MannlífiðTortillur – einfaldar og sjúklega góðar24. janúar 2020 Helstu einkenni matargerðarinnar í Mexíkó eru baunir, tómatar, avókadó, chili-aldin og tortillur, sem eru þunnar kökur úr maísmjöli og svo í seinni tíð líka úr hveiti. Tortillurnar eru notaðar á ýmsa vegu og heita réttirnir eftir því. Hér eldum við tvo rétti sem kallast tacos og þá eru tortillurnar alltaf hafðar litlar, fylltar með grænmeti og kjöti og hafðar annaðhvort...
MannlífiðHoll og einföld hrákaka með hindberjum23. janúar 2020 Hindber er ávallt freistandi og falleg en þau eru full af andoxunarefnum og vítamínum sem gera okkur gott. Í þessari köku fá þau að njóta sín en útlitið, áferðin og bragðið minnir á ostaköku með hvítu súkkulaði þó enginn sé osturinn. Gott er að mala chia-fræ og nota sem bindiefni í uppskriftinni en til þess má til dæmis nota kaffikvörn.
MannlífiðHollt og gómsætt kjúklingabaunasalat með ólífum22. janúar 2020 Ólífur eru ómissandi í matargerð frá Miðjarðarhafinu en olían sem unnin er úr þeim er undirstöðuhráefni í allri matseld Miðjarðarhafsbúa. Hér er holl og góð uppskrift þar sem ólífur leika aðalhlutverkið.
MannlífiðGrænmetisbaka sem hentar vel í kvöldmatinn21. janúar 2020 Hér er ein virkilega góð grænmetisbaka sem sló í gegn í tilraunaeldhúsi Gestgjafans.
MannlífiðGómsæt sítrónu-kúrbítskaka20. janúar 2020 Hér kemur uppskrift að gómsætri köku þar sem kúrbítur er uppistaðan. Bragðgóð og seðjandi.
MannlífiðSætar og mjúkar – kökur með grænmeti19. janúar 2020 Grænmeti getur hentað vel í bakstur eins og margir þekkja í gulrótakökunni. Hér eru nokkrar gómsætar uppskriftir sem innihalda grænmeti og útkoman dásamlegar kökur sem sóma sér vel á hvaða veisluborð sem er. Súkkulaðibollakökur með svörtum baunum 1 dós svartar baunir 5 egg ½ tsk. salt 1 tsk. vanilluduft 6 msk. kakó 1 tsk. lyftiduft ½ tsk. matarsódi ½ dl...
MannlífiðHollustublað Gestgjafans er komið í verslanir – Stútfullt af frábærum ráðum og fróðleik16. janúar 2020 Nýr Gestgjafi er kominn út. Litið er yfir sviðið í matar-, vín- og ferðaheiminum fyrir árið 2020 en þar kennir ýmissa grasa. Afreksíþróttafólk spjallar við okkur um mataræði og gefur góðar og hollar uppskriftir. Uppskriftir að hollum og gómsætum réttum úr tilraunaeldhúsi Gestgjafans er að finna í blaðinu og mætti nefna uppskriftir að unaðslegum, fljótlegum og hollum laxaréttum, grænmetisréttum og...
MannlífiðEru bananarnir á síðasta snúningi?15. janúar 2020 Banani er hinn fullkomni ávöxtur, orkusprengja sem gott er að taka með í nesti. Þegar bananar fara að verða ólystugir og brúnir eru þeir bestir í bakstur og þá er um að gera að nýta þá í dásamlegar kökur og eftirrétti. Ef andinn er ekki yfir ykkur einmitt þá stundina er lítið mál að frysta banana og nota síðar í kökur sem innihalda stappaða banana. Afhýðið þá, skerið í bita og setjið í frystipoka. Munið bara að skrifa utan á hversu mörg stykki eru í pokanum. Hér er einn virkilega góður og einfaldur bananaréttur.
MannlífiðÍslenska heilkornið bygg er frábært hráefni – Byggóttó með sveppum og graskeri15. janúar 2020 Suðutíminn er einungis 15 mínútur og því sniðugt að nota það í staðinn fyrir hrísgrjón eða kartöflur til tilbreytingar eða hafa það sem aðalrétt eða smárétt eins og gert er hér.
MannlífiðEinfaldur kjúklingaréttur sem nærir líkama og sál14. janúar 2020 Kjúklingur er hráefni sem býður upp á margskonar fljótlega rétti sem nýta má bæði í miðri viku þegar fjölskyldan þarf eitthvað hollt eftir annasaman dag sem og um helgar þegar góða gesti ber að garði. Hér er dásamleg indversk uppskrift að heilelduðum kjúklingi.
MannlífiðÞorskur á marokkóskum nótum13. janúar 2020 Ljúffeng uppskrift sem leikur við bragðlaukana. Fyrir 4. 500 g þorskur, skorin í stóra bita gróft sjávarsalt nýmalaður svartur pipar 2-3 msk. ólífuolía 1 eggaldin, skorið í nokkuð stóra bita 150 g gulrætur, sneiddar 1 rauðlaukur, saxaður 2 hvítlauksgeirar, saxaðir fínt 1 dós niðursoðnir kirsuberjatómatar 2 tsk. paprikuduft ½ tsk. túrmerik ½ tsk. cayenne-pipar ¼ tsk. chili-flögur ¼ tsk. kanill...