Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Útrunnið eða ónýtt?

Góð ástæða til að hreinsa til í bað­skápnum og snyrti­budd­unni er að skapa meira pláss og skipu­lag. Önnur, og mögu­lega betri ástæða, er sú að eftir að vara hefur verið opnuð kemst súr­efni að henni sem gerir það að verkum að hún fer að skemm­ast, inni­halds­efnin tapa virkni sinni auk þess sem að bakt­er­íur og örverur af fingrum okkar og úr umhverf­inu kom­ast í vör­una. Allt þetta getur valdið ert­ingu eða jafn­vel sýk­ingu í húð okkar. Þess vegna er mik­il­vægt að gera reglu­lega rassíu og henda útrunnum snyrti­vörum.

Útrunnið eða ónýtt?

Allar snyrti­vörur renna út en eftir mis­langan tíma. Vandinn er að fæstar vörur eru merktar með ákveð­inni dag­setn­ingu, það á í raun ein­göngu við um sól­ar­vörn og vörur sem eru fengnar með lyf­seðli. Þó að varan sé ekki merkt með dag­setn­ingu er yfir­leitt önnur merk­ing á henni sem mið­ast við hvenær varan er opnuð, en hún kall­ast í PAO meðal fram­leið­anda eða „Period After Opening“.

Svona merki er að finna á flestum snyrti­vörum, það segir til um hversu lengi varan end­ist eftir að umbúð­irnar hafa verið opn­aðar.

PAO-merk­ing­una er að finna á næröllum vörum sem seldar eru í Evrópu. Merk­ingin er tölu­stafur, bók­staf­ur­inn M og svo opin krukka. Tölu­staf­ur­inn segir til um líf­tíma vör­unnar eftir að hún hefur verið opnuð í mán­uðum talið. Þessi tala er ekki pott­þétt, en gott við­mið. Vandinn er að við munum oft ekki hvenær við opn­uðum vör­una og ættum í raun að venja okkur á að merkja á vörur dag­setn­ing­una sem hún var opnuð.

Vertu vakandi

Vara þarf ekki að vera orðin gömul til þess að verða ónýt eða hafa orðið bakt­er­íum að bráð, því er mik­il­vægt að vera stöðugt á varð­bergi. Ef litur, lykt eða áferð vöru breyt­ist þá getur það verið merki um að varan sé skemmd. Til dæmis getur hún dökknað á lit, komið þráa­lykt af henni eða hún getur skilið sig, þá er tími til kom­inn að hún fari bein­ustu leið í ruslið. Einnig geta umbúð­irnar bólgnað eða bognað sem er líka vís­bend­ing að ekki sé allt með feldu.

Náttúruleg innihaldsefni

Góð þum­al­putta­regla segir að allar vörur með vatn sem meg­in­inni­halds­efni hafa stystan líf­tíma eftir opnun því bakt­er­íur og örverur þurfa á rak­anum að halda til að þríf­ast. Nátt­úru­leg inni­halds­efni úr plöntum hafa einnig stuttan líf­tíma, rétt eins og ávextir á eld­hús­borði.

Engin rotvarnarefni

Ef vara er sögð vera án rot­varn­ar­efna ber að fara mjög var­lega með hana því án rot­varn­ar­efna þríf­ast bakt­er­íur óhindrað. Þó að það hljómi örugg­ara að nota nátt­úru­leg rot­varn­ar­efni þá eru þau samt sem áður ekki jafn­skil­virk. Gott er að klára slíkar vörur með því að nota þær á hverjum degi í nokkra mán­uði frekar en að nota þær endrum og  sinnum í lengri tíma, einnig má lengja líf­tím­ann með því að geyma vör­urnar í ísskápnum.

