Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Rafrettubannið samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins: „Meiri áhyggjur af nýjum neytendum nikótíns“

Ein af þeim vinsælu rafrettum sem brátt verða ólöglegar.
Ein af þeim vin­sælu rafrettum sem brátt verða ólög­legar. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Sér­fræð­ingur hjá Húsnæðis og mann­virkja­stofnun rík­is­ins segir mikla aukn­ingu hafa orðið á neyslu á rafrettum á milli 2021 og 2023 en að bann við rafrettum sem hafa stærri hylki en tveggja milli­lítra, vera til­komið vegna til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins.

Á dög­unum sagði Mannlíf frá nýrri reglu­breyt­ingu Húsnæðis og mann­virkja­stofn­unar rík­is­ins (HMS) en sam­kvæmt henni verður bannað að flytja inn rafrettur sem hafa stærri hylki en tveggja milli­lítra, frá og með næstu mán­að­ar­mótum. Þá verður versl­unum gert að hætta allri sölu á slíkum rafrettum fyrir 31. maí. Þýðir þetta að brátt verði ekki hægt að fá vin­sæl­ustu einnota rafrett­urnar á land­inu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá HMS eru kröfur þessar sam­kvæmt reglu­gerð­ar­breyt­ingu sem sjá má hér.

Mannlíf ræddi við Skarp­héð­inn Grét­ars­son, sér­fræð­ing í mark­aðs­eft­ir­liti hjá HMS um bannið. Aðspurður hvort málið teng­ist Evr­ópu­sam­band­stil­skipun segir hann svo vera.

„Það er rétt sem þú segir að kröf­urnar eru eins og í Tóbaks­vörutil­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins sem Íslandi ber að inn­leiða hér á landi líka. Þar eru stærð tanka og hylkja tak­mörkuð við 2 ml og áfyll­inga við 10 ml,“ segir Skarp­héð­inn í skrif­legu svari til Mannlífs.

Samkvæmt breskum góð­gerð­ar­sam­tökum gegn reyk­ingum, Action on Smoking and Health (ASH), hafa aldrei fleiri notað rafrettur í Bret­landi og nú, eða 4,3 milljón manna, 8,3 pró­sent af full­orðnum Bretum. Af þeim fjölda hefur um 57 pró­sent þeirra sem reykja rafrettur í Bret­landi, hætt að reykja sígar­ettur, eða um 2,45 millj­ónir manna, þannig að svo virð­ist sem rafrettur hjálpi að minnsta kosti ein­hverjum að hætta að reykja sígar­ettur.

Mannlíf spurði Stein­grím hvort stofn­unin hafi ekki áhyggjur af afleið­ingum af bann­inu, að margir noti rafrettur í stað sígar­etta.

„Svo virð­ist sem mikil aukn­ing hafi verið á neyslu á rafrettum á milli 2021 og 2023 og hefur maður meiri áhyggjur af nýjum neyt­endum nikótíns, sér­stak­lega börnum. Hvað varðar tóbaks­reyk­inga­fólk þá er mikið úrval rafretta á mark­aði sem geta leyst þær vörur af hólmi ef sú vara sem fólk notar dettur út.“

Að lokum spurði Mannlíf Stein­grím, hvers vegna Húsnæðis og mann­virkja­stofn­unin væri með rafrettur á sínum snærum en ekki ein­hver önnur rík­is­stofnun, en margir hafa furðað sig á því.

„Upp­haf­lega var Neyt­enda­stofu falið að ann­ast eft­ir­lit með rafrettum en árið 2021 færði Alþingi verk­efni á sviði vöru­ör­yggis til HMS.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum