Þriggja herbergja íbúð við Kelduland 5 í Fossvogi hefur verið sett á sölu fyrir 81,9 milljónir króna. Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem reist var árið 1971 og hefur eignin verið endurnýjuð að verulegu leyti á undanförnum árum.
Það eru þau Eva Karen Ástudóttir flugfreyja og Róbert Freyr Pálsson, landsliðsmaður í íshokkí, sem eru að selja íbúðina.
Íbúðin skiptist meðal annars í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Úr stofunni er gengið út á stórar suðursvalir.
Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað og þar eru innréttingar frá HTH með steinborðplötum. Þá eru þar innfelld heimilistæki, búrskápur og vínkælir í eyju. Hjónaherbergið er með góðu skápaplássi auk þess sem fataskápar á gangi veita aukið geymslurými.
Baðherbergið hefur einnig verið endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er sturta með glerskilrúmi og innfelldum blöndunartækjum auk aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Ný gólfefni hafa verið lögð í íbúðinni og allir ofnar endurnýjaðir. Eigninni fylgir jafnframt 4,3 fermetra geymsla í kjallara.
Húsið sjálft hefur einnig fengið töluvert viðhald. Það var múrviðgert og málað árið 2024 og flestir gluggar í íbúðinni endurnýjaðir ásamt svalahurð. Þakið var málað árið 2022 og vesturgafl hússins klæddur árið 2021.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir