunum út sumarið.