Áður en varan skemmist

Stundum kaupum við vörur sem við erum ekki nógu hrifnar af og notum þar af leið­andi ekki. Þær safn­ast þá fyrir í skápnum hjá okkur og renna smám saman út. Það er góð regla að reyna að losa sig við slíkar vörur strax. Það þýðir þó ekki að þú verðir að henda þeim heldur getur þú gefið vin­konu þinni eða fjöl­skyldu­með­lim þær eða gefið til Kvenna­kots.

Líftími förðunarvara

Púður (augnskuggar, kinna­litir o.s.frv.): Tvö ár, eða lengur ef vel er hugsað um vör­urnar.
Krem­kenndar vörur: Eitt til eitt og hálft ár.
Farði: Eitt ár til eitt og hálft ár.
Hyljari: Eitt ár til eitt og hálft ár.
Vara­litur: Eitt ár.
Vara­blý­antur: Eitt ár til eitt og hálft ár.
Varagloss: Eitt og hálft til tvö ár.
Augn­blý­antur: Tvö ár
Augn­línupenni eða -gel: Sex til átta mán­uðir.
Maskari: Þrír til sex mán­uðir.

Krem­vörur end­ast skemur en púð­ur­vörur.

Líftími húðvara

And­lits­hreinsir: Eitt ár
And­lits­vatn: Hálft til eitt ár
Vörur sem inni­halda AHA- eða BHA-sýrur: Eitt ár
Rakakrem og serum: Hálft til eitt ár
Vara­salvi: Eitt ár
Prufur: Einn til þrír dagar

Rakakrem end­ast í hálft til eitt ár eftir að umbúð­irnar hafa verið opn­aðar.

Húðvörur – Nokkrar góðar reglur til að hafa í huga

  • Geymdu vör­urnar í lok­uðum skáp eða skúffu.
  • Þvoðu hendur vand­lega áður en þú notar vörur.
  • Passaðu að skrúfa tappa eða lok vel á eftir hverja notkun.
  • Gefðu gaum að því að raki og hiti hefur áhrif á vörur.
  • Skrifaðu dag­setn­ing­una sem þú opn­aðir vör­una með tús­spenna á umbúð­irnar.
  • Fylgstu vel með breyt­ingum á lit eða lykt.
  • Fylgdu dag­setn­ing­unum sem standa á sól­ar­vörnum, því virku efnin sem eiga að vernda þig hafa mjög tak­mark­aðan líf­tíma og að honum loknum verður sóla­vörnin að venju­legu „body lotion“.
  • Kauptu vörur í túbu eða pumpu frekar en í krukku. Það er 100% hætta á bakt­er­íusmiti í krukkum því maður er stöðugt að opna og loka þeim, svo ekki sé minnst á að stinga fingr­unum ofan í þær.
  • Ekki geyma vörur þar sem sólin skín á þær.
  • Ekki deila húð­vörum með vinum þínum.
  • Ekki gleyma að þrífa tapp­ann eða lokið vel ef þú missir það á gólfið, þá með sápu og heitu vatni eða hreinsispritti og leyfa því að þorna áður en þú skrúfar það aftur á.

Förðunarvörur – Nokkrar góðar reglur til að hafa í huga

Snyrti­vörur end­ast víst ekki enda­laust.
  • Þrífðu bursta og áhöld reglu­lega því ann­ars gætu þau borið húð­fitu og bakt­er­íur í vör­urnar þínar.
  • Ekki deila mask­ara með neinum.
  • Þú finnur það strax á lykt­inni ef vara­litur er orð­inn skemmdur, fitan í honum þránar.
  • Ef áferðin er orðin þykk eða kekkj­ótt þá er varan skemmd.
  • Vörur sem inni­halda olíur geta farið að skilja sig eftir smá­tíma og þá er ekki aftur snúið.
  • Yddaðu blý­anta reglu­lega því það heldur þeim ferskum.
  • Geymdu krem­vörur á hvolfi til að sporna gegn því að þær þorni upp.
  • Byrjaðu alltaf á því að þvo á þér hend­urnar áður en þú notar förð­un­ar­vörur.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur