Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leyniíbúðin hans pabba

Leyniíbúðin hans pabba

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Við systkinin ólumst upp hjá ástríkum foreldrum. Ég var komin á fimmtugsaldurinn þegar ég komst að leyndarmáli sem faðir minn hafði búið yfir í áratugi.

Ég er næstelst í hópi fjög­urra systk­ina. Mamma vann úti hálfan dag­inn eftir að við vorum öll komin í skóla en pabbi gegndi ábyrgð­ar­miklu starfi og var nokkuð þekktur, að minnsta kosti innan síns geira. Hann vann mikið, oft langt fram á kvöld en lang­flestum helgum varði hann með fjöl­skyld­unni. Við fórum í úti­legur, niður að Tjörn að gefa önd­unum, í ísbílt­úra, bíó eða hvað­eina skemmti­legt sem pabba og mömmu datt í hug að bjóða okkur.

Við fengum góða hjálp við heima­lær­dóm­inn og mikla og góða hvatn­ingu. Okkur fannst við geta allt. Sem betur fer fengum við líka mátu­legan aga og komumst ekki upp með neitt rugl. Öll gengum við mennta­veg­inn, enda var ætl­ast til þess af okkur frá upp­hafi.

Yngsta barnið í hópnum, litla systir, veikt­ist illa þegar ég var á ung­lings­aldri og ég gleymi ekki hvað pabbi og mamma voru sam­stiga um að halda utan um hana og hjálpa henni í gegnum veik­indin. Þau sýndu okkur hinum líka mik­inn stuðn­ing á þessu tíma­bili og gættu þess að við fengjum að fylgj­ast með og yrðum ekki afskipt.

Vegna þessa góða sam­bands for­eldra okkar og kær­leiks­ríks fjöl­skyldu­lífs, held ég að áfallið við að upp­götva leynd­ar­mál pabba hafi orðið enn meira.

Áfall og uppgötvun

Eftir að systir mín náði bata tók mamma við veik­inda­kefl­inu og var slæm til heils­unnar eftir það. Hún var við­kvæm fyrir umgangspestum og nokkrum sinnum lenti hún inni á sjúkra­húsi vegna svæs­innar lungna­bólgu. Heilsa hennar versn­aði til muna upp úr sex­tugu og hún neydd­ist til að hætta að vinna. Henni þótti það hræði­legt til að byrja með en svo upp­götv­aði hún töfrana við skáld­sögur og hellti sér af alefli út í lestur.

Þau pabbi fengu heim­il­is­hjálp viku­lega því mamma mátti lítið reyna á sig og pabbi vann mjög langan vinnu­dag. Hún naut þess að sitja í upp­á­halds­stólnum sínum í stof­unni við lestur og þegar ég kom í heim­sókn sagði hún mér frá því sem hún var að lesa. Pabbi fór viku­lega í bóka­safnið fyrir hana og á góðum degi komst hún með honum en það gerð­ist þó ekki oft. Hún var yfir­leitt svo mátt­lítil en komst þó milli her­bergja í hús­inu.

Það kom öllum á óvart þegar pabbi fékk alvar­legt hjarta­á­fall og lést í kjöl­farið. Hann hafði alla tíð verið heilsu­hraustur og ekk­ert bent til þess að hann væri hjart­veikur. Þetta var mikið áfall og þótt við systk­inin syrgðum hann mjög ein­beittum við okkur að því að halda vel utan um mömmu. Pabbi var eina ástin hennar og hún hafði oft talað um að við yrðum að passa vel upp á hann eftir að hún væri farin, því hún, eins og flestir aðrir, hélt að hann myndi lifa hana.

Við systk­inin sáum um öll mál fyrir mömmu, und­ir­bún­ing útfarar, erfi­drykkju og annað. Síðan fórum við í að skoða fjár­mál hennar og pabba sem hann hafði alla tíð séð um. Okkur til mik­illar furðu komumst við að því að pabbi átti litla íbúð og hafði verið eig­andi hennar í ára­tugi. Við gerðum þau mis­tök að spyrja mömmu út í þetta og hún varð eins og eitt stórt spurn­ing­ar­merki í framan. Hún hafði ekki haft hug­mynd um neitt.

Einn dag­inn fórum við systk­inin með lyklana hans pabba í þeim til­gangi að skoða leyni­í­búð­ina. Við vorum for­vitin en jafn­framt kvíðin. Var þetta eitt­hvað ljótt sem pabbi hafði viljað halda leyndu fyrir fjöl­skyldu sinni?

„Við gerðum þau mis­tök að spyrja mömmu út í þetta og hún varð eins og eitt stórt spurn­ing­ar­merki í framan. Hún hafði ekki haft hug­mynd um neitt.“

Þetta reynd­ist vera frekar venju­leg íbúð, búin frekar fáum hús­gögnum en þó virt­ist sem alúð hefði verið lögð í að hafa hana nota­lega. Þarna voru þó engin blóm, engar ljós­myndir en þó voru skraut­munir og mál­verk á veggjum sem gerði hana heim­il­is­lega. Tví­breitt rúm var í svefn­her­berg­inu og búið um það öðrum megin. Mér létti við það þangað til ég sá að pakki af verjum var í annarri nátt­borðs­skúff­unni. Við fundum engar snyrti­vörur í bað­her­berg­inu, að minnsta kosti engar sem finna mætti á bað­her­bergi konu, aðeins hrein­læt­is­vörur á borð við tann­bursta, tann­krem, sjampó og slíkt. Mögulega hafði konan, ef þetta var þá kona, verið með lykil að íbúð­inni og fjar­lægt dótið sitt eftir lát pabba. Í skáp­unum voru nær­föt og sokkar og einnig var þar auka­sæng, ásamt sæng­ur­fötum.

Leyndarmál

Við seldum þessa íbúð ásamt inn­bú­inu og vorum með hálf­gert óbragð í munn­inum. Ekki treystum við okkur til að segja mömmu sann­leik­ann, heldur sögðum henni að pabbi hefði greini­lega búið sér til vinnu­at­hvarf þarna, greini­lega til að fá algjöran frið sem hann hefði hvorki fengið í vinn­unni né heima. Í íbúð­inni hefði verið skrif­borð sem hann hafði unnið við, einnig sófi og stólar, ásamt kaffi­könnu í eld­hús­inu.

Mömmu fannst þetta allt mjög skrítið en trúði lygum okkar systk­in­anna. Hún vildi að við fengjum and­virði íbúð­ar­innar og skiptum því á milli okkar því hún ætti nóg af öllu. Frekar vildi hún að við nytum pen­ing­anna en að þeir væru geymdir í bank­anum, engum til gagns og gleði.

Án þess að mamma vissi gáfum við féð, skiptum því á milli nokk­urra góð­gerða­fé­laga. Ekkert okkar hafði lyst á pen­ing­unum, við höfðum það öll ágætt í líf­inu og þurftum ekki á þeim að halda, að minnsta kosti ekki þessum pen­ingum. Kannski kjána­leg við­kvæmni, ég veit það ekki, en okkur létti mjög þegar við vorum laus við þessa íbúð og pen­ing­ana fyrir hana. Önnur systir mín er gift lög­manni sem sá um allt fyrir okkur.

Pabbi hafði keypt íbúð­ina löngu áður en mamma varð sjúk­lingur, svo ekki voru það veik­indi hennar sem fengu hann hugs­an­lega til þess að leita annað. Yngsta systkinið var ekki einu sinni fætt þegar hann festi kaup á henni.

Rólegur nágranni

Ekki tókst okkur að kom­ast að því hvern eða hverja pabbi hitti í þess­ari íbúð. Áður en við seldum hana tal­aði ég við fólkið á efri hæð­inni ef vera kynni að það lang­aði til að kaupa hana. Ég þurfti voða lítið að spyrja, ég fékk bara enda­laust hrós um „ætt­ingja“ minn á neðri hæð­inni. Það hefði aldrei verið hávaði, meira eins og eng­inn byggi þar. Þau könn­uð­ust bara við að hafa séð mann­inum, pabba, bregða fyrir þegar ég spurði hvort það hefði verið mik­ill gesta­gangur. Þannig að gestur eða kannski gestir pabba hafa ekki látið fara mikið fyrir sér þegar þeir komu til hans.

Í jarð­ar­för­inni vissum við ekk­ert um leyni­í­búð­ina, ann­ars hefðum við eflaust reynt að horfa betur á fólkið sem kom í kirkj­una.

Á end­anum ákváðum við systk­inin að hætta að hugsa um þetta eða reyna að finna út úr því.

Mamma er enn á lífi þrátt fyrir lélega heilsu og komin á ynd­is­legt dval­ar­heim­ili þar sem hún hefur eign­ast góða vini. Hún saknar alltaf pabba, stóru ást­ar­innar sinnar, og gerir eflaust til dauða­dags. Það kemur ekki til greina að segja nokkuð sem skyggir á minn­ingar hennar um hann. Við systk­inin og makar okkar erum eina fólkið í fjöl­skyld­unni sem vitum af þessu því við sögðum börn­unum okkar ekki frá upp­götvun okkar. Þau vissu af íbúð­inni en fengu sömu skýr­ingu og mamma.

Það kemur vissu­lega stöku sinnum fyrir að mig langar að vita meira. Var pabbi óham­ingju­samur í hjóna­band­inu án þess að nokkur vissi? Samband hans og mömmu virt­ist svo ást­ríkt. Þau rifust aldrei svo að ég vissi til, kysst­ust bless á morgn­ana þegar hann fór til vinnu, og föðm­uðu hvort annað oft upp úr þurru. Algjört traust virt­ist ríkja á milli þeirra og þau voru okkur börnum sínum góð fyr­ir­mynd um hvernig gott hjóna­band ætti að vera. Ég verð að lifa með því að fá lík­lega aldrei að vita allan sann­leik­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